Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.01.2001, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 24.01.2001, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 13 Þorrablótið í Bolungarvík á rætur að rekja til lýðveldisársins 1944 Konur bjóða körlum og halda fast í hefðirnar Þorrablót Bolvíkinga var haldið í Víkurbæ á laugar- dagskvöld, annan dag þorra. Blótinu fylgja grónar hefðir og sérstæðar að ýmsu. Konur einar annast undirbúning og bjóða körlum sínum til fagn- aðarins. Þetta hefur gefist vel. Fyrst var blót með þessum hætti haldið í Bolungarvík á þorranum árið 1944 á meðan Íslendingar höfðu ennþá kóng. Einu sinni fyrir langa- löngu féll blótið niður þegar konurnar höfðu falið körlum sínum að annast framkvæmd- ina. Slíkt hefur ekki verið reynt síðan og verður ekki reynt. Stundum hefur sú tilhögun verið átalin, að eingöngu fólk í sambúð og með lögheimili í Bolungarvík skuli fá að koma á þetta blót. En húsrúm setur skorður og því formi skal ekki gleyma, að hér býður kona karli sínum út. Der skal to til, eins og sagt var á meðan Ís- lendingar höfðu ennþá kóng. Í gleði þessari klæðast kon- ur ævinlega íslenskum bún- ingum. Með hverju ári fjölgar þeim körlum sem kaupa sér og klæðast hinum nýja ís- lenska hátíðarbúningi karl- manna. Væntanlega kemur frumkvæðið oft frá konum þeirra í þessu efni sem öðrum. Ef til vill verður slíkur klæða- burður orðinn formleg skylda innan fárra ára. Ellefu kvenna nefnd undir- býr blótið hverju sinni. Að sögn Kristínar Gunnarsdóttur, sem var formaður nefndarinn- ar að þessu sinni, hefur reynsl- an sýnt að þetta er hæfilegur fjöldi enda eru verkin mörg. Auk þess er gott að standi á stöku þegar greiða þarf at- kvæði um álitamál. Konurnar annast öll skemmtiatriði, sem eru heimatilbúin fyrir þetta tilefni eins og vera ber. Þær semja og flytja leikþætti og gamanmál og aðra skemmtan. Alltaf er fluttur nýr Bolungar- víkurbragur um lífið í bænum og undir lokin eru sungnar vísur um konurnar sjálfar í nefndinni. Þegar borð eru tek- in upp leikur Hjónabandið fyr- ir dansi. Nafnið á hljómsveit- inni getur ekki talist með öllu óviðeigandi við þessar að- stæður. Matur er etinn úr trogum sem komið er með að heiman. Um borð í trogunum ríkir sama ræktarsemin við gamlar hefðir – áhöfnina skipa hákarl og harðfiskur, hangikjöt og svið og brauð og smér og ann- að sem við á að éta. Konur sitja öðrum megin borðaraða en karlar andspænis og sam- neyta þeim úr trogunum. Þegar áti og gamanmálum lýkur eru borð tekin upp svo dansa megi. Körlum er gert að hjálpa til við nýskipan borða og stóla. Það er eina viðvikið sem þeim er treyst fyrir í allri framkvæmdinni enda reynir þar eingöngu á vöðvastyrk. Kristín Gunnarsdóttir verð- ur aldrei aftur valin til for- mennsku í undirbúnings- nefndinni. Ástæðan er þó ekki sú, að hún hafi reynst svo vondur formaður, að henni sé ekki treyst framar. Það er aftur á móti ein hefðanna, að kona verður aðeins einu sinni á lífs- leiðinni formaður í þessari nefnd. Á hverju ári er líka endurnýjað hæfilega í nefnd- inni, þannig að ferskleiki blandist reynslu. Annað er ekki vitað en körl- um líki mætavel forsjá og for- staða kvenna í þessum efnum. Þorrablótið í Bolungarvík er „besta þorrablót í heimi“ eins og kunnur Bolvíkingur komst að orði á laugardag og gat naumast hamið sig fyrir til- hlökkun. Jafnvel er ekki hægt að fullyrða nema einhverjir einhleypingar eigi sér leyndan draum um bolvískan kvenkost – þó ekki væri til annars en að komast á þorrablótið. Með- fylgjandi myndir voru teknar á þorrablótinu. 04.PM5 19.4.2017, 09:0913

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.