Bæjarins besta - 29.01.1997, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Ísafirði skrifar
Breytt umferðarlög
- létt bifhjól og torfærutæki
Nokkrum ákvæðum umferð-
arlaga var breytt með lögum
nr. 138 18. desember 1996, sem
voru birt í stjórnartíðindum 30.
desember 1996 og tóku þá
gildi.
Þau ákvæði sem snerta flesta
ökumenn eru eftirfarandi:
Varðandi létt bifhjól.
Í fyrsta lagi má sá sem hefur
réttindi til að stjórna bifreið
einnig stjórna léttu bifhjóli. En
sú breyting var gerð á 55. gr.
umferðarlaganna að nú veitir
rétturinn til að stjórna bifreið
sama rétt og bifhjólapróf gerði
áður varðandi stjórn létts
bifhjóls eða skellinöðru, eins
það er nefnt í daglegu tali.
Ákvæði 3. málsgreinar 55.
gr. umferðarlaganna hljóðar nú
svo eftir breytinguna:
,,Enginn má stjórna léttu
bifhjóli, nema hann hafi gilt
ökuskírteini til þess eða til að
mega stjórna bifreið eða bif-
hjóli. Ökuskírteini til að mega
stjórna léttu bifhjóli má eigi
veita þeim, sem er yngri en 15
ára, enda hafi hann áður fengið
tilskylda ökukennslu.”
Létt bifhjól er skilgreint svo
eftir breytinguna: ,,Bifhjól sem
búið er brunahreyfli sem ekki
er yfir 50 rúmsentimetrar að
slagrúmmáli eða búið raf-
hreyfli og er eigi hannað til
hraðri aksturs en 45 km á klst.”
Varðandi torfærutæki
Sú breyting hefur orðið að
ekki er lengur nægilegt að hafa
rétt til að stjórna torfærutæki
eða öðru vélknúnu ökutæki.
Ákvæði 4. málsgreinar 55.
,,Enginn má stjórna torfærutæki nema hann hafi gilt
ökuskírteini til að mega stjórna bifreið eða bifhjóli.”
Ólafur Helgi Kjartansson.
gr. umferðarlaganna hljóðar nú
svo eftir breytinguna:
,,Enginn má stjórna torfæru-
tæki nema hann hafi gilt
ökuskírteini til að mega stjórna
bifreið eða bifhjóli.”
Samkvæmt þessu er ljóst að
enginn yngri en 17 ára hefur
rétt til þess að aka vélsleða eða
snjósleða, fjórhjóli eða annars
konar torfærutæki (tví- eða
þríhjóli sem ekki eru ætluð
flutninga á vegum). Auk þess
er skilyrði að viðkomandi hafi
það sem almennt er kallað
bílpróf eða mótorhjólapróf. Það
er ekki lengur um að ræða
sérstakt próf á torfærutæki og
ekki dugar próf á dráttarvél.
Ítrekað skal að sá sem ætlar að
aka snjósleða verður að hafa
gilt ökuskírteini, sem veitir rétt
til að aka bíl eða mótorhjóli.
Ákvæðum um hámark öku-
hraða bifreiða með eftirvagn
eða tengitæki hefur verið
breytt. Nú eru 3. og 4. máls-
grein 38. gr. umferðarlaganna
svohljóðandi:
,,Ökuhraði bifreiðar með
eftirvagn eða skráð tengitæki
má aldrei vera meira en 80 km
á klst.
Ökuhraði bifreiðar með
eftirvagn, sem er án hemla og
meira en 750 kg að heildar-
þyngd, eða óskráð tengitæki
má aldrei vera meiri en 60 km
á klst.”
Einnig hefur ákvæði 4.
málsgreinar 57. gr. umferðar-
laganna verið breytt á þann veg
að nú getur æfingaakstur á
bifreið eða bifhjól, hvort heldur
er með ökukennara eða leið-
beinanda, hafizt við 16 ára
aldur eða 6 mánuðum fyrr en
áður gilti.
Ef breytingar þessar eru
teknar saman í stuttu máli mega
þeir sem hafa ökuskírteini til
að aka bíl einnig aka léttu
bifhjóli, eingöngu þeir sem
hafa ökuskírteini til aksturs bíls
eða mótorhjóls mega aka
torfærutæki, ökuhraði bifreiðar
með eftirvagn eða skráð öku-
tæki hækkar um 10 km, í 80
km á klukkustund, og sé eftir-
vagn án hemla og meira en 750
kg eða tengitæki óskráð er
hámarkshraði 60 km.
Að lokum er tvennt sem rétt
er að minna á, ótrúlega margir
á Ísafirði leggja upp á gangstétt,
jafnvel öfugu megin við akst-
ursstefnu, að ógleymdum þeim
sem leggja undir gangbraut-
armerkjum, og við gatnamót
Seljalandsvegar, Urðarvegar,
Hlíðarvegar og Bæjarbrekku á
Ísafirði gleymist æði mörgum
að stöðva við stöðvunarskyldu-
merkið. Röðin rennur af stað á
eftir fyrsta bíl. Það er ekki rétt.
Hver ökumaður verður að
stöðva bíl sinn við stöðvunar-
skyldu. Á þessum gatnamótum
gildir ekki hægri regla, ein-
ungis stöðvunarskylda á þrem-
ur stöðum. Ökumenn eru beðn-
ir um að taka þessa athugsemd
til greina.
Loks skal minnt á gildi
bílbelta. Of margir aka án
þeirra og jafnvel smábörn eru
laus í bílum. Slíkt á ekki að
sjást. Minnt skal á orð Valdi-
mars Lúðvíks Gíslasonar sem
missti bíl sinn út af á Óshlíð
23. janúar síðst liðinn: ,,Bíl-
beltin og guð björguðu mér.”
-Ólafur Helgi Kjartansson.
Ísafjörður
Netkaffi opnað
á næstunni
Mikael Rodriguez mun á næstunni opna aðstöðu til
ýmis konar tómstundastarfsemi að Mánagötu 6 á
Ísafirði. Mikael sagði í samtali við blaðið að í boði verði
ýmis afþreying sem aðallega væri ætluð unglingum,
t.d. verði hann með fimm fullkomnar tölvur sem verða
nettengdar innbyrðis ásamt því að vera tengdar
Veraldarvefnum. Í tövunum, sem verða af fullkomn-
ustu gerð, gefst kostur á að spila alla nýjustu og
vinsælustu tölvuleikina en það krefst þess að tölvurnar
séu búnar stóru vinnsluminni, þrívíddarkortum, hljóð-
kortum, útvarpskortum o.s.frv. Mikael hyggst reka
sjoppu samhliða þessari starfsemi og kaffi verður á
boðstólum fyrir t.d. foreldra sem koma að fylgjast með
börnum sínum. Ýmislegt annað verður á boðstólum
svo sem billjard, pílukast o.fl. Hljómflutningstæki verða
á staðnum og getur fólk komið með tónlistina sína og
fengið hana spilaða. Reykingar og meðferð áfengis
verður stranglega bönnuð á þessum nýja stað og
segist Mikael ætla að ganga hart eftir að því banni
verði framfylgt. Hann er með margar hugmyndir um
reksturinn og hefur t.d. hug á að efna til námskeiða og
samkeppna af ýmsu tagi. Ætlunin er að staðurinn,
sem ekki hefur hlotið nafn enn, verði opinn frá 15-23
daglega og formleg opnun verði 1. febrúar n.k. Mikael Rodriguez.
LEIKSKÓLINN SKÓLASKJÓL
Okkur vantar starfskraft sem fyrst í
50% stöðu við stuðning eftir hádegi á
leikskólanum Skólaskjól.
Allar upplýsingar gefur leikskólastjóri
í síma 456 3716.
EYRARSKJÓL
Starfskrafta vantar á leikskólann
Eyrarskjól. Um er að ræða tvær stöður
eftir hádegi.
Upplýsingar í síma 456 3685.
Svandís, leikskólastjóri.
FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA
Sólarkaffi verður á Hlíf, fimmtudaginn
30. janúar kl. 15:00.
Kaffiveitingar, skemmtun og dans.
Allir eldri borgarar í Ísafjarðarbæ eru
velkomnir.
ÍSAFJARÐARBÆR
Ísafjarðarkirkja
Kirkjuskóli barnanna er á laugardag klukkan
ellefu. Sérstök kirkjurúta leggur af stað úr
Holtahverfi klukkan korter fyrir ellefu.
Í kirkjuskólanum er föndrað og litað, sagðar
sögur, sungið, hlýtt á brúðuleikhús og fleira
gert til fróðleiks og uppbyggingar.
Á sunnudaginn 2. febrúar klukkan ellefu
verður guðsþjónusta í Ísafjarðarkirkju.
Sóknarprestur messar. Predikun fjallar um
lestur Guðs orðs og vöxt trúarinnar.
Á mánudag milli tíu og tólf er mömmu-
morgnar í safnaðarheimilinu. Þetta eru
samverur fyrir foreldra með ung börn.
Þriðjudagskvöldið 4. febrúar klukkan 20:30
er biblíulestur í kirkjunni.
Ísafjarðarsókn.
Atvinna
Ritari óskast til starfa á lögfræðiskrifstofu
mína í hálft starf (eftir hádegi).
Um er að ræða fjölbreytt starf og viðkom-
andi þarf að geta unnið sjálfstætt. Góð
tölvu- og ritvinnslukunnátta er æskileg.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf
eigi síðar en um miðjan mars nk.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Tryggvi Guðmundsson hdl.,
Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Sími 456 3244.