Bæjarins besta - 27.11.2002, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002
Fræðsluáætlun fyrir bolfiskvinnsluna hjá HG kynnt undir hádegisverði
Gómsætur hokinhali og leirgedda á borðum
Stjórnendur Hraðfrysti-
hússins – Gunnvarar hf. í
Hnífsdal kynntu í hádeg-
inu sl. föstudag fræðslu-
áætlun fyrir bolfiskvinnsl-
una, sem þeir hafa að und-
anförnu unnið að í sam-
starfi við Fræðslumiðstöð
Vestfjarða. „Hingað til
hefur endurmenntun
starfsfólks verið tilviljun-
arkennd en nú er komin
áætlun fyrir bolfisk-
vinnsludeildina. Á
næstunni verða gerðar
sambærilegar áætlanir
fyrir aðrar deildir“, segir
Kristján G. Jóakimsson,
framkvæmdastjóri
vinnslu- og markaðsmála
hjá HG.
Kynningin fór fram í
kaffistofu fyrirtækisins í
Hnífsdal. Tækifærið var
notað til að bjóða starfs-
fólki og gestum upp á
vatnasteinbít (leirgeddu)
og hokinhala, en báðar
tegundirnar eru miklir
„samkeppnisaðilar“
íslenska þorsksins á
erlendum mörkuðum.
„Hokinhalinn bragðaðist
mjög vel. Það er augljóst
að við munum eiga fullt í
fangi með að keppa við
hann á mörkuðum“, segir
Kristján.
Starfsfólk bolfiskvinnslu HG gæðir sér á leirgeddu og hokinhala.
Starfsfólkið fylgdist af áhuga með kynningunni.