Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Blaðsíða 6

Vinnan - 01.09.1945, Blaðsíða 6
HERMANN GUÐMUNDSSON: Ferð til Svíþjóðar og Noregs í júlímánuði mættum við tveir, Eggert Þorbjarnarson og greinarhöf., sem fulltrúar frá Alþýðusambandi ís- lands á ráðstefnu verkalýðssambanda Norðurlanda, sem haldin var í Stokkhólmi sunnudaginn 15. júlí. Þar sem þetta er fyrsta ráðstefna norræns verkalýðs, sem haldin hefur verið eftir að styrjöldinni lauk, má ætla að margur hafi áhuga fyrir því, sem þar gerðist, svo og frétta almennt frá sænsku verkalýðshreyfingunni, og þá ekki síður frá þeirri norsku. Þá er þetta greinarkorn og ritað með það fyrir aug- um að skýra frá gerðum nefndrar ráðstefnu og gefa lesandanum ofurlitla innsýn í það, er við sáum, og það sem við urðum vísari um í þessari ferð og snertir sænskan og norskan verkalýð. Ráðstefnan í Stokkhólmi Til Svíþjóðar fórum við í flugvél frá flugvellinum á Reykjanesi og komum til Bromma-flugvallarins við Stokkhólm eftir 7 klukkustunda flug. Snemma morguns eftir komuna til Stokkhólms mætt- um við í fundarsal sænska Alþýðusambandsins, sem er í einu af mörgum stórhýsum þess við Barnhusgatan í Stokkhólmi. Mættir voru auk okkar Islendinganna fulltrúar frá Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Ráðstefnan hófst kl. 10 eins og ákveðið hafði verið með því að forseti sænska Alþýðusambandsins, August Lindberg, flutti ræðu og bauð fulltrúa velkomna, síðan var tekið fyrir fyrsta málið, sem var stofnun hins nýja alþjóðasambands verkalýðsins, sem stofnað verður í París í haust. Um þetta mál urðu svo sem vænta mátti miklar um- ræður og sýndist sitt hverjum, eins og oft vill verða, en að umræðum loknum var einróma samþykkt, að ráð- stefnan lofaði hverja tilraun sem gerð væri til að sam- eina verkalýðinn og teldi ríka þörf fyrir sterkt al- þjóðasamband verkalýðsins. Annað málið, sem tekið var fyrir, var skýrsla um störf alþjóðlegu verkamálaskrifstofunnar. Skýrsluna flutti Gunnar Andersson, varaforseti sænska alþýðu- sambandsins; var hann nýkominn frá Ameríku þar sem hann kynnti sér þetta mál. Engin samþykkt var gerð í máli þessu. Þriðja og síðasta málið, sem ráðstefnan tók fyrir, var samvinna verkalýðsins á Norðurlöndum, og var það sjáanlega það málið, sem fulltrúarnir höfðu mestan áhuga fyrir, því í því máli töluðu flestir. Voru allir, sem töluðu, sammála um að nauðsyn bæri til þess að treysta nú sem bezt böndin, sem losnað höfðu á styrj- aldarárunum. Samþykkt var að næsta ráðstefna verkalýðssam- banda Norðurlanda yrði haldin í Danmörku, og er gert ráð fyrir að sú ráðstefna verði haldin snemma á næsta vori, 1946. Að ráðstefnunni lokinni hélt sænska Alþýðusamband- ið hóf fyrir fulltrúa ráðstefnunnar í hinu rauða her- bergi, sem Strindberg hefur gert frægt og er í „Berns restaurant“. í þessari veizlu vorum við kynntir • fyrir mörgum forustumönnum og áhrifamönnum í hinum sænska og finnska stj órnmálaheimi. Sænska Alþýðusambandið Þar sem ráðstefnan stóð aðeins yfir einn dag, höfð- um við nægan tíma til þess að gefa okkur að hinu öðru aðalmarkmiði í þessu ferðalagi okkar, en það var að kynnast sem bezt sænsku verkalýðshreyfingunni. Vorum við um tíma daglegir gestir í aðalskrifstofum sænska Alþýðusambandsins og komum þar stundum oft á dag til að afla okkur upplýsinga og ekki stóð á Sví- unum, þeir voru ávallt reiðubúnir til þess að láta okk- ur í té hverjar þær upplýsingar, er við óskuðum eftir. Fara hér á eftir nokkur atriði er snerta sænskan verkalýð: Sænska Alþýðusambandið er í því ólíkt Alþýðusam- bandi Islands, að verkalýðsfélögin ganga ekki beint í það, heldur er sænska alþýðusambandið myndað af hinum mörgu samböndum, sem verkalýðsfélögin í hverri einstakri starfsgrein mynda, t. d. sambandi námuverkamanna, sambandi járnbrautarverkamanna o. s. frv. Alþýðusambandið er stofnað árið 1899 af 16 sam- böndum, sem höfðu innan sinna vébanda 664 félög með samanlegt 37523 meðlimi. í fyrra, 1944, eru í Alþýðusambandinu 46 sam- bönd með 8336 félög, sem höfðu samanlagt 1069317 meðlimi. Framh. á bls. 182 180 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.