Vinnan - 01.02.1998, Qupperneq 5
Kristín Guðnadóttir,
forstöðumaður
Listasafns ASI.
Styrkur ListasafnsiiiN
felst f breiddinni
Dagskrá Listasatns
ASÍ árið 1998
Listasafn ASÍ hefur nú starfað í
eitt ár í nýjum húsakynnum,
hinum glæsilega Ásmundarsal
við Freyjugötu. Forstöðumaður
safnsins, Kristín Guðnadóttir,
segir aðsókn að safninu fara
ört vaxandi og bið sé nú eftir
að fá að sýna í húsnæðinu.
Hún bendir á að dagskrá ársins
sá fjölbreytt og spennandi og
margt á döfinni.
-Þetta er skemmtileg blanda af öllum
mögulegum listgreinum, segir Krist-
ín um dagskrá ársins. -Við verðum
til dæmis með grafík, skúlptúr, ker-
amik, textíl og málverk. Listamenn-
irnir eru jafnt komungir sem látnir
eldri listamenn. Styrkur safnsins
felst í miklli breidd í sýningarhaldi.
Kristín segir aðsókn að safninu
fara stöðugt vaxandi. Húsið sé búið
að sanna sig og það sé mikilvægt að
vera miðsvæðis í fallegu húsnæði.
Þannig hafi um 800-900 manns
komið á fyrstu sýningu ársins sem
þyki mjög gott. Auk sýninga í As-
mundarsal em nú 45 vinnustaðasýn-
ingar í gangi auk þess sem verið er
að undirbúa fjórar. Að sögn Krist-
ínar er mikil eftirspum eftir vinnu-
staðasýningum. -Augu fólks em að
opnast fyrir því að það skiptir miklu
máli að hafa fallegt umhverfi á
vinnustaðnum og samtímis er verið
að rækta listsýn fólks, segir hún.
Þpíp sýningapsalip
Kristín leggur áherslu á fjölbreyti-
leikann í sýningum safnsins og
bendir á að í raun séu þrír sýningar-
salir í húsinu. Oft séu mjög ólíkar
sýningar í gangi í þeim. Hún segist
stefna að því að hafa alltaf verk úr
eigu safnsins í svokallaðri Arinstofu
en síðan séu Gryfjan og Asmundar-
salur leigð út.
Kristín segist telja að Listasafn
ASI gegni ekki síður mikilvægu
hlutverki nú en við stofnun þess, í
upphafi sjöunda áratugarins. Metn-
aðurinn sé í það minnsta mjög mikill
hjá rekstrarstjóm safnsins.
Stapfað fpá 19G1
Listasafn ASI var stofnað árið 1961
að frumkvæði iðnrekandans og
bókaútgefandans Ragnars Jónssonar
í Smára en hann lagði gmndvöllinn
að safninu með því að gefa ASI mál-
verkasafn sitt -um 120 myndir flest-
ar eftir þekktustu myndlistarmenn
þjóðarinnar; Asgrím Jónsson, Gunn-
ar Scheving, Jóhannes Kjarval, Jón
Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur,
Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðna-
son, Þorvald Skúlason og fleiri. Osk
Ragnars var sú að koma á fót al-
þýðulistasafni sem komi listinni á
framfæri við vinnandi fólk í landinu.
Listasafn ASI hefur alla tíð starfað
með þetta að leiðarljósi og hefur
meðal annars sérhæft sig í myndlist-
arsýningum sem settar eru upp á
vinnustöðum og í stofnunum víða
um land.
10. -25. janúar
Ásmundarsalur og Gryfja: Fyrir-
myndarfólk, FÍT, myndskreytingar.
31. janúar-15. febrúar
Ásmundarsalur: Riekoo Yamazaki
og Eiko Kuboza (kalligrafi og dans).
Gryfja: Inga Rósa Loftsdóttir
(málverk).
Arinstofa: Ný aðföng Listasafns ASÍ.
21. febrúar-8. mars
Ásmundarsalur: Kristinn E. Hrafns-
son (skúlptúr).
Gryfja: Margrét Jónsdóttir (málverk).
Arinstofa: Ný aðföng Listasafns ASÍ.
14.-29. mars
Ásmundarsalur: Sigurður Magnús-
son (málverk).
Gryfja: Steingrímur Eyfjörð
(innsetning).
Arinstofa: Ný aðföng Listasafns ASÍ.
4.-19. apríl (Páskar)
Ásmundarsalur: Þorbjörg Þorvalds-
dóttir (Ijósmyndir).
Gryfja: Þorgerður Sigurðardóttir
(ikonar)
Arinstofa: Kristinn Pétursson, verk í
eigu Listasafns ASÍ.
25. apríi -10. maí
Ásmundarsalur: Guðrún Gunnars-
dóttir (textíll).
Gryfja: Camilla Vasudeva
(pappírsverk).
Árinstofa: Kristinn Pétursson, verk í
eigu Listasafns ASÍ.
23. maí - 5. júlí (Listahátíð)
Ásmundarsalur og Gryfja: Ágúst
Petersen. Tilraun um tilgerðarleysi
(portrett).
Arinstofa: Listasmiðja barna.
11. júlí - 3. ágúst
Ásmundarsalur: Nanna Bisp Buchert
(Ijósmyndir).
Gryfja: Guðný Halldórsdóttir
(teikningar).
Arinstofa: Sumarsýning. Verk í eigu
Listasafns ASÍ.
8. -23. ágúst
Ásmundarsalur: Guðmundur Ingólfs-
son, Wayne Guðmundsson
(Ijósmyndir).
Gryfja: Gréta Mjöll Bjarnadóttir.
Arinstofa: Sumarsýning. Verk í eigu
Listasafns ASÍ
29. ágúst -13. september
Ásmundarsalur: Sigríður Ólafsdóttir
(málverk).
Gryfja: Helena Guttormsdóttir
(málverk).
Arinstofa: Verk í eigu Listasafns ASÍ.
19. september - 4. október
Ásmundarsalur: Þóra Sigurðardóttir
(skúlptúr).
Gryfja: Jun Kawaguchi
(postulínslágmyndir).
Árinstofa: Verk í eigu Listasafns ASÍ.
10.-25. október
Ásmundarsalur: Sigrid Valtingojer
(grafík).
Gryfja: Ólöf Erla Bjarnadóttir
(keramik).
Arinstofa: Verk í eigu Listasafns ASÍ.
31. október-15. nóvember
Ásmundarsalur: Katrín Sigurðardóttir
(innsetning).
Gryfja: Guðrún Einarsdóttir
(málverk).
Arinstofa: Verk í eigu Listasafns ASÍ.
21. nóvember-6. desember
Ásmundarsalur: Anna Þóra Karls-
dóttir (textíll).
Gryfja: Sigríður Ágústsdóttir
(keramik).
Arinstofa: Verk í eigu Listasafns ASÍ.
E sem auðvelt er að leysa =
™ BH hitablásarar eru hljóölátir, fyrirferöarlitlir, Z
I kraftmiklir og umfram allt hlýlegir í viðmóti.
* i lér er íslensk framleiðsla með áratuga
_ reynslu. Bjóðum ráðgjöfvið uppsetningu,
■■ ásamt fullkominni viðhaldsþjónustu.
" Vandaöur festibúnaður fylgir öllum
*m hitablásurum frá okkur,
I BUKKSMIÐJAN ^
i
Sntiðshöfða 9 - 132 Reykjavik
7 4 o S
Simi 587 5699- Fax 567 4699
<iiui.injjv;-iirm>
11111111111111111111111111111111111ÍV
5