Vinnan


Vinnan - 01.11.1985, Side 30

Vinnan - 01.11.1985, Side 30
Jóhannes S. Kjarval 1885-1930 í tilefni aldarafmælis Jóhannesar S. Kjarvals mun Listasafn alþýðu gefa út þrjár litskyggnuraðir með 36 myndum í hverri og ítarlegum kynn- ingartexta um hvert timabil á starfs- ferli hans. í fyrstu litskyggnubók- inni, sem kemur út, fjallar Björn Th. Björnsson listfræðingur um tímabil- ið 1885—1930, en Hrafnhildur Schram listfræðingur fjallar um tvö næstu tímabil. Þær litskyggnuraðir eru væntanlegar innan skamms. Gerð þessarar litskyggnubókar er afar vönduð og frumleg. Innan venjulegra bókaspjalda eru 36 lit- myndir og 32 síðna bæklingur með ritgerð Björns og ítarlegum frásögn- um af viðkomandi litskyggnum og hverjir eru eigendur myndanna. Engan söluskatt á matvörur! ■ „Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands krefst þess, að hætt verði við öll áform um innheimtu söluskatts af matvælum og varar ríkisstjórqina við þvi að skera með þeim hætti upp herör gegn fólkinu í Iandinu. Launa- fólki hefur þegar verið gert að axla of þungar byrðar og aukin skatt- heimta af almenningi kemur ekki til greina. Fari,ríkisstjórnin sinu fram í þessu efni hlýtur verkalýðshreyfing- in að bregðast við af fyllsta þunga.“ Hvað kostar að lána 70 þúsund í 10 mánuði? Nú vitum við öll, og sum af beiskri reynslu, að lán eru mjög dýr. Ásókn í lífeyrissjóðslán hefur snarminnkað, samanber frétt frá Sambandi almennra lífeyrissjóða á öðrum stað í blaðinu, enda komst einn maður, sem sæti á í stjórn lífeyrissjóðs og var að úthluta, svo að orði: Já, það reyndust nokkrir svo efnaðir að þeir töldu sig hafa ráð á að taka lífeyrissjóðslán! • Við báðum Alþýðubankann að reikna út fyrir okkur hvað kostaði að taka 70 þúsund króna lán, sem greitt væri niður mánaðarlega með lOjöfnum afborgunum. Þeir reiknuðu þetta út fyrir okkur, annarsvegar lán með vísi- tölubindingu og hinsvegar lán með verðbótahluta. Við sjáum af dæmunum að það eru auðvitað verðbæturnar sem kosta sitt. Á 10 mánuðum þurfum við að vinna okkur inn aukalega 12.033 krónur, eða 10.222, til að geta staðið í skilum með lánið. • Við sjáum að ekki má mikið út af bera hjá venjulegum launamanni ef hann á að geta endurgreitt slíkt lán. Við skulum gefa okkur að hann taki auka- vinnu til að eiga auðveldara með að greiða niður lánið. Ef hann fær greiddar 180 krónur fyrir aukavinnutímann, þá þarf hann að vinna í tæpar 70 stundir til að eiga fyrir kostnaðinum við lánið. • Fólk ætti því að hugsa sig um tvisvar ef það er að hugsa um kaup á einhverju sem gæti talist óþarfi, a. m. k. verður slíkt fólk að búa við talsvert atvinnu- öryggi, ef það ætlar sér að standa í skil- um. S. J. Með vísitölubindingu Eftirstöðvar 2,550 0/0 Verðbót 2,550 0/0 Afborgun Est/gre eft Grunnvextir 4,000 0/0 Greiðsla 12 árl 1 70.000 1.785 7.179 238 7.417 9 2 64.606 1.647 7.361 220 7.581 8 3 58.892 1.502 7.549 201 7.750 7 4 52.845 1.348 7.742 180 7.922 6 5 46.451 1.185 7.939 158 8.097 5 6 39.697 1.012 8.142 135 8.277 4 7 32.567 830 8.349 110 8.459 3 8 25.048 639 8.562 85 8.647 2 9 17.125 437 8.781 58 8.839 1 10 8.781 224 9.005 29 9.034 10.609 80.609 1.414 82.023 Með verðbótahluta Eftirstöðvar 32,000 0/0 Verðbótahl. vx 1,917 0/0 Afborgun Est/gre eft Grunnvextir 588 0/0 Greiðsla 12 árl 1 70.000 1.342 7.134 412 7.546 9 2 64.208 1.231 7.271 378 7.649 8 3 58.168 1.115 7.410 342 7.752 7 4 51.873 994 7.552 305 7.857 6 5 45.315 869 7.697 266 7.963 5 6 38.487 738 7.845 226 8.071 4 7 31.380 602 7.996 185 8.181 3 8 23.986 460 8.149 141 8.290 2 9 16.297 312 8.305 96 8.401 1 10 8.304 159 8.463 49 8.512 7.822 77.822 2.400 80.222 30 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.