Vinnan


Vinnan - 01.11.1986, Side 13

Vinnan - 01.11.1986, Side 13
RHfrétfir Iðnaðurinn VINNUNNI hefur borist 5. tbl. 1986 af ,,Iðnaðinum“, tímariti Landssambands iðnaðar- manna. I blaðinu er meðal ann- ars viðtal við Harald Sumar- liðason, nýkjörinn forseta Landssambandsins og bygg- ingameistara um fram- kvæmdalán til húsbygginga. í viðtalinu kemur fram að þrátt fyrir ákvæði í nýjum hús- næðislögum um framkvæmda- lán til byggingaverktaka verða slík lán ekki afgreidd í ár og varla næstu ár heldur. ,,Það veldur auðvitað miklum von- brigðum að nú er upplýst af Húsnæðisstofnun að engin slík lán verði til afgreiðslu á þessu ári og tæplega á því næsta held- ur. Þetta vekur ugg um það að stofnunin ætli að ganga fram- hjá þessum lánaflokki til fram- búðar eins og gert hefur verið, en það er auðvitað óþolandi,“ segir Haraldur í viðtalinu. Þá er í blaðinu fjallað um sýn- inguna „íslenskt hugvit" og fjallað um væntanlega sam- keppni um ný íslensk húsgögn. Þá hefur Landssamband iðn- aðarmanna gefið út litprentað- an upplýsingapésa um starf- semi sína og skipulag. Þar kemur m.a. fram að félagar sambandsins eru alls 3200 — og eru þeir allt frá því að vera einstaklingar og upp í fyrirtæki með 300 starfsmenn. Vinnuvernd í SÍÐASTA tölublaði Frétta- bréfs um Vinnuvernd, sem Vinnueftirlit ríkisins gefur út, er fjallað um skort á öryggis- trúnaðarmönnum á vinnu- staði. í blaðinu kemur fram að á skrám Vinnueftirlitsins eru ekki nema 1100 öryggistrún- aðarmenn og verðir, en í vinnu- verndarlögunum er kveðið svo á að í hverju fyrirtæki þar sem starfa 10 manns eða fleiri skuli kjósa slíka öryggistrúnaðar- menn, og fyrirtækið tilnefna öryggisvörð. Þá er í blaðnu fimmta greinin i greinaílokk um gott starfsum- hverfi og er þar aðallega fjallað um vinnuskilyrði við vélar. Ritstjóri Fréttabréfs um Vinnuvernd er Hörður Berg- mann og er blaðinu dreift ókeypis til öryggistrúnaðar- manna og einnig selt í áskrift. Samningar „TIL ÞESS að ná verðbólgunni frekar niður á næsta ári verða kostnaðarhækkanir og þar með taldar launahækkanir að verða minni á næsta ári en á þessu ári. Að öðrum kosti mun samkeppnisstaða iðnaðarins versna á ný og það myndi fljótt leiða til versnandi afkomu. Það mundi grafa undan þeirri við- leitni fyrirtækjanna að bæta af- komuna með öllum tiltækum ráðum." Svo segir í ritstjórnar- grein septemberheftis „Á döf- inni“ fréttabréfs Félags ís- lenskra iðnrekenda. Þá er í blaðinu fjallað um orkunotkun og gæðamál. Ritstjóri er Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri FÍI. Eftir fórnir launþega: Hvað nú? ALLT FRÁ því hremmingaskeið íslensks efnahags- lífs hófst á síðasta áratug með óðaverðbólgu og öðr- um slíkum fylgifiskum hafa svör ráðamanna og at- vinnurekenda við kröfum launafólks einkennst mjög af hugsjónum sem ekki var vitað til að leynd- ust meðal til dæmis stóratvinnurekenda — sam- stöðu og samvinnu. í öll þessi ár hafa forystumenn þessara hópa boðað það að til að komast úr ógöng- unum þyrfti öll þjóðin að vinna saman. Að stilla þyrfti kröfum í hóf — að ekki væri svigrúm til veru- legra kjarabóta. En hvað blasir við nú er hremmingarskeiðinu er að ljúka — eða allavega farið að sjást fyrir endann á því? Nú hlýtur íslenskt launafólk að fá að njóta langlundargeðsins og nú hljóta atvinnurekendur og aðrir ráðamenn að ganga fram fyrir skjöldu í því að láta þá sem borið hafa byrðarnar af barátt- unni við verðbólgudrauginn og aðra þá skratta sem uppfundn- ir hafa verið til að skýra sífelld- ar árásir á lífskjör verkafólks, njóta nokkurs. Eða hvað? Er samstöðu tímabilinu að ljúka? Finna atvinnurekendur nú þörf á að höfða öllu lengur til samstöðu þjóðarinnar? Táp- ið bárum við sameiginlega — getur verið að gróðann vilji þeir bera einir? Þessi inngangur kann að koma mörgum spánskt fyrir sjónir nú þegar ljóst er að síð- ustu samningar með marg- flóknum efnahagsaðgerðum sem launþegahreyfingin samdi um við samtök atvinnu- rekenda og þessir aðilar knúðu rikisstjórnina til að sam- þykkja, hafa skilað verulegum árangri. Ekki aðeins þannig að verðbólga hafi lækkað stórkost- lega, heldur hefur kaupmáttur farið vaxandi. Og nú standa fyr- ir dyrum samningar þar sem mikið liggur við að haldið verði áfram á þessari braut að kveða verðbólguna endanlega niður og auka enn kaupmátt launa. En eftirfarandi pistill Stefáns Ögmundssonar úr Vinnunni 1944 varpar ef til vill einhverju Ijósi á hvers vegna inngangur- inn hljóinar svo. Við birtum nokkur brot úr grein Stefáns, og byrjum á örstuttri máls- grein úr niðurlagi greinarinn- ar. „Þess varð raunar aldrei vart, að íslensku auðrnennirnir liðu innu líkams- né sálartjón af skorti þessara ára. Þeir hafa að minnsta kosti haldið nægilegri hugarró til þess að ákvarða stefnuna, og grunda svörin, sem hafa skyldi á hraðbergi gegn kröfum verkalýðsins, þegar kreppufleyið væri komið í höfn.“ Pegar stríðinu er lokið þá . . . Alþýða fólks um heim allan, hvaða nafni sem ríkin hétu, báru þyngstan part stríðsbyrð- anna á herðum sér — og á með- an verkafólkið skundaði á víg- vellina til að herja á stéttbræðr- um sínum af öðru þjóðerni og aðrir lögðu nótt við dag við' stríðsframleiðslu og allur þorri almennings leið skort buldi áróðurinn. Saman sigrum við — en það kostar fórnir. En þeg- ar stríðinu er lokið — þá verður heimurinn aftur réttlátur, þá verður enginn skortur. Um þetta sagði Stefán: „Það er ástæðulaust að efast um að þráin eftir friði hefur numið stærri lönd en nokkru sinni fyrr í hugum manna i öllum stéttum, en það væri háskaleg blinda að vanmeta styrk þeirra afla, sem ennþá ráða auðvalds- heiminum, ýmist með stjórn- artaumana í höndum eða vald peninganna, sem þvingun á framkvæmdir þeirra sem stjórnir landanna skipa. Jöfrar auðsins hafa ekki i orði né at- höfn gefið til kynna að þeir muni afsala sér neinu af þeim forréttindum, sem skipulag auðvaldsþjóðfélaga veitir þeirn." Pegar verðbólgan er niðurkveðin . . . þá hvað? Það er kannski ekki fyllilega sambærilegt að líkja hrelling- um þeim sem íslenskt alþýðu- fólk hefur mátt þola af verð- bólgu og öðrum ófögnuði síð- ustu ára, við þær raunir sem dundu yfir mannskepnunni í síðustu heimsstyrjöld . . . en samt má draga lærdóm af reynslu fyrri ára. Þegar allur þorri launþega horfði á kaup sitt étið smátt og sinátt í kjaraskerðingum og mátti jafnframt borga okur- vexti og tugprósenta verðbæt- ur af skuldum sínum; mátti á sama tíma horfa upp á milliliði og braskaralýð maka krókinn og stéttskiptingu á landinu vaxa til muna, var fátt sem fólk þráði jafn mikið og að verð- bólga yrði kveðin niður og hægt yrði að hefja uppbygg- ingu á nýjan leik. Þetta kom víða fram í viðtöl- um við fólk úti á vinnustöðum, við fólk á förnum vegi og í áiyktunum fjölmennra funda verkalýðsfélaga og hagsmuna- samtaka ýmisskonar. Enda hafði fólk „fært fórnir" í ára- fjölda, tilneytt með lagabálk- um. Allt í anda þjóðarsam- stöðu til að ráða við efnahags- vandann. Islensk alþýða færði einnig fórnir á styrjaldarárunum og þá eins og aðrir í trú og von um betri heim er átökunum lyki. En hvað varð um vonina? Stefán skrifar: „Eitt er það land sem ekki hefur á takteinum slík andsvör við kröfum verka- manna sinna. Það er ísland. ís- lenskir auðmenn eru þó hávær- ir þátttakendur í „betraheims" kórnum og margt er skrafað hér um félagslegt öryggi. En nú síðast þegar Dagsbrúnarmenn fara fram á litla lagfæringu launakjara sinna, kemur það svar, að lifskjör þessara manna séu þegar of góð, og ef þau yrðu bætt séu líkurnar litlar fyrir því að unnt sé að skapa hér félags- legt öryggi eftir striðið. Ráðið til þess að tryggja slíkt öryggi sé þvert á móti lækkun laun- anna.“ Síðar segir Stefán: „Og nú, þegar svörin eru fengin um það að ísland stríðsgróðans hafi ekki bolmagn til þess að gjalda vinnandi fólki sínu lífvænleg kjör, án þess að stofna félags- legu öryggi framtíðarinnar í hættu, hver trúir þá lengur á betri heim undir stjórn þeirra manna, sem fengið hafa jafn ótviræð tækifæri sem veltiár stríðsgróðans til að reka af sér slyðruorð neyðartímanna. Svör auðmannastéttarinnar hafa borist verkalýðnum von- um fyrr. Þau hafa leitt í ljós að jafnvel á íslandi, þar sem stríðsútgjöldin eru óþekkt, en straumur gróðans hefur lagst í æ dýpri farveg, er ekkert af- gangs til þess að bæta kjör og tryggja lífsafkomu almenn- ings. Það eru efndirnar á loforð- unum um félagslegt öryggi.“ Himnaríkisgrund í nánd? Nú þegar farið er að sjást fyr- ir enda undangenginna efna- hagshremminga bíður íslenskt launafólk þess að sjá hvað úr verður — hvort fórnirnar báru árangur. Við látum Stefán Ög- mundsson hafa siðustu orðin: „Á atvinnubótaárunum fyrir stríðið, þegar mötuneyti safn- aðanna galt súpudisk og brauðmola fyrir hluta af sjálfs- virðingu og lífskröfuþrótt verkamanna, þótti það hin mesta goðgá, ef hreyft var orði um hækkun kaupgjalds, þótt jafnvel þeir sem fastavinnu höfðu, byggju við hin rýrustu kjör. Atvinnurekendur berg- máluðu orðspeki erlendra auð- bræðra um hættuna, sem at- vinnulífi og þjóðfélagsheill stafaði af kröfum verkalýðsins á líkum neyðartímum; allir yrðu að sameinast í þegnskap og þjóningu ef lending ætti að takast þegar um kyrrðist á hafnleysuströnd heimskrepp- unnar. Allar kröfur urðu að bíða, þar til þurrt land var und- ir fótum og mátti jafnvel stund- um skilja orð manna svo, að það væri slík himnaríkisgrund að hver fengi þar sinn skammt í hlutfalli við auðsýndan þegn- skap og þjáningu á kreppuár- unum.“ S.AÍb. tók saman; grein Stefáns Ögmundssonar birt- ist í 3. tbl. Vinnunnar 1944. NÓVEMBER 1986 yinnriii 13

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.