Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 1

Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 1
Dularfulli Íslands- meistarinn – rætt við Helga Ólafsson um skák og prentsmiðjustörf, sjómennsku og verkalýðsmál – og um Hólmavík. Sjá miðopnu. Miðvikudagur 31. október 2001 • 44. tbl. • 18. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk Heldur meira líf en áður á fasteignamarkaðinum á Ísafirði „Gleðilegt að yngra fólk skuli vera að kaupa hér eignir“ Fasteignasala á Ísafirði og í Hnífsdal virðist heldur hafa glæðst á allra síðustu vikum. Tryggvi Guðmundsson fast- eignasali á Ísafirði segir að hér sé að vísu ekki um neinn stóran kipp í sölunni að ræða. „Engu að síður er það gleði- legt að fólk skuli vera að kaupa hér eignir og þá ekki síst yngra fólk.“ Þeim Tryggva og Arnari Geir Hinrikssyni fasteignasala á Ísafirði ber saman um að spurn eftir hús- næði á Suðureyri hafi verið mikil í sumar. „Þar seldist allt sem á annað borð var til sölu“, segir Arnar Geir. Fjármunir sem veittir voru til viðbótarlána í Ísafjarðarbæ frá Íbúðalánasjóði á þessu ári gengu til þurrðar í haust. Fyrr í þessum mánuði tilkynnti Íbúðalánasjóður að Ísafjarð- arbær hefði fengið 8 milljónir króna aukningu á kvóta sínum á viðbótarlánum til íbúða- kaupa á árinu. Heimildinni fylgdi sú kvöð að Ísafjarðar- bær greiði 5% af úthlutuðum viðbótarlánum í Varasjóð við- bótarlána. Bæjaryfirvöld hafa vegna þessa samþykkt 400 þúsund króna aukafjárveit- ingu er fjármagnist með lán- töku. Viðbótarlán sjóðsins hafa stuðlað að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar og væntanlega átt þátt í því að hafa hemil á verðlækkunum. Jafnframt hafa þau orðið til þess að fleira ungt fólk festi sér húsnæði í bænum. 44.PM5 19.4.2017, 09:461

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.