Vinnan


Vinnan - 01.09.1945, Side 26

Vinnan - 01.09.1945, Side 26
Ignazio Silone: FONTAMARA Framhald Eftir allar þessar hrakfarir missti Peppino kjarkinn. Og að lokmn varð hann að sætta sig við sams konar lifnaðarhætti og hinir fátæklingarnir, sem komið höfðu utan úr sveitinni í atvinnuleit. Hann neyddist til að taka að sér lægst launuðu störfin í Rómaborg. Um skeið flæktist hann um göturnar með páfagauk og spáði fyrir fólk. En eftir fáeina mánuði fékk páfagaukurinn ein- hvers konar uppdráttarsýki og hrökk upp af einn góðan veðurdag. Þá fór Peppino að koma sér í kynni við bændurna, sem komu á hverjum vetri til Rómaborgar í atvinnuleit. Hann útvegaði konum þeirra barnfóstru- störf, en bændunum sjálfum útvegaði hann vinnu við að þvo leirtau í veitingahúsum og ýmislegt annað smá- snatt. Um þetta leyti heppnaðist Peppino að komast í kynni við heilagan mann. Sá hét Calogero og var einn af reglubræðrum Berfættlinga. Hinn heilagi maður gerði Peppino að herbergisþj óni sínum. Sá heilagi var vífn- ari en skikkanlegt mun talið um menn á hans aldri og þótti sveitakonur allra kvenna beztar. Peppino fékk ókeypis fæði og húsnæði og auk þess tíu lírur í premíu fyrir hverja sveitakonu, sem hann gat komið upp í til hins heilaga. Fyrsta mánuðinn innti Peppino af hendi skyldustarf sitt af stökustu samvizkusemi og fór eins og þeytispjald um göturnar og lystigarðana, til að reyna að telja vinnukonur og barnfóstrur, sem voru sveita- legar útlits, á að ganga til skrifta hjá herra Calogero. En þó að nógur væri fiskur í sjó, varð aflinn rýrari með degi hverjum. Auk þess komu sveitakonurnar aldrei oftar en einu sinni, eða í mesta lagi tvisvar, til skrifta hjá þeim heilaga, svo að Peppino varð sífellt að afla nýrra fanga. Og til þess að halda embættinu, varð hann að leita á náðir atvinnukvenna. Hann lét þær borða hvítlauk, svo að hinn geistlegi maður áliti að þær væru nýkomnar úr sveitinni. Hinn frómi herrans þjónn upp- götvaði ekki vörusvikin, fyrri en hann var húinn að fá hina illkynjuðustu tegund af kvefi. Þá var Peppino rekinn. Það var eins og ógæfan elti hann. . . . — En af hverju kom hann ekki heim iil Fontamara? spurði Marietta. — Koma heim sem beiningamaður? Nei, það náði engri átt. . . . Hann varð kyrr í Róm, þar sem minna bar á eymd hans, og tók sér margt fyrir hendur. Hann var hringjari, grafari, seldi kort og þvoði leirtau fyrir veitingahúsin. En allt bar að einum brunni. Þúsundir sveitamanna lifa sams konar lífi og hann í Róm. Þeir vinna þau verk, sem aðrir vilja ekki líta við. Þeir standa alltaf á neðsta þrepi mannfélagsins. Þeir verða aldrei annað en kafóníar og hungurvofur. Peppino var í Róm, þegar borgarbúar fóru í kröfu- göngur, sumir með stríði, aðrir móti því, en til þess að þurfa ekki að taka afstöðu í þessu æsingamáli, skauzt hann inn í ofurlitla knæpu nálægt Porta Trion- ale og faldi sig þar. Eftir stríðið fóru borgarbúar í vinnumiðlunarskrifstofuna, en Peppino var fastagestur í veitingahúsi nokkru í öðru borgarhverfi. Stundum hætti hann sér þó út á götuna, til að sjá, hvað gerðist, en það varð honum dýrt spaug. Til dæmis bar það við dag nokkurn, að Peppino sá hóp manna með rauðan fána ráðast á búðirnar við götuna Cola di Rienzo. Hann slóst í för með þessum mönnum og lenti inni í skóbúð, en þegar hann kom út aftur, tók hann eftir því, að hann var með sinn skóinn í hvorri hendi. Þetta voru kvenskór og hvorttveggja vinstri fótar skór. Auk þess hafði, af einhverjum mis- gáningi, slæðzt með honum reiðstígvél á hægri fót. . . . Hvaða gagn gat hann haft af þessum skófatnaði? Það var ekki nema um eitt að ræða: leita að samsvarandi skóm. Hann lagði af stað og spurði hvern, sem hann rnætti, hvort hann hefði fundið skóna. Loks mætti hann prúðbúnum rnanni, sem sagðist skyldi hjálpa honum og bað hann að koma heim með sér. En sá prúðbúni fór ekki með hann heim með sér, heldur lokkaði hann inn á næstu lögreglustöð, þar sem hann var tekinn fastur og ákærður fyrir rán. Og þegar málið kom fyrir rétt, sat hann á ákærðrabekk ásamt mörgum verkamönnum, sem lýstu því yfir, að þeir hefðu tekið þátt í að ræna búðina af „pólitískum ástæðum“. En Peppino sagðist hafa slegizt í hópinn af því að sig hefði vanhagað um skó á fæturna. Þess vegna var hann dæmdur í helmingi lengri fangelsisvist en hinir. Um þetta leyti voru allir, sem drápu menn á götum úti, sýknaðir og meira að segja verðlaunaðir, ef þeir höfðu framið morðið af „pólitískum ástæðum“. En þeir, sem myrtu menn til fjár, af því þeir voru aðfram- komnir af sulti, voru dæmdir til langrar fangelsisvistar. Og eftir langvarandi, heimspekilegar hugleiðingar, komst Peppino loks að þeirri niðurstöðu, að hann hefði verið erkifífl, af því hann hefði alltaf framið afbrot sín af því hann var svangur, en ekki af „pólitískum ástæð- um“. Og nú ákvað hann að snúa sér að pólitíkinni. Þegar hann var leystur úr varðhaldi, var hann leidd- ur fyrir lögreglufulltrúa, sem sagði við hann: — Nú er ekki nema um tvennt að velja. Annað- hvort gerirðu það, sein við segjum þér að gera, eða 2Ö0 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.