Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 19

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Side 19
nema aðeins einn af þessum 45 mönnum, (einn á hverri enskri mílu) gerði þá skyssu, að of- fylla sinn hluta leiðslunnar, voru líkindi mín til að halda lífi að engu orðin.. Mér virtist hraðinn á vatns- flaumnum aukast, eftir því sem lengra leið. Ég reyndi að gera mér grein fyrir þyí, hve hratt ég færi og hve langt ég væri kominn, með því að telja loft- hólfin, sem rennslisjöfmmar- „hanarnir" eru settir á, en mér fipaðist fljótlega. Tvisvar sinn- um fann ég, að jakkinn minn rifnaði, þegar ég rakst á ein- hverjar hindranir í leiðslunni, og nokkrum sinnum færðist ég í kaf, þar sem leiðslan lá í halla. Ég bað til guðs, heitar en ég hafði nokkru sinni áður beðið, að ég fengi að halda meðvitund- inni, því lífsvonin var nú tekin að bærast í brjósti mínu. Ef ég missti meðvitundina meðan á þessari ógurlegu ferð stæði, vissi ég, að úti væri um mig. Mér skildist, að með þeim ógurlega hraða, sem var á vatnsflaumn- um, gat ferð mín varla tekið mjög langan tíma, — en 70 kíló- metrar eru óraleið í svarta- myrkri og ísköldu vatni. Eitt sinn, er ég hafði nýfarið gegnum lofthólf og var að þeyt- ast inn í næstu mílu vatnsleiðsl- unnar, fann ég, að höfuðið straukst við mæni hinnar hvelfdu leiðslu. Ég hélt, að dagar mínir væru taldir, því að ég bjóst við, að vörðurinn við síð- ustu rennslisjöfnunarstöð hefði látið leiðsluna offyllast. En samt sem áður aðeins ein ensk mila! Ætli ég geti ekki haldið niðri í mér andanum svo lengi? Með tilliti til hins ógurlega hraða vonaði ég það og andaði eins djúpt að mér og ég gat. Ég setti hendurnar fyrir andlit- ið, til að verjast meiðslum af hnoðnöglunum, sem stóðu víða út úr, þar sem samskeyti voru á leiðinni, og fól mig forsjóninni. En til allrar hamingju reyndist ótti minn ástæðulaus; maðurinn hafði gegnt skyldu sinni, því sex þumlunga loftrúmið hélzt áfram. Vonin vaknaði aftur og, svo undarlegt sem það má virð- ast, fór ég að velta því fyrir mér, hvað ég ætti að gera nú, þegar vinnan við stífluna var búin! Mér datt í hug svipurinn á konunni minni, þegar ég segði henni frá þessu ævintýri mínu. Hún er eins og fleira fólk sem trúir því, að ekkert spennandi gerist nema í skáldsögum. Mér fannst ég næstum því sjá furðu- svipinn á fólkinu, þegar ég kæmi á feygiferð út í tjömina í lysti- garðinum. Ég býst við, að ég hafi verið farinn að ruglast í höfðinu af hraðanum og kalda vatnið hafi deyft heilastarfið, ég hlýt að hafa verið hálf-með- vitundarlaus, því það næsta, sem ég man, var, að ég barst með straumnum nokkra hringi í stórri stálkúlu. Tvisvar fór ég framhjá opinu, þar sem vatnið streymdi út úr hringiðunni inn í leiðsluna, en þegar ég nálgað- ist opið næst, hreif straumurinn mig út og ég sogaðist inn í vatnsgöngin og hélt áfram hinni óttalegu ferð minni. Ég man ekki skýrt, hvað gerðist næst, en minnist þess, að jakkinn og skyrtan tættust af mér, og ég fann til sárra, stingandi kvala um brjóstið og lendarnar. Kval- irnar stöðvuðu draumkennd HEIMILISPÓSTURINN 17

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.