Bæjarins besta - 29.01.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
3 SPÓLAN10TOPP
http://ceps.nasm.edu:2020/
NASMpage.html
Á heimasíðu National Air
and Space Museum er hægt
að skoða allt það sem við
kemur flugi og geimferðum.
http://www.iceland.org
Á heimasíðu Íslenska sendi-
ráðsins í Washington er hægt
að finna allt sem viðkemur
Íslandi.
http://www.macedon.com/
titanic
Á þessari heimasíðu er hægt
að finna allt um skemmti-
ferðaskipið Titanic, en eins
og flestir vita fórst það í
jómfrúrsiglingu sinni árið
1912.
1. The Rock
2. Cable Guy
3. Mulholland Falls
4. Fargo
5. Copycat
6. Down Periscope
7. Trainspotting
8. From Dusk Till Dawn
9. Crying Freeman
10. Kingpin
í
TÆKINU
HELGAR
veðrið
góðará
NETINUht
tp
:
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Horfur á fimmtudag:
Fremur hæg norðvest-
læg eða breytileg átt
og smáél norðan til en
annars bjartviðri.
Horfur á föstudag:
Gengur í heldur vax-
andi sunnanátt og fer
hlýnandi. Slydda en
síðar rigning vestan-
lands en þurrt austan
til.
Á laugardag snýst
vindur til suðvestan-
áttar. Sennilega slydda
eða rigning um mest
allt land en síðan él
vestan til.
Á sunnudag og
mánudag er útlit fyrir
að alldjúp lægð gangi
norðaustur yfir landið.
Fargo
Fargo er kolbikasvört
kómedía, byggða á raun-
verulegum atburðum sem
áttu sér stað í hinum
undarlega smábæ Fargo í
Minnesota þegar ótrúle
atburðarráð leiddi af sér
dauða fjölda manns.
MYNDBÖND
HJÁ
VÍDEÓHÖLLINNI
Bera Vesturbyggð-
ungar enga ábyrgð
á sjálfum sér?
Mannlífið hér vestra hefur borið nokkurn svip af
einstöku tíðarfari. Veður hefur verður sérlega gott frá því
snjóflóð féll á Flateyri, sem betur fer. Heldur hefur því
verið rótt yfir mannlífi ef frá er talið Vesturbyggðar-
ævintýrið, sem einkum virðist bundið við stjórn-mála-
menn á Patreksfirði. Fólki hefur fækkað umtalsvert á
Patreksfirði, en íbúar þar eru nú vel innan við 900. Fyrir
nokkrum árum voru þeir rúmlega 1000.
Því miður virðist fylgja fækkun íbúa ýmislegt ekki gott.
Tökum nokkur dæmi úr Vesturbyggð. Nú er kominn á
laggirnir þriðji bæjarstjórnarmeirihlutinn í Vesturbyggð.
Fyrsti bæjarstjórinn á kjörtímabilinu hrökklaðist frá vegna
óstjórnar, ef marka mátti fréttir. Ekkert hefur heyrst af
honum síðan. Kratarnir, sem báru ábyrgð á þeim
bæjarstjóranum, voru ekki af baki dottnir og mynduðu
nýjan meirihluta, nú með sjálfstæðismönnum, sem fengu
að velja nýja bæjarstjórann.
Til þess að gera langa sögu stutta hefur það eitt gerst að
hörmungar Patreksfirðinga og Vesturbyggðar-
manna hafa aukist að mun. Vart verður nú
fundinn sá maður með óbrjálaða skynsemi
á öllu Íslandi, að Vestfjörðum meðtöld-
um, sem ekki er algerlega gáttaður á
hegðun bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
En Vestfirðingar eru þó ýmsu
vanir.
Hver höndin er uppi á móti
annarri. Kratar vildu ekki
lengur starfa með sjálfstæð-
ismönnum, töldu bæjar-
stjórann vera ómögulegan til
samstarfs og líktu honum við
hest rómverska keisarans
Kaligúla. Spunnust af því
ómerkilegar og óspennandi
ritdeilur, sem helst réttu
hlut kratanna, ef nokkuð
var, í þessu furðulega
deilumáli. En þau skrif öll
minntu helst á hátterni
arftaka Kaligúla, Nerós,
sem sagður var hafa leikið
á sítar meðan Rómarborg
brann. En sagnfræðingar margir telja þá sögu uppspuna
einan.
Neró hafði það sér til varnar, að síðari tíma sagnfræð-
ingar leiðréttu rangan sakburð á hendur honum. En í
Vesturbyggð er fátt til varnar ráðamönnum, sem kjósa að
auglýsa verk sín fyrir alþjóð og eru nú uppáhald
fréttamanna um allt Ísland.
Uppboð og gíslataka!
Sláturhúsið á Patreksfirði var sett á uppboð og Oddur
Guðmundsson bauð kr. 700.000 í eignina og var hún
slegin honum. Í framhaldinu mun bæjarstjóri hafa
uppgötvað að Vesturbyggð hafi ekki passað upp á réttindi
sín. Sýslumaður bauð upp, á nýjan leik, og verðið hækkaði
um nærri 4 milljónir. Svo heyrðist af því að Jón Gauti
Jónsson yrði bæjarstjóri í þriggja mánaða leyfi hins
reglulega, Gísla Ólafssonar.
En engu að síður lét bæjarstjórn sig ekki muna um það
auglýsa upp deilur sínar við leigutaka félagsheimilisins á
staðnum, sem gerði sér lítið fyrir og flutti inn í
félagsheimilið og var þar innilokaður og kærður fyrir
innbrot. Áður hafði bæjarstjórn læst hann úti.
Er nema von að spurt sé hvort þeir beri enga ábyrgð á
sjálfum sér í Vesturbyggð. Þvílík auglýsing fyrir eina
byggð! Hver skyldi trúa að, þorrablót kvenfélagskvenna
yrði til þess að bæjarstjórn gerði sig að fíflum í augum
alþjóðar? Svo skemmtilega vill til, að veitingastaðurinn í
félagsheimilinu ber nafnið Felgan. Verður ekki betur séð
en að allir, sem hlut eiga að máli, séu á Felgunni á einn
eða annan hátt. Augu fjölmiðla og fréttaþyrstra Íslendinga
beinast nú að Patreksfirði og þeirri sérkennilegu
hestamennsku sem þar er stunduð. Hvort hestarnir
eru af keisaralegu bergi brotnir eða með mannlegt eðli
virðist aukaatriði. En þótt Stakkur sé ekki mikil
hestamaður er honum nauðugur sá kostur að taka upp
hanskann fyrir hestinn.
Hefur nokkur heyrt um svo vitlausa hesta sem þarna
gæti verið um að ræða?
Og hvers vegna að kalla þetta hestamennsku? Skýringin
er sú að kratar reyna að skýla sér á bak við það það að líkja
bæjarstjóranum við hest og þykjast væntanlega vera
mannlegir sjálfir og kannast ekki við ábyrgð sína.
Bæjarstjórinn ber af sér sakir og segir hest keisarans hafa
verið sendiherra en ekki ráðgjafa.
Best væri að þeir bæjarstjórnarmenn gerðu út um
persónueinkenni hvurs annars í einrúmi og hlífðu öðrum
við því hvað þeim finnst um samstarfsfólkið.
Kjósendur geta ekki verið annað en miður sín, að hafa
átt þátt í því saklausir að koma þessu fólki til valda. Bót er
þó í máli að þeir eru að fá sendiherra, bæjarstjóra til
þriggja mánaða. Honum er óskað alls góðs í vandasömu
starfi. Það er ekki skrýtið þó mat á veruleikanum brenglist
við þennan farsa allan.
Öðrum sveitarstjórnum á Vestfjörðum er bent á þetta
víti til varnaðar.
-Stakkur
Bonni gælukanína fæst
gefins á gott heimili, barn-
góður og kassavanur. Upp-
lýsingar í síma 456 4075
Til sölu Subaru 1800 Stat-
ion, árg. ´88, sjálfskiptur.
Upplýsingar í síma 456 3653
4ra manna fjölskylda óskar
eftir húsnæði á Ísafirði sem
allra fyrst. Upplýsingar í síma
456 7451
Til sölu mikið úrval notaðra
varahluta í Subaru 1800 árg.
´85-´91. T.d. vél með nýjum
heddum o.fl. Upplýsingar í
síma 456 3905. Magnús
Jóhannsson.
Til sölu lítið einbýlishús að
Tangagötu 21. Upplýsingar í
síma 456 3881
Til sölu Mitsubishi L-300
4x4 árg. ́ 85. Góður vinnubíll.
Upplýsingar í síma 456 7510
Dagmamma óskast. Ég heiti
Halldór Páll, er 13 mán.
brosmildur og skemmtilegur
strákur. Mig vantar góða
konu til að passa mig meðan
mamma fer í vinnuna. Upp-
lýsingar gefur Þórunn í síma
456 3216
Til sölu Subaru Legacy árg.
´91 ekinn 98 þús. Upplýs-
ingar í síma 456 6126
Óska eftir Rainbow ryksugu.
Upplýsingar í síma 456 4726
Til sölu Skodi S105 ´86. Selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 456
7013 á kvöldin.
Einbýlishús með bílskúr á
besta stað í bænum til sölu í
Bolungarvík. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 456 7512
Óska eftir vinnu, hef meirapróf
og er vanur. Upplýsingar í síma
456 7512. Helgi.
Óska eftir uppþvottavél. Upp-
lýsingar í síma 456 6263
Til sölu Yamaha V-Max 600
vélsleði árg. ´95, ekinn 1800
km. Toppeintak. Upplýsingar í
síma 456 4985, eftir kl. 19
Til sölu Daihatsu Rocky, lengri
gerð, árg. ´87. Dúndur jeppi.
Upplýsingar í síma 896 2896
Til sölu 143m² einbýlishús
ásamt 40m² bílskúr að Fagra-
holti 3 Ísafirði. Ásett verð 11,8
millj. Upplýsingar í síma 456
3928 eða 456 4323. Erlingur
Tryggvason.
Íbúð til leigu, 2 herbergi og
eldhús, sér inngangur og þvotta-
hús. Á sama stað er til sölu 3
ára AEG þvottavél. Upplýs-
ingar í síma 456 3678
Til sölu Subaru Station ´86.
Upplýsingar í síma 456 4054
Óska eftir 4ra herbergja íbúð
til leigu á Ísafirði. Upplýsingar
í síma 482 3778
Til sölu er 2ja herbergja íbúð
að Þjóðólfsvegi 14, Bolungar-
vík. Íbúðin getur verið laus fljót-
lega. Upplýsingar eru veittar í
síma 456 4961
Barna-inniskór töpuðust fyrr
í þessum mánuði á leiðinni frá
Eyrarskjóli inn í fjörð. Finnandi
vinsamlega skili þeim í tapað/
fundið á lögreglustöðinni.
Til sölu jeppadekk, 31" x 4 á
kr. 18 þús., borðtennisborð á
kr. 10 þús. Einnig til sölu eða
leigu Hafnargata 46. Leiga á
mann kr. 3000. Upplýsingar í
síma 453 6374, 453 4557 og
456 7173.
Til sölu Yamaha hljómborð,
lítur út sem nýtt. Upplýsingar
í síma 456 8237
Tek að mér barnapössun -
er inn í firði. Upplýsingar í
síma 456 4681, Ingibjörg.
Til sölu Yamaha V-Max 600
árg. ´94, ekinn 3.800 km.
Nýtt gróft belti. Upplýsingar
í síma 456 4531 og 456 5474
Til sölu Subaru Station, 4x4
árg. ´87. Upplýsingar í síma
456 3391 og 852 1457
Til sölu Volvo 240 árg. ´83,
skoðaður ´97, er í góðu
standi. selst á 90 þús. stgr.
Upplýsingar í síma 456 7581
Til leigu 3ja herbergja íbúð
að Seljalandsvegi 75. Upp-
lýsingar í síma 456 4102
Kuldagalli nr. 54 til sölu,
ónotaður, verð kr. 7000.
Upplýsingar í síma 897 6778
Til sölu Daihatsu Charade
CX árg. ´91. Ekinn ca. 40
þús. Upplýsingar í síma 456
4255, eftir kl. 17
Lítið einbýlishús til leigu í
Bolungarvík. Upplýsingar í
síma 456 5280 og 456 7055,
á kvöldin.
Óska eftir að kaupa notað
trommusett. Upplýsingar í
síma 456 3847.