Bæjarins besta - 29.01.1997, Side 1
Framleiðir gæða-
vöru í neytenda-
pakkningar
Átján milljónir
boðnar í
Reykjanesskóla
Blaðsíða 6
Svipmyndir frá
árlegu þorra-
blóti Bolvíkinga
Blaðsíða 7Blaðsíða 5
Guðbjörg með fullfermi af rækju
Bæjarins besta
Miðvikudagur 29. janúar 1997 4. tbl. 14. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
Þorrinn hófst á föstudag
Þorrinn hófst á föstu-
dag og þar með tímabil
þar sem fjölmargir
landsmenn njóta þjóð-
legra matvæla s.s.
harðfisks, hákarls,
sláturs, sviðasultu og
súrmats, svo fátt eitt sé
nefnt. Hið árlega þorrablót
Bolvíkinga var haldið í
félagsheimilinu í Bolung-
arvík á laugardag og
vistmenn á Bræðratungu,
heimili fatlaðra á Ísafirði,
blótuðu þorra á föstudag.
Meðal þeirra sem nutu
góðs matar og skemmt-
unar að Bræðratungu,
var Halldóra Guðmunds-
dóttir frá Bolungarvík,
sem hér sést taka
hraustlega til matar síns.
Sjá nánar frétt og
myndir á bls. 4.
Vöruval kaupir rekstur Björnsbúðar
Verslunin áfram rek-
in undir sama nafni
Á föstudag var gengið frá
kaupum Vöruvals hf., á rekstri
verslunar Björns Guðmunds-
sonar á Ísafirði, eða Björnsbúð
eins og hún er kölluð í daglegu
tali. Með kaupunum eru eig-
endur Vöruvals að tryggja
stöðu sína gagnvart aðalkeppi-
nautinum, Samkaupum, sem
hófu rekstur matvöruverslunar
í húsnæði Kaupfélags Ísfirð-
inga í desember síðastliðnum.
Að sögn Benedikts Kristjáns-
sonar, framkvæmdastjóra
Vöruvals, er hann með kaup-
unum að mæta aukinni sam-
keppni, sérstaklega hvað varðar
aukinn opnunartíma matvöru-
verslana á svæðinu. Björnsbúð
hefur verið í eigu sömu fjöl-
skyldu í 103 ár, en verslunin
var stofnuð árið 1894 af Birni
Guðmundssyni, gullsmið á
Ísafirði.
,,Við teljum að það sé hag-
kvæmara fyrir okkur að mæta
aukinni samkeppni, meðal
annars hvað varðar opnunar-
tíma, með því að fara með hluta
af rekstri Vöruvals á Eyrina.
Ég hef verið þeirrar skoðunar
að það sé ekki nauðsynlegt að
opnunartími verslana á Ísafirði
fylgi opnunartíma verslana í
Reykjavík en það hefur legið
fyrir að ég yrði einhvern veginn
að mæta þeirri samkeppni sem
hér er til staðar og ég tel að
kaupin á rekstri Björnsbúðar
sé skynsamlegasta leiðin í því
sambandi,” sagði Benedikt
Kristjánsson í samtali við
blaðið.
Opnunartími hinnar nýju
verslunar, sem að sögn Bene-
dikts mun áfram bera nafnið
Björnsbúð, verður frá kl. 9-21
mánudaga til föstudaga, frá kl.
9-18 á laugardögum og frá kl.
13-16 á sunnudögum. ,,Því er
ekki að neita að við erum
svolítið út úr hér á Skeiði. Mitt
mat er það að ef ég færi úti í að
auka opnunartímann þar, þyrfti
ég að gera það í samráði við
aðra verslunareigendur í húsinu
en almenn skynsemi segir mér
að það sé mjög kostnaðarsamt
og að öllu leyti óhagkvæmara
en kaupin á Björnsbúð.”
Verslun Björns Guðmunds-
sonar mun opna undir stjórn
nýs eiganda á laugardag, 1.
febrúar, en þann dag verður
verslunin Vöruval á Ísafirði 10
ára. Verslunarstjóri Björns-
búðar hefur verið ráðinn Finnur
Magnússon, sem undanfarið ár
hefur starfað hjá Bókaverslun
Jónasar Tómassonar á Ísafirði.
Sjá nánar frétt á bls. 2 og 3.
Ísafjarðarflugvöllur
Lengsti óveðurskafli
í fimmtán mánuði
Þrjár flugvélar Flugleiða
lentu á Ísafjarðarflugvelli á
mánudag eftir lengsta óveðurs-
kafla sem hamlað hefur flugi í
fimmtán mánuði eða síðan í
október 1995 en ekkert flug
var á vegum Flugleiða til og
frá Ísafirði frá miðvikudegi í
síðustu viku til mánudags. Að
sögn Arnórs Jónatanssonar,
umdæmisstjóra Flugleiða, biðu
um 400 manns eftir flugi á
milli Ísafjarðar og Reykjavíkur
fyrir helgi og afbókaði rúmlega
helmingur þeirra pöntun sína
er ljóst var að ekkert yrði af
flugi á laugardag.
,,Í október 1995 var ófært í
fimm daga samfellt og síðan
þá hefur ekki verið ófært í jafn
marga daga og nú, eða fjóra
daga. Það biðu um 400 manns
eftir flugi fyrir helgina, 200
héðan og 200 frá Reykjavík.
Þegar ljóst var að ekki yrði
flogið var mikið um afbókanir,
sérstaklega í flugi til Reykja-
víkur. Á mánudag fóru 55
manns með flugi til Reykjavík-
ur og um 100 manns komu að
sunnan, afpantanirnar hafa því
verið nær 250. Flestir þeirra
sem ætluðu suður, höfðu sett
stefnuna á Sólarkaffi Ísfirðinga
sem haldið var á laugardag,”
sagði Arnór.
Frá og með mánudeginum
hófst voráætlun Flugleiða og
samkvæmt henni eru tvær vélar
á áætlun alla daga vikunnar,
nema þriðjudaga, miðvikudaga
og föstudaga, en þá daga flýgur
félagið þrjár ferðir á milli
Reykjavíkur og Ísafjarðar.
Samkvæmt voráætluninni er
mæting á Ísafjarðarflugvelli kl.
09:40 og kl. 17:30 í stað 10:30
og 15:30. Mæting í hádegis-
vélina á þriðjudögum, mið-
vikudögum og föstudögum er
kl. 12:50.
Guðbjörg ÍS-46, skip Sam-
herja hf., á Akureyri kom til
Ísafjarðar á laugardagskvöld
með fullfermi úr fyrstu veiði-
ferð ársins. Vegna óveðurs
komst skipið ekki að bryggju
fyrr en á sunnudag og hófst
löndun úr því á mánudag.
Heildarafli skipsins var 312
tonn af frystri rækju að verð-
mæti um 44 milljónir króna.
Allur afli skipsins fékkst
djúpt út af Norðurlandi og hefur
verið ákveðið að skipið haldi
sig á heimamiðum í næstu
veiðiferð. Um 157 tonn af afla
Guðbjargarinnar, svonefnd
iðnaðarrækja, fer til vinnslu hjá
Bakka hf., í Hnífsdal og Bol-
ungarvík, í skiptum fyrir rækju-
kvóta á Flæmingjagrunni.
Skipstjóri í veiðiferðinni var
Guðbjartur Ásgeirsson.
Forráðamenn Samherja, þeir
Þorsteinn Már Baldvinsson og
Þorsteinn Vilhelmsson fund-
uðu með áhöfn Guðbjargar á
mánudag þar sem áhöfninni var
gerð grein fyrir þeim breyting-
um sem orðið hafa á rekstrinum.
Ísafjörður