Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 14

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Síða 14
er bæði var andheitur og fjölfróður, og fékk hann tvo kunnáttumenn í lið með sér, Hrafn og Erlend. Þuríð- ur var mjög mótfallin móður sinni fyrir hönd föður síns, og tók hana sárt til hans. Séra Árni á Skorrastað og föru- nautar hans lögðu úr Norðfirði á báti til Loðmundarflóa. Brá þá svo við, að sækja fór að Imbu í Nesi; gat hún ekki haldið sér vakandi og sofn- ar. Þeir prestur lögðu að landi í Hundavogi, niður frá bænum í Nesi, bundu þar bát sinn og gengu upp læk þann, sem fellur meðfram bæjar- vegg og þar ofan í voginn, utan við hlaðvarpann. 1 því vaknaði Imba og kom blaðskellandi út. Þeir heilsa henni virðulega. Hún tekur því dræmt og segist vita erindi þeirra, ,,og skul- uð þið koma inn“. Þeir færast und- an, og kveðst hún þá vænta þess, að þeir hitti hana, þegar þeir komi aftur frá Seljamýri. Því játtu þeir. En hún gengur inn síðan og sofnar fast. Þeir fara nú í Seljamýri og biðja prest að búa sig fljótt, ,,því að við viljum vera komnir sem lengst, þegar kona þín vaknar“. Klerkur brá við skjótt; fóru þeir sömu leið í Nes og gengu ofan sama lækinn, stigu á skip og reru bakföllum austur í fióann. Þegar þeir eru komnir í hvarf við bæinn, vaknar Imba, dæsir við og segir: „Nú munu þeir vera komnir hjá og hafa þeir eigi efnt orð sin. Er of mikið sofið.“ Gengur hún þá Út á hlað, fer viðrandi með aðra hönd uppi, en hina niðri, og tautar: ,,Hér hafa þeir farið, hér hafa þeir farið.“ Þetta lét hún ganga að lækn- um. En þar missti hún ferilsins. Geng- ur hún þá ofan á Hundavogsklapp- ir, snuðrar og viðrar sem fyrr segir: „Jú, rétt er það, hér hafa þeir stigið á skip. En þeir eru ekki alveg sloppn- ir að heldur.“ Gekk hún þá heim og var þung á svip; tekur hún nú 12 til kunnáttu sinnar. Þegar þeir félag- ar koma suður undir Dalatanga, hvessir svo á móti þeim, að þeim steinmarkar varla. Það fylgir og, að á móti þeim kemur hrafnager, með nef og klær af járni, og sækir að þeim; verða þeir að verjast með ár- um og því öðru, er tiltækt var. Þá sezt klerkur í stafn og segir: „Á, þetta getur hún þó!“ Hrafn lét húfu sína koma á skutstafn; hurfu þá hrafnarnir. Séra Ámi lá á bæn. Varð þá svo, að lognrák gerði fram und- an bátnum, og reru þeir i rákinni, unz þeir lentu í Norðfirði. Lét prest- ur þá ná þrem gæðingum, og riðu þeir Ámi prestur Jónsson og Hrafn sem mest þeir máttu til Skorrastað- ar. Varð þá fyrir þeim fyrsta send- ing Imbu, og komu þeir henni fyrir. Síðan komu fjórar draugasendingar frá Imbu, og gengu þeir frá þeim öllum í dýi einu, sem síðan heitir Draugadý eða Djöfladý. Meðan stóð á ásóknunum, svaf Árni prestur Sig- urðsson einatt fyrir framan nafna sinn. Loks gátu þeir félagar komið Árna presti Jónssyni í enska duggu; fór hann til Englands og er úr sög- unni. Eftir hvarf séra Árna, ól Imba megna þykkju til séra Árna á Skorra- stað. Gerði hún eitt sinn galdraveð- ur að honum á sjó, en hann var svo bænheitur, að ekki sakaði. — Mörgum sinnum ónýtti Þuríður kunn- áttubrögð móður sinnar, og gramdist Imbu það mjög. Kvað svo rammt að því, að sagt er, að hún hafi leitazt við að fyrirkoma Þuríði. Eitt sinn, er Þuríður bjó sig heiman og var að spenna linda að mitti sér, þrífur Imba lindann og segir: „Lof mér að stytta þig, barnið mitt.“ Brá hún svo lindanum að mitti Þuríðar, og féll hún jafnskjótt niður froðufell- andi. Það varð henni til lífs, að þar kom maður aðvífandi, sem hún lét HEIMILISPÖSTURINM

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.