Heimilispósturinn - 16.02.1951, Page 34

Heimilispósturinn - 16.02.1951, Page 34
HEIMILIS PósTuRINN KVIKMYNDAOPNAN AUSTURBÆJARBÍÓ : „SægamimiriniT (The Sea Hawk). Aðalhlutverk: Errol Flynn, Claude Rains, Brenda Marshall. Á sextándu öld var uppi í Englandi maður, sem gat sér mikinn orðstír vegna framúrskarandi dirfsku og karlmennsku. Hann var nokkurs konar Hrói höttur hafsins, og var hann kallaður Sægamm- urinn. Hann rændi spönsk skip, sem voru á heimleið hlaðin gulli og dýrmætri vöru, og sigldi síðan með farm sinn til Englans og fyllti hinar hálftómu fjár- hirzlur Bretaveldis. Á einni af þessum ævintýralegu ferðum sínum, hertekur hann skip, sem er á leið til Spánar. Spánski sendiherrann og ensk frænka hans eru farþegar með skip- inu. Sægammurinn verður ástfanginn af stúlkunni. Drottning Englans lætur opinberlega í ljós vanþóknun sína yfir þessu afreki Sægammsins, en í kyrrþey sendir hún GAMLA BÍÖ : Ástríðufull vinátta (The Passionate Friends) Ensk kvikmynd frá Cineguild Productions (J. Arthur Rank). Aðal- hlutverkin leika: Ann Todd, Claude Rains og Trevor Howard. Hinn heimskunni enski rithöfundur H. G. Wells, sem látinn er fyrir aðeins fáum árum, var óvenju hugmyndaríkur og fjölhæfur rithöfundur. Kunnastur mun hann vera fyrir hina merku mannkyns- sögu sína svo og skáldsögur um vísindi og tækni, eins og „Styrjöld hnattanna“, ,,Tímavélina“ og „Ósýnilega manninr.“. Hann reit einnig gamansögur og ástar- sögur. Til þeirra síðast nefndu heyrir sag- an „The Passionate Friends", sem nú hef- ur verið kvikmynduð. Kom sagan út 1913 en hefur verið „yngd upp“ fyrir kvik- myndina, því hún er látin gerast rétt fyrir og eftir heimsstyrjöldina siðari. Sagan segir frá ungri og metorða- gjarnri stúlku, sem getur valið á milli auðugs bankamanns og fátæks visinda- manns, er hún elskar. Hún velur auðinn og öryggið, sem honum er samfara. En forlögin haga því svo að fundum henn- ar og vísindamannsins ber saman hvað eftir annað, og þau fá ekki bælt niður hina ástríðufullu ást sina. Myndin er hrífandi og prýðilega leikin. Ungu stúlk- una leikur Ann Todd, sem öllum mun ógleymanleg er sáu hana í myndinni „Síðasta hulan“. Eiginmanninn leikur hinn kunni skapgerðarleikari Claude Rains. Elskhugann leikur Trevor Howard, sem er lítt þekktur leikari hér, en sýndi framúrskarandi leik nýlega, í hlutverki enska lögregljiforingjans í myndinni „Þriðji maðurmn". Töku myndarinnar stjórnaði David Lean, einn af listfeng- ustu kvikmyndastjórum Breta. Hann vakti fyrst athygli á sér með Noel Coward-myndunum „Ærsladraugurinn" og „Stuttir endurfundir", og frægur varð hann fyrir Dickens-myndirnar „Glæsileg framtíð" og „Oliver Twist“. Myndin „The Passionate Friends“ verður innan skamms í Gamla Bíó. hann til þess að reyna enn að ræna gulli frá Spánverjum. Spánverjar verða þess vísari, og þeim tekst að taka Sægamminn höndum, og er hann látinn um borð í spánska galeiðu. Honum tekst þó að losna úr hlekkjunum og ráða niðurlögum varðmannanna, og TJARNARBIÓ: EVA Sjá mynd á bls. 29 hér að framan. Birger Malmsten og Eva Stiberg. Þegar myndin hefst er Bo ungur dreng- ur, sonur umsjónarmanns á lítilli járn- brautarstöð. En dag nokkurn þegar Bo er 12ára gamall verður hann ósáttur við föð- ur sinn, og strýkur að heiman og hundur- inn fylgir honum. Hann hittir af tilviljun umferðaleikara- flokk frá Tyrol og slæst í fylgd með flokknum. Foringi flokksins á litla dóttur á svipuðu reki og Bo, en hún er blind. — Eitt sinn þegar leikararnir eru viti sínu fjær af drykkju strjúka þau Bo og blinda stúlkan og er hundurinn í fylgd með þeim. Bo tekur gamlan járnbrautarvagn sem hann hafði oft áður leikið sér að aka, en vagninn fer út af teinunum og veltur nið- ur fyrir kletta. — Bo bjargast óskaddaður, losar síðan hina galeiðuþrælana úr bönd- um. Hefst nú grimmilegur bardagi við yfirmenn skipsins, og tekst Sægammin- um og mönnum hans loks að ná skipinu á sitt vald. Með hreysti sinn og dirfsku tekst honum að bjarga brezka sjóhernum úr úlfaklípu. Drottningin aðlar Sægamm- inn í þakklætisskyni fyrir afreksverk hans, og honum tekst að vinna ástir frænku sendiherrans. Kvikmyndin „Sægammurinn“ er byggð á samnefndri skáldsögu, eftir hinn heims- fræga rithöfund Rafael Sabatini. Hún hefur komið út í íslenzkri þýðingu fyrir nokkrum árum. en blinda stúlkan og hundurinn biða bana samstundis. Bo fer heim til sín á ný. — En hann get- ur aldrei gleymt þessum hræðilega við- burði. En árin líða og Bo vex upp. — Hann kemst að á flotanum og verður þar hljóð- færaleikari og síðal leikur hann í dans- hljómsveit í Stokkhólmi. — Eitt sinn þeg- ar hann var á flotanum, kom hann heim í orlofi. Hann hittir þá leiksystur sína, Evu, — og hann gerir sér ljóst að hann elskar hana og hún hann. En þegar hann kemur og heimsækir hana hittist svo á að afi hennar er að gefa upp öndina. — Dauðinn virðist ávallt vera í fylgd með ástinni.— að því er Bo snertir. 1 Stokkhólmi býr hann ásamt stjórn- anda hljómsveitarinnar sem hann leikur í. Kona hljómsveitarstjórans vill daðra við Bo. — en Bo vill ekkert með hana hafa. — Hann slaist við vin sinn, hljómsveitar- stjórann, og nóttina eftir dreymir hann að hann hafi drepið hann á gasi. — En Eva kemur til Stokkhólms og frelsar Bo, — þau giftast og flytja á afskekktan stað í skerjagarðinum og Eva á von á barni. — Þrem vikum áður en barnið á að fæð- ast, rekur lík drukknaðs sjómanns upp að ströndinni fyrir utan heimili þeirra. — Bo verður skelfingu lostinn. — Ætlar ógæf- an aldrei að yfirgefa hann. Eva sér lík sjómannsins og fyllist skelfingu. Barnið fæðist fyrir tímann, og þegar hún kennir sín fer Bo með hana á litlum trillubát til ljósmóðurinnar. Gamall sjómaður stýrir bátnum. Þau fá vont veður á leiðinni, og nú rifjast allt líf Bo upp fyrir honum. — Eva eignast hraustan 14 marka strák og allt fer því vel um síðir.

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.