Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 15

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 15
spretta af sér lindanum. Imba bjó í Nesi, áður en Þuríður tók þar við. Vestanvert við bæinn er gamall torf- hringur, er rúma myndi hundrað fjár eða meira. Er það sögn manna, að þar mjaltaði Imba ær sínar, og heitir þar enn „kvíamar hennar Galdra- Imbu". Það var trú manna, að Þuriður væri jafnoki móður sinnar að kunn- áttu, en neytti hennar varla nema í nauðsyn eða til bjargar öðrum mönnum. Var hún þó oft kölluð Galdra-Þura, og hlaut það af móður sinni. Þuriður hafði gifzt manni, að óvilja móður sinnar. Hann hét Guðmundur, og bjuggu þau í Nesi. Allaf sat Imba um að gera honum illt, en Þuríður varði. Eitt sinn, er Guðmundur var á sjó, gerði Imba honum veiki, svo að hann reri að landi án vitundar Þuríðar, lenti í villu, reri upp á sker- flúðir þær, sem nefnast Bökur, og fórst þar í logni og sléttum sjó. Þuriður giftist aftur Guðmundi Oddssyni, Jónssonar, og bjuggu þau í Nesi.*) — Það bar til einn páska- dag, að Oddur, sonur þeirra hjóna, var að leika sér og lét fremur ósið- samlega. Sló þá faðir hans hann og kvað ljótt að sjá, hvernig hann hag- aði sér. Galdra-Imba var hjá þeim Guðmundi. Féll henni þetta illa, því að Oddur var eftirlæti hennar. Kvað hún óvíst, að Guðmundur yrði oft til að berja hann. Fé var niðri í Hellis- fjörum, og var lausasnjór mikill i bakkanum. Guðmundur gekk ofan í fjöruna til kinda sinna. Þuriður vissi af ferðum hans, settist á hlaðvarp- ann og starði ofan á bakkann. Þá bar að ferðamann nokkurn, er var kimnugur Þuríði, og bað hana gefa sér að drekka. Hún kvaðst skyldu *) Hann var raunar eini maður Þuríðar. ,,Eg hringdi og hringdi, en það var alltaf á tali, og svo gat ég ekki beð- ið lengur með bónorðið." gera það eftir litla stund. Hann spurði, hvað hún væri að stara, og bað hana gefa sér strax að drekka. Hún kvaðst eigi gera það strax. „Það er þá af því, að þú tímir ekki að gefa mér að drekka," sagði hann. Hún styggðist við, sagði, að hann skyldi að vísu fá að drekka, en ekki myndi hún hljóta gott af. Hljóp hún inn og kom að vörmu spori aftur með drykkinn. Þá sá komumaður, að Guðmundur kom upp í bakkabrún- ina, en þá hljóp bakkinn allur með Guðmund út á sjó. Þuríður kvað hann nú sjá, hvað hlotizt hefði af áfengju hans. Margar sögur aðrar eru af Galdra- Imbu, fjölkynngi hennar, hrekkjum og illvirkjum, en hér verður látið staðar numið. Frá henni er komin mikil ætt á Austurlandi og margt merkra manna, og er sá ættbálkur við hana kenndur. Pétur Sigurðsson. HEIMILISPÓSTURINN 13

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.