Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 31

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Blaðsíða 31
Ég vaknaði snemma næsta morgun. Ég ákvað að virða fyrir mér verksummerkin í dagsbirt- unni, og áður en konan, sem gætti hússins, kæmi. Þegar ég kom út, sá ég að það hlaut að hafa snjóað mikið um nóttina, því að hvorki sáust bílför né spor. Ég furðaði mig líka á því, að ég hafði skilið lykilinn eftir í bílskúrhurðinni. Ég opnaði hurðina og fór inn. Skúrinn var tómur. Engin bifreið, enginn dauður maður, ekkert. Það var .svolítið vax á gólfinu, þar sem ég hafði misst kertið; það var eini votturinn um það, að ég hefði komið þarna áður. Eitt af tvennu hlaut að hafa gerzt: annaðhvort hafði bifreiðin ver- ið sótt um nóttina eða ég hafði sofnað hjá arninum og mig dreymt allt saman. Þá mundi ég eftir viskíglös- unum. Þau áttu að vera í dagstof- unni. Og þau voru þar, öll þrjú. Þetta hafði þá ekki verið draum- ur, bifreiðin hafði verið sótt, en þeir sem sóttu hana hafa hlot- ið að fara ákaflega hljóðlega. Stúlkan hafði skilið glasið sitt eftir á arinhyllunni og það sá- ust á því nokkur greinileg fingraför. Sum förin voru eftir mig, því að ég hafði sótt glös- in fram í eldhúsið. En hennar fingraför voru hrein og mín fit- ug úr vélinni, og það var auðvelt að þekkja þau í sundur. Þetta glas hlaut að vera mikilvægt sönnunargagn. Það var augljóst mál, að morð hafði verið fram- ið, og stúlkan hlaut að vita eitthvað um það, enda þótt hún hefði ekki framið það sjálf. Þessvegna hlaut ég að fá lög- reglunni glasið í hendur, og ég bjó því vandlega um það í göml- um kexkassa, sem ég fann í búrinu. Konan kom, og ég borgaði henni það, sem ég skuldaði fyrir kvöidverðinn og gistinguna. Síð- an hélt ég til borgarinnar og hitti eiganda sumarhússins og' sagðist láta hann vita, ef ég hyggðist taka það á leigu. Því næst hélt ég til London og fór rakleitt á fund vinar míns, sem starfaði í Scotland Yard. Ég sýndi honum glasið og spurði, hvort hann gæti komizt að því, eftir hvaða manneskju þessi fingraför væru. Hann taldi það ólíklegt, en sendi þó eftir fingra- farasérfræðing leynilögreglunn- ar. Eftir stundarkom kom sér- fræðingurinn aftur inn til okkar með skjalabunka. Lögreglan kannaðist við stúlkuna. Mér var sagt nafn hennar og sýnd mynd af henni. Hún hafði verið tals- vert laus í rásinni, að því er virtist. Hún hafði í fyrstu gerzt sek um smáþjófnað úr verzlun- um, en síðar orðið meðlimur í bófaflokki. Vinur minn sagði mér, að tveim bófaflokkum hefði lent saman og einn maður verið drepinn. Hún hafði komið hon- um burt í bifreið, en bifreiðin hafði bilað einhversstaðar í Norfolk. Þá hafði hún skilið bifreiðina og dauða manninn eftir í einhverjum bílskúr og haldið áfram til Norwich með vörubíl. En hún hafði aldrei komizt þangað. Bíllinn hafði runnið til á veginum, og bæði hún og bílstjórinn — Willi^ms að nafni — höfðu kastazt út og lent með höfuðið á grjót- :heimilispösturinn 29

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.