Bæjarins besta - 29.01.1997, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9,
400 Ísafjörður
% 456 4560
o 456 4564
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Magnús Hávarðarson
Netfang:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http://www.snerpa.is/bb
Bæjarins besta
Stofnað 14. nóvember 1984
Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.
?Spurning
in
Er Samherji
bjargvættur-
inn góði?
Leiðari
Fjölskylda ein á Ísafirði fékk
heldur óskemmtilega heim-
sókn árla morguns á þriðjudag
í síðustu viku. Um klukkan
06:30 um morguninn vöknuðu
húsráðendur við að sjö ára barn
þeirra sagði mjög ölvaðan
mann vera sofandi í rúmi sínu.
Fóru húsráðendur, sem sváfu á
neðri hæð hússins, þegar upp í
herbergi barnsins, sem er á
annari hæð og blasti þá við
þeim öldauður maður í rúmi
barnsins.
Að sögn lögreglunnar á
Ísafirði, mun hinn óboðni
gestur hafa komið inn um dyr á
þvottahúsi sem húsráðendur
hafði láðst að læsa. Ljós var
þar innandyra og mun það hafa
ýtt undir heimsókn mannsins.
Maðurinn mun hafa ráfað um
húsið og síðan haldið upp á
aðra hæð og inn í barnaher-
bergið. Þar mun hann hafa dott-
ið um leikföng og við hávaðan
mun barnið þá hafa vaknað
skelfingu lostið. Þar sem
húsráðendum tókst ekki að
vekja hinn óboðna gest var lög-
regla kölluð til. Náði hún að
vekja manninn og fékk hann
að sofa úr sér í fangageymslum
lögreglunnar. Er hann vaknaði
óskaði hann eftir að fá að hitta
húsráðendur og bað afsökunar
á framferði sínu. Lögreglan
hefur lagt fram kæru á hendur
manninum.
Að sögn lögreglunnar hafa
heimsóknir sem þessar verið
tíðar undanfarin misseri og vill
hún því hvetja húsráðendur til
að læsa híbýlum sínum að
næturlagi, sem og að læsa
bifreiðum sínum. ,,Við búum
ekki lengur í sveitasamfélagi
og því verða allir að hafa
varann á sér,” sagði lögreglu-
maður í samtali við blaðið.
Óboðinn gestur í barnarúminu
Ísafjörður
Blað brotið í ísfirskri verslunarsögu
Björnsbúð skiptir um eigendur eftir
103 ár í höndum sömu fjölskyldu
Finnur Magnússon, nýráð-
inn verslunarstjóri Björns-
búðar.
Benedikt Kristjánsson, kaup-
maður í Vöruvali.
Gengið hefur verið frá kaupum Vöruvals hf., á rekstri matvöru-
verslunar Björns Guðmundssonar á Ísafirði, eða Björnsbúð eins
og hún er kölluð í daglegu tali. Nýr eigandi mun taka við rekstr-
inum laugardaginn 1. febrúar nk., en þann dag fagnar Vöruval á
Ísafirði, 10 ára afmæli sínu. Með kaupum Vöruvals á rekstri
Björnsbúðar hefur verið brotið blað í ísfirskri verslunarsögu, en
Björnsbúð hefur um 103 ára skeið verið í eigu sömu fjölskyldu.
Eftir kaupin á Björnsbúð, en verslunin mun áfram vera rekin
undir því nafni, reka eigendur Vöruvals fjórar verslanir á
norðanverðum Vestfjörðum, þ.e. tvær á Ísafirði, eina í Hnífsdal
og eina í Bolungarvík. Að sögn Benedikts Kristjánssonar,
kaupmanns í Vöruvali, eru kaupin á Björnsbúð hugsuð sem
ákveðinn mótleikur í aukinni samkeppni á svæðinu, sérstaklega
hvað varðar aukinn opnunartíma matvöruverslana.
ég kaupin á rekstri Björnsbúðar
skynsamlegustu leiðina í þessu
sambandi. Við leigjum hús-
næðið við Silfurgötu og mun-
um opna þar á laugardag, á 10
ára afmæli Vöruvals á Ísafirði.
Verslun Vöruvals í Bolung-
arvík er í daglegu tali nefnd
Einarsbúð, líkt og var er hún
var í eigu Einars Guðfinnssonar
hf., og því sé ég enga ástæðu til
að breyta nafni Björnsbúðar.
Þessar verslanir eru fastir
punktar í tilverunni og verða
vonandi áfram.”
Benedikt vildi í samtali við
blaðið, ekki gefa upp kaup-
verðið á rekstri Björnsbúðar.
,,Við kaupum lager, innrétt-
ingar og tæki verslunarinnar
og leigjum húsnæðið en kaup-
verðið er ekki gefið upp,” sagði
Benedikt. Verslunarstjóri
Björnsbúðar hefur verið ráðinn
Finnur Magnússon, sem undan-
farin tvö ár hefur starfað hjá
Bókaverslun Jónasar Tómas-
sonar á Ísafirði. Finnur hefur
stundað verslunarstörf og versl-
bandi,” sagði Benedikt Krist-
jánsson.
Að sögn Benedikts mun opn-
unartími Björnsbúðar verða frá
kl. 9-21 frá mánudegi til
föstudags, frá kl. 9-18 á laugar-
dögum og frá kl. 13-16 á sunnu-
dögum. ,,Því er ekki að neita
að við erum svolítið út úr hér í
firðinum. Mitt mat er það að
það sé kostnaðarsamara að
auka opnunartímann þar auk
þess sem ég þyrfti að ákveða
hann í samráði við aðra versl-
unareigendur í húsinu. Því tel
,,Við teljum að það sé
hagkvæmara fyrir okkur að
mæta aukinni samkeppni með
því að fara með hluta af rekstri
Vöruvals á Eyrina. Ég hef verið
þeirrar skoðunar að það sé ekki
nauðsynlegt að opnunartími
verslana á Ísafirði fylgi opnun-
artíma verslana í Reykjavík,
en það hefur legið fyrir að ég
þyrfti á einhvern hátt að mæta
þeirri samkeppni sem er hér til
staðar og tel ég að kaupin á
rekstri Björnsbúðar sé skyn-
samlegasta leiðin í því sam-
unarrekstur um áratuga skeið
og hóf sinn feril í Verslun
Björns Guðmundssonar árið
1962, þá 14 ára gamall.
Allt er breytingum háð
Í frétt frá eigendum Versl-
unar Björns Guðmundssonar,
varðandi kaup Vöruvals á
rekstri verslunarinnar segir
m.a.: ,,Á laugardaginn kemur,
1. febrúar, verður brotið blað í
ísfirskri verslunarsögu er
Björnsbúð skiptir um eigendur,
eftir rúmlega 100 ár í höndum
sömu fjölskyldu. Verslun
Björns Guðmundssonar,
Björnsbúð, var stofnuð árið
1894 af Birni Guðmundssyni,
gullsmið. Fyrsta áratuginn rak
hann verslunina að heimili sínu
Fyrir þremur árum var spurt: Tilheyrir Sveinbjörn Jónsson, trillukarl, þjóðinni
eða ríkinu? Tilefnið var grein eftir þingmann, sem hélt því fram að þjóðin
og ríkið þyrftu ekki að vera það sama og að þjóðareign á fiskimiðunum
færi mjög vel saman við leikreglur kvótakerfisins. ,,Með því er tilteknum
aðilum að sjálfsögðu úthlutað réttindum sem fá verð í viðskiptum og ýmsir
hafa séð ofsjónum yfir, sagði þingmaðurinn.
Sami Sveinbjörn, einn kunnasti trillukarl landsins, storkaði stjórnvöldum á
eftirminnilegan hátt sumarið 1995. Ásamt félögum sínum gerði hann
uppreisn gegn kvótakerfinu, réri á banndegi og dró sinn steinbít.
Kerfiskarlarnir undu þessu ekki og kærðu Sveinbjörn. Þeir höfðu ekki erindi
sem erfiði. Trillukarlinn frá Suðureyri knésetti þá. ,,Það er skemmst frá því að
segja að ég var sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins sem þýðir
raunverulega að við vorum ekki að brjóta lög á þeim, heldur voru þeir
búnir að brjóta lög á okkur í mörg ár, sagði þessi galvaski Súgfirðingur í
skorinorðu viðtali við BB í síðustu viku.
,,Ef kvótakerfið verður ekki afnumið, þá mun það hrynja og því get ég
lofað, sagði Sveinbjörn ennfremur. Hann kvað kvótakerfið sjúkdóm, sem
lýsti sér eins og krabbamein. Með kvótakerfinu var ætlunin að útrýma
öllum smábátum. Það hefur ekki tekist enn. Vertíðarbátum hefur aftur á
móti verið komið fyrir kattarnef. Afleiðingar þess þekkjum við.
Sveinbjörn Jónsson horfir ekki björtum augum til framtíðar frá sjónarhorni
Vestfirðings: ,,Ef hugsanagangur stjórnvalda í efnahagsmálum og
fiskveiðistjórnun breytist ekki, þá eiga Vestfirðingar ekki séns. Sveinbjörn er
,,Þá eiga Vestfirðingar ekki séns
kannski ekki meiri spámaður en gerist og gengur. Hinu verður ekki
framhjá gengið, að maðurinn gjörþekkir kvótakerfið. Þess vegna ber að
taka orð hans alvarlega.
Ummæli Sveinbjörns um afnám línutvöföldunar afhjúpa eðli
kvótakerfisins: ,,Ég segi ekki að afnám tvöföldunarinnar hafi verið rothögg
(á línuútgerðina) en það að hún skuli hafa leitt til svo mikils framboðs
línubáta strax og búið var að verðgilda þetta sem eign, segir mér að
hvati útgerðarinnar hafi ekki verið hagkvæm útgerð, heldur væntingar
um eignarhluta í veiðirétti.
Þarna hittir Sveinbjörn naglann beint á höfuðið. Síbylja stjórnvalda og
sægreifa um hagræðingu í útgerðinni snýst í raun og veru um eignarhluta
í kvóta. Að áþreifanlegu dæmi þar um þurfum við hvorki að leita langt
né lengi.
Sveinbjörn Jónsson segir Vestfirðinga litna hornauga vegna afstöðu
þeirra í kvótamálinu, sem geti orðið mál málanna í pólitíkinni. Og honum
líst engan veginn á að þar gerist menn hagsmunamenn hinna stóru og
verji ránsfeng. ,,Kvótakerfið hefur alltaf verið kosningamál á Vestfjörðum
og ef það er að gerast á landsvísu sem Vestfirðingar hafa verið með í
hausnum alla tíð, þá geta jafnvel hinir ágætustu menn fallið í valinn,
voru lokaorð Sveinbjörns í BB viðtalinu, sem er þungt lóð á vogarskálarnar
í baráttunni gegn þeirri gífurlegu og siðlausu eignartilfærslu, sem á sér
stað í þjóðfélaginu í skjóli kvótakerfisins.
s.h.
Aðalbjörn Jóakims-
son, framkvæmda-
stjóri Bakka hf.:
Við vorum að leita okkur
að rækju eftir að við misstum
Skutul úr viðskiptum, en eins
og kunnugt er þá ákváðu
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
og verkalýðsfélagið Baldur
að ganga til liðs við Olíu-
félagið hf., og setja Togara-
útgerðina inn í nýtt Básafell.
Þar með misstum við ákveð-
na hráefnisöflun, en náðum
þarna góðum samningum
við Samherjamenn um kaup
á rækju af Guðbjörginni sem
við vinnum hér. Við munum
einnig fá rækju úr næstu
veiðiferð Guðbjargar þannig
að mér finnst þetta sýna,
þrátt fyrir umræðuna um að
Ísfirðingar væru að missa
spón úr aski sínum, að þá
kemur þessi rækja núna til
vinnslu hér á svæðinu sem
hún gerði ekki áður.
Tæp 160 tonn af afla
Guðbjargar ÍS úr síðustu
veiðiferð, fara til vinnslu hjá
Bakka hf. í Hnífsdal og
Bolungarvík. Guðbjörg ÍS er
nú í eigu Samherja hf. á
Akureyri og óttuðust margir
að eftir sameiningu Hrannar
hf. og Samherja hf, myndi
skipið ekki verða gert út frá
ísafirði lengur. Annað virðist
komið á daginn og að auki
mun vestfirskt verkafólk nú
fá að njóta hluta aflans.