Vinnan - 01.11.1985, Side 1
vmnan
6. tbl. 35. árg. 1985
3% hækkunin hlýtur að
skoðast sem verðbót
Vandað
afmælisrit
Fyrir skömmu kom út vandað
afmælisrit Verkamannasam-
bands íslands er varð tuttugu ára
9. maí 1984.
Þórir Daníelsson, framkvæmdastjóri
VMSÍ, skrifar greinargóða frásögn um
starfið í 20 ár. ítarleg viðtöl eru við
Guðmund J. Guðmundsson, formann
VMSÍ og Karl Steinar Guðnason, vara-
formann VMSÍ. Þá er rætt við Her-
mann Guðmundsson, Björgvin Sig-
hvatsson, Þórunni Valdimarsdóttur,
Ragnar Guðleifsson, Bárð Jensson,
Ágúst Sigurlaugsson, Valdísi Kristins-
dóttur og Pétur Sigurðsson. Þá eru
greinargóðar frásagnir af starfsemi
verkalýðsfélaganna á Húsavík og Vest-
mannaeyjum.
Stefán Júlíusson, rithöfundur, skrif-
ar um verkamannabústaði og Elísabet
Þorgeirsdóttir skrifar um fjórar bækur
er fjalla um verkafólk.
Þá eru hringborðsumræður um stöðu
VMSÍ og verkafólks almennt. Ástæða
er til að hvetja fólk til að lesa þetta af-
mælisrit því að ritstjórnin gerði sér far
um að fá fram í dagsljósið sem fjöl-
breytilegastar skoðanir félaga innan
VMSÍ.
Ritinu hefur verið dreift til allra að-
ildarfélaga innan VMSÍ, en þau voru 54
árið 1984 og félagsmenn þeirra tæplega
27 þúsund manns.
Eftir að þetta blað var búið til prent-
unar hafa verið gerðir samningar um
3% almenna launahækkun. Þann 9.
október samdi fjármálaráðherra við
BSRB og þann 16. október, samþykktu
atvinnurekendur að sama hækkun
skyldi ganga til ASÍ fólksi
Þrátt fyrir þessa 3% hækkun bendir
allt til þess, að kaupmáttur verði í lok
samningstímans lakari en gert var ráð
fyrir þegar samið var í sumar. 3%
hækkunin hlýtur því að skoðast sem
Stjórn verkamannabústaða í Reykja-
vík er nú að byggja 137 íbúðir íÁrtúns-
holti og hafa þegar flutt inn 30—40
fjölskyldur, en áætlað er að verkinu
verði fulllokið í ágúst 1986. Þá er verið
að byggja 31 íbúð í Neðstaleiti 2—4 (sjá
meðfylgjandi mynd frá Húsnæðis-
stofnun ríkisins). Næsta stórátak verð-
ur í Grafarvoginum þar sem þegar er
verðbót, þ.e. kauphækkun uppí verð-
hækkanir umfram áætlanir. í ljósi þess
að ríkisstjórnin hefur ekki megnað að
hamla gegn verðhækkunum hefur hún
þannig samþykkt að greiða viðbótar-
kauphækkun. Með 3% kauphækkun-
inni er staðfest, að nauðsynlegt er að í
samningum séu ákvæði sem tryggi
kaupmátt, standist verðlagsforsendur
ekki.
Sjá ennfremur leiðara á bls. 3 og yfir-
litsgrein á bls. 5.
byrjað á framkvæmdum við smíði 108
íbúða, sem á að verða lokið 1987, en
fyrstu íbúðirnar verða tilbúnar síðari
hluta árs 1986. Stjórn verkamanna-
bústaða í Reykjavík fékk loforð fyrir
byggingu um 200 íbúða í Grafarvogi og
var ákveðið að byggja þar í tveimur
áföngum.
Verkamannabústaðir:
Miklar framkvæmdir