Bæjarins besta - 29.01.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
Þorrablót
Bolvíkinga
Þorrablótsnefndin tilbúin í slaginn. Kúrekadansinn stiginn. Suðræn sveifla í Macarena.
Um 280 manns sóttu 52. þorrablót Bolvíkinga í
Víkurbæ s.l. laugardagskvöld og var góður rómur
gerður að skemmtiatriðum sem flutt voru af þorra-
blótsnefndinni en hún var skipuð 11 konum undir
formennsku Elínbetar Rögnvaldsdóttur. Athygli
vakti hve margir karlar skrýddust hinum nýja
hátíðarbúningi og í einu skemmtiatriðinu velti Rósa
fatafella (Hildur Einarsdóttir) því fyrir sér; „af hverju
strákarnir væru allir í matrósafötum?“ Skömmu
áður en gestir mættu á þorrablótið skall á suðvestan
hvassviðri með snjókomu og skafrenningi svo vart
sá á milli húsa, þannig að óhætt er að segja að
þorrinn hafi látið vita hressilega af sér. Þetta kom þó
ekki að sök og skemmtu Bolvíkingar sér hið besta
fram eftir nóttu við trog sín, fjöldasöng og dans.
Eftir að dansleik lauk nutu gestir aðstoðar
björgunarsveitarmanna við að komast til síns heima
því séð var fram á að fólk gæti lent í erfiðleikum
vegna veðurhamsins.
Mittismálið á Magnúsi Hanssyni mælt. Benedikt Kristjánsson, Jósteinn Bachmann og Runólfur
Pétursson - flottir í nýju hátíðarbúningunum.
Táp og fjör og..... Sigurður Þorleifsson, Lárus Benediktsson
og Guðmundur Óli Kristinsson.
Hlíðar Kristjánsson, Elvar Stefánsson og fjallageitin Helgi
Jónsson.
Um 150 manns sóttu Sunnukórsballið sem haldið var í
félagsheimilinu í Hnífsdal á laugardagskvöld.
Þeir Samúel Einarsson, Hermann Hákonarson, Geir
Sigurðsson, Jóhann Torfason, Jónas Gunnlaugsson og
Edward Hoblyn, létu sitt ekki eftir liggja í fjöldasöngnum.
Gestir á Sunnukórsballinu njóta þeirra léttu veitinga sem
í boði voru.
Snittur, pönnu-
kökur, söngur
og dans
Hið árlega Sunnukórsball var haldið í félags-
heimilinu í Hnífsdal á laugardagskvöld. Um 150
manns sóttu ballið að þessu sinni sem þótti takast
hið besta. Skemmtunin hófst með fjöldasöng, þá
nutu gestir léttra veitinga á borð við snittur og
pönnukökur og Sunnukórinn söng nokkur lög. Flutt
voru skemmtiatriði og síðan stiginn dans fram
eftir nóttu. Sunnukórinn varð 63 ára þann 25. jan-
úar og hefur Sunnukórsballið verið nær árlegur
viðburður síðan. Gestir skörtuðu sínu fegursta og
nutu ánægjulegrar kvöldstundar í dalnum við Djúp
er ljósmyndari blaðsins kom þar við á laugardags-
kvöld.
Þeir Sigurlaugur Baldursson, Kristinn Haraldsson og Óskar
Hálfdánarson voru á meðal gesta á Sunnukórsballinu.
Þar voru einnig þau Magdalena Sigurðardóttir, Sigurður
Jónsson og Ebeneser Þórarinsson.
Sunnukórinn á Ísafirði söng nokkur lög undir stjórn
Margrétar Geirsdóttur.
Árlegur dansleikur
Sunnukórsins