Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Blaðsíða 15

Vinnan - 01.09.1945, Blaðsíða 15
hin snauða verkamannastétt fer vaxandi verður aga- samara í þjóðfélaginu. Afnemi maður verzlunina sýkist þjóðfélagið; vaxi verzlunin og dafni, fjölgar verka- mannastéttinni, sem á sér rétt til hnífs og skeiðar og getur á hverri stundu misst alla staðfestu.... Sérhver verksmiðjueigandi lifir í verksmiðju sinni eins og stór- jarðeigandi meðal þræla sinna, stéttirnar eru hlutfalls- lega eins og einn á móti hundrað. . . . Það er nauðsyn- legt, að millistéttin geri sér þetta ljóst. Auk millistétt- arinnar er öreigalýður, sem er í æstum hug, veit ekki hvað hann vill, hvert hann fer né hverjir eru hagsmunir hans. Hann á illa aðbúð. Hann vill breytingu. Hér er risin upp mikil hætta nútíma þjóðfélagi, ef til vill munu koma upp nýir villimenn, sem steypa þessu þjóð- félagi í rústir. Og millistéttin mundi verða svikin, ef hún léti afvegaleiðast af lýðskrumi og væri svo heimsk, að gefa þessum fjandmönnum vopn og réttindi, ef hún veitti öreigaflóðinu inn í þjóðherinn og stjórn bæjar- félaganna, ef hún gæfi öreigunum kosningarrétt og önn- ur þjóðfélagsréttindi. Hér er ekki um að ræða lýðveldi eða konungsveldi, hér ræðir um að bjarga þjóðfélaginu. Yfirstéttir Evrópu skulfu af ótta fyrir hinum tvístr- aða múg, sem þekkti ekki enn afl sitt allt og vissi ekki enn hvert stefna skyldi. En uppreisnir múgsins voru merki þess, að í iðrum hins borgaralega þjóðfélags logaði eldur stéttarbaráttunnar. Vefarar Schlesíu gera uppreisn 1844 og eru barðir niður með hervaldi. En eitt ágætasta skáld þeirra tíma og skarpskyggnasti at- hugandi, Hinrik Heine, kveður Vefaraljóðið og skynjar framtíðarsigur í óförurn verkamanna. Nokkrum árum síðar birta tveir ungir Þjóðverjar lítið flugrit, þar sem lýst er þróun verkalýðsins og skil- yrðunum fyrir sigri hans. í Kommúnistaávarpinu, sem kom út jafnsnemma febrúarbyltingunni 1848, hafa þeir Marx og Engels fléttað saman stéttarbaráttu verkalýðs- ins og félagshugsjónir sósíalismans: Þeir gera verkalýðsbaráttuna að alþjóðabaráttu og enda ávarp sitt með þessum stoltu orðum: Oreigarnir hafa engu að tapa nema hlekkjunum. En þeir hafa heil- an heim að vinna. Oreigar í öllum löndum sameinist. Gísli Brynjólfsson kveður um „Upphaf frelsishreyf- inganna í Frakklandi 1848.“ Þar segir hann meðal annars: Þungbúi'ð er þrumuhvel, þykka hann setr bakka, blikar sig og býr til jel, til bráðar arar hlakka. Oveðrum sú ógna-röng úr áttu hverri spáir, belja fyrir bleikri strönd brimkviðirnir háir. Atað er kyn og óhreint blóð, í ánauð lýðir stynja, ■ þrungin eitri þokuslóð — þruma verðr að dynja. Gísli Brynjólfsson yrkir einnig um júníbardagana í Parísarborg 23.—26. júní 1848 og er gaman að minn- ast þess nú, að þessi íslenzki menntamaður leggur þá mat á þessa viðburði, sem að framsýni og skilningi ber mjög af dórni flestra samtíðarmanna hans. Þá var böls og blóðug stund, er bani lífið og tróð und fætr, og fagran, ungan frelsis lund feldi um grimmar voða-nætr: þegar frægð og frelsi var í feigðargötum Parísar, skömmu mönnurn unnið aumum aptr kæft í dreyra straumum. Verkamönnum var vinnu heitið, varð að svikum loforðið, aumurn hneit við hjarta skeytið, hamaðist þá serkja lið; fór í brynju, bjóst til varnar, bitrt vígagarða hlóð: „komi börn nú úlfs og arnar auðkýfinga að drekka blóð. Nógu lengi yður unnum, auðardólgar, þér sem æ sitið gnægðir gulls að grunnum, en gagnið hvorki jörð né sæ. Þið, sem ei til annars lifið, enn að kýla vömb í frið, hafið allt til yðar hrifið og okkar sveita nærist við.“ Svo hófst víg, er veröld eigi, vön þó stórum heiptum sé, áðr leit á einum degi, unz að velli lýður hné, háð svo enn í einni borg — öll í blóði flóðu torg — illa Mammons ánauð við og við sjálfra þeirra lið, sem með verzlun, okri, auð armir safna af bræðra nauð. Geystist fram í fjarska styr Frakka borgarlýðr hættinn, þess eg hefi þúsund vættin, að þjóðar múgr aldrei fyr hafði slíkan hermanns sið, að herja drottnar skelfdust við. Verkalýð ei var að frýja vits né hugar — odda klið vildi heldr hafa, enn flýja, harðsnúnastra drengja lið: stóð á girðing sér hver sinni sem í fylking æfðr her, frá eg heldr, fólk enn rynni, féll um þveran annan hver •— það skal hafa þjóð að minni þegar styrjöld lokið er. VINNAN 189

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.