Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1920, Blaðsíða 7

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1920, Blaðsíða 7
149* 1913 trúir ekki lengur á töframátt meðala eingöngu. -— Af scarlatina eru bók- uS 30 tilfelli; komu fyrstu tilfellin fyrir í Hnifsdal og höfðu, aS því er næst varð komist, borist þangaö úr Hesteyrar- og Nauteyrarhjeruöum. — Frá Hnífsdal breiddist veikin smámsaman til Álftafjaröar og Seyöisfjaröar nteð sjómönnum. Veikin var fremur væg, en eftirköst uröu þó nokkur; fengu 9 nephritis, og þar af 3 uraemia og krampa, en enginn dó þó. — All-sennilegt er, aö fleiri hafi tekiö veikina en bókaöir eru. -— Á ísafirði kom ekkert tilfelli fyrir. — Af inflúensu komu fyrir milli 60 og 70 til- felli; virtist „flensa“ þessi upprunnin úr Reykjavík; flutt hingaö meö fyrstu ferð jraöan eftir áramótin. Er hjer aö sjálfsögöu aö eins aö ræöa um hjerlenda „flensu“, „átókþóna-flensu“. — Af febr. rhemumatica komu fyrir ca. 40 tilfelli, dreifð yfir flesta mánuöi ársins, enda kom og angina tonsillaris fyrir í hverjum mánuöi. — Af taugaveiki eru aö eins bókuö 3 tilfelli, öll aö komin, 3 sunnlenskir sjómenn af togara. — Allir voru þeir lagöir á sjúkrahús og batnaði öllum. — Holdsveiki hefir ekki orðiö vart hjer á neinum nýjum sjúkling. Berklaveikir eru skrásettir á árinu aö eins 14, en munu vera fleiri; eru t. d. engin börn talin með tb. endothoracalis, en þau munu vera allmörg hjer sem annarsstaðar. Algildar sannanir þykja ef til vill engar, nema Röntgenogrammata, en þeirra er ekki kostur hjer. Allnærri mun þó mega fara, af ýmsum einkennum öörum, en ekki skal fara frekar orðum um þaö aö sinni. Hundahald og hundalækningar er hjer leitast viö aö láta fara lögum samkvæmt. Um sjúkrahúsið hafa veriö sendar hinar vanalegu skýrslur. — Beinbrot og liðhlaup hafa ekki komiö mjög oft fyrir: fr. radii 4 sinnum, fr. claviculae 3svar, fr. malleoli 4 sinnum, fr. antibrachii 2svar; luxat. humeri 3svar, 1. cubiti 1 sinni. — Viö fr. claviculae hefi jeg 2svar reynt aðferö, sem jeg ekki hef reynt áður: engar umbúöir, sjúklingurinn að eins látinn liggja svo, aö veika öxlin snúi fram aö stokknum, handlegg- urinn látinn liggja fyrir framan rúmstokkinn, á kassa eöa því líku, hæfi- lega háu; við þetta teygir handleggurinn sjálfur hæfilega á, en gagntog (contraextensio) skapast af líkamsþunganum. Brotið helst ágætlega in situ, að minni hyggju betur en með nokkurri annari aöferö, sem jeg þekki. Fæðingar. Af eyöublaöi G. sjest læknishjálp við fæöingar. Áriö 1912 reyndi jeg fyrst seopolamin-deyfingu. í ár hefir mjer og gefist færi á aö reyna þetta meöal fáeinum sinni, og hefi jeg nú brúkaö nýtt præparat, pantopon-scopolamin. Mjer hefir virst þaö verka vel og handhægt er þaö, — tilbúin upplausn á smáum glerbaukum, heldur sjer prýðilega. Jeg hefi jafnvel oröið aö viðhafa chloroform ofan í þessa hálf-narkose, og hefir ekki sakaö. — Talsvert finst mjer batna meðferð á unghörnum, meiri þrifnaöar gætt yfirleitt, betur vandað til pela óg mjólkurblöndu (einstaka maöur á Soxleths-áhald), böö og þvottar tíöari en áöur, og fólk farið aö þora aö lofa börnum út undir bert loft miklu fyrr og fremur en áöur var. — Al- gengast dauöamein ungbarna er hjer, sem annarsstaðar cholerine. Barnaskólar eru hjer í betri röð, 3 nýlegir (á Isaf., Hnifsdal og í Bol- ungarvík), bygöir aö miklu eftir nútíma kröfum. Hjer á Isafirði hefir hjeraðslæknir eftirlit meö skólabörnum. Þrifnaöur á þeim fer stórum

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.