Fréttablaðið - 19.02.2021, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 1
HEILBRIGÐISMÁL Bið eftir liðskipta-
aðgerðum hjá Landspítalanum er
nú sex til sjö mánuðir eftir að fólk er
komið inn á biðlista spítalans sjálfs.
Alls eru nú 1.218 manns á lista spítal-
ans yfir þá sem bíða eftir liðskiptum
á mjöðm og hné.
Margrét Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður skurðlækningaþjónustu
Landspítalans, segir að á meðan
starfsemi hafi verið skert á skurð-
stofum vegna COVID-19 í fyrra hafi
verið unnið að því að ná niður bið-
lista á göngudeild bæklunarskurð-
lækna.
„Það er bið eftir mati skurðlæknis
sem endar oft með því að sjúklingur
er settur á biðlista og undirbúning
fyrir skurðaðgerð. Þessi bið hefur
farið úr um átta mánuðum í um þrjá
mánuði. Með þessu átaki þá komu
sjúklingar hraðar inn á biðlistann
á síðasta ári og það skýrir að hluta
fjölgun á biðlista eftir liðskiptum
2020,“ útskýrir Margrét.
Að sögn Margrétar er meðalbið-
tími þeirra sem núna eru á bið eftir
liðskiptum á mjöðm 6,2 mánuðir
og sjö mánuðir eftir liðskiptum á
hné. Í ársbyrjun 2016 hafi um 870
manns verið á biðlistanum og
meðalbiðtíminn þá var níu til tíu
mánuðir.
Í upphafi árs 2020 segir Margrét
að 728 manns hafi verið á bið og bið-
tíminn um sex mánuðir. Í ársbyrjun
2021 hafi 1.100 manns beðið eftir lið-
skiptum sem skýrist meðal annars
af því að um 250 hafi bæst við vegna
átaks á göngudeild í að stytta bið þar.
Hjálmar Þorsteinsson, bæklunar-
skurðlæknir hjá Klínikinni Ármúla,
segir fyrirtækið vel í stakk búið til að
gera fleiri liðskiptaaðgerðir í ár en í
fyrra, sérstaklega ef samið yrði við
Sjúkratryggingar Íslands. Ríkið
hafi hins vegar ekki sýnt því áhuga
og greiða því allir sem fara í lið-
skiptaaðgerð hjá Klíníkinni áfram
úr eigin vasa.
„Það var útboð hjá Sjúkratrygg-
ingum á sérfræðiþjónustu í október
síðastliðnum. Við lýstum áhuga á
að ganga til viðræðna varðandi lið-
skiptaaðgerðir og við höfum ekki
fengið svar,“ segir Hjálmar.
Þrátt fyrir níu vikna aðgerðastopp
segir Hjálmar að Klíníkin hafi gert
178 liðskiptaaðgerðir árið 2020,
miðað við 153 aðgerðir 2019.
„Við lentum eins og aðrir í þessu
þriggja vikna stoppi nýverið og
við erum búin að vinna þann lista
í burtu. Miðað við taktinn sem við
erum að gera aðgerðir þá væri þetta
um 240 til 260 aðgerðir á venjulegu
ári og það væri hægt að gera enn
fleiri ef ósk væri um slíkt.“ – mj
Nú bíða 1.218 eftir liðskiptum
Af 5.469 manns sem biðu skurðaðgerðar á Landspítalanum í byrjun febrúar biðu 1.218 liðskipta og bið-
tíminn hjá þeim er hálft ár. Sem fyrr segist Klíníkin geta gert fleiri slíkar aðgerðir en ríkið sé áhugalaust.
Með þessu átaki þá
komu sjúklingar
hraðar inn á biðlistann á
síðasta ári og það skýrir að
hluta fjölgun á biðlista eftir
liðskiptum 2020.
Margrét Guð-
jónsdóttir,
forstöðumaður
skurðlækninga-
þjónustu Land-
spítalans
Mikið líf og fjör er í höfninni í Sandgerði um þessar mundir. Línu báturinn Guð rún Petrína kom til hafnar þar fyrr í vikunni og landaði sex tonnum af blönduðum af la. FRÉTTA BLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL „Saga landsins er sam-
ofin kristninni og því ætti hún að
njóta sérstöðu innan veggja grunn-
skólanna,“ segir Birgir Þórarinsson,
alþingismaður Miðflokksins, fyrsti
f lutningsmaður frumvarps um
að kristinfræði verði kennd í grunn-
skólum með sama hætti og fyrir árið
2007.
„Kristinfræðikennsla er ekki
trúarleg boðun heldur fræðileg
kennsla,“ útskýrir Birgir.
„Kristni er trúarbrögð og falla
þar af leiðandi undir trúarbragða-
fræðikennslu. Þar að auki er kristni
nú þegar gert hærra undir höfði en
öðrum trúarbrögðum í skólunum,“
segir Inga Auðbjörg K. Straumland,
formaður Siðmenntar. – khg / sjá síðu
Auki kennslu í
kristinfræðum
Birgir
Þórarinsson
alþingismaður
w
v
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.volkswagen.is/id3
Verð frá 4.490.000 kr.
Rafmagnaður ID.3
Drægni að þínum þörfum!
Hvert ertu að fara?
#NúGeturÞú