Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 6

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 6
Jitterbug? Eiginlega að hverfa. Alda, sem rís og fellur. Tízkufyrir- brigði, eins og „style“-bindi eða misjafnlega síðir kjólar. Smekksatriði, hvort það þykir fallegt eða ljótt, en óumdeilan- lega óþægilegt á venjulegu dansgólfi, þar sem allur fjöld- inn dansar með öðrum hætti. Þaö hefur verið mikiö aö gera á jólaskemmtunum núna aö undanförnu. Já. Við höfum byrjað klukkan þrjú á daginn og úr því hefur verið haldið viðstöðulaust áfram þangað til „Bláa stjarn- an“ hefur komið upp á kvöldin. Hvað vilja börnin helzt dansa? Yngstu börnin panta gömlu dansana, því þeir eru kenndir hjá Rigmor, en þau eldri panta Samba og svo alls konar fín- heit, en það læra þau líka hjá Rigmor. Rigmor Hansson er forláta kennari, þolinmóð, áhugasöm og lagin við börnin. Hún hefur unnið mjög þarft og gott verk hér í bænum undanfarin ár. Annars er ég þeirrar skoðunar, að dans ætti að kenna í efstu bekkjum barnaskólanna. Sá unglingur, sem ekki kann eitt- hvað að dansa, verður alltaf einhvern veginn utanveltu og það er ótrúlegt upp á hverju svoleiðis fólk kann að taka til þess að vekja á sér athygli í hópi jafnaldranna. Svo þú virðist ekki telja dans- inn sérlega syndsamlega íþrótt? Nei, þvert á móti. Það er mjög falleg sjón að sjá prúð- búið, glatt, dansandi fólk. Ef hann slær á einhverja syndsam- lega strengi, þá eru þeir trúlega til staðar í sjálfum okkur og myndu hljóma með öðrum — og e. t. v. ekki viðkunnanlegri — hætti, ef ekki væri dansað. Auðvitað getur dansinn líka orðið ljótur, eins og reyndar allt annað gott, sem mögulegt er að misnota, en það er ekki hans sök, fremur en veizluborðsins, sem mögulegt er að borða af sér til bölvunar. Reyndar er dansinn, eins og þú veizt, ekki nýr, heldur ævaforn þáttur í lífi okkar mannanna, sem fylgja mun okkur meðan eðlið er óbreytt. Finnst þér ekki, eins og mér, gaman að heyra aftur görnlu slagarana, sem við dönsuðum viö fyrstu kœrusturnar? Jú, blessaður vertu. En við erum ekki einir um það. Oft kemur fyrir, að miðaldra hjón koma allt í einu á dansleik og biðja okkur um einhvern eld- gamlan slagara, lagið, sem þau dönsuðu fyrst saman. Þá leitar maður í pokahorninu og svo eru gömlu kynnin rifjuð upp. Það er gaman að sjá, hvernig eitt gamalt lag getur gerbreytt gömlu fólki og gefið því aftur eitthvað af horfinni æsku — og ást. Jú, gömlu lögin. Þau gleymast ekki. Annars endurvekja kvik- myndir oft gömul lög og hefja þau á ný til fyrri dýrðar. Svo verða nýju lögin gömul lög, og hver veit nema þau tvö, sem í kvöld stíga fyrstu danssporin eftir nýju lagi, komi einhvern tíma löngu seinna og segi við nýjan hljómsveitarstjóra: „Viljið þér ekki spila þetta fyr- 4 HEIMILISPÓSTURINN

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.