Víkingsblaðið - 01.04.1933, Síða 4
4
VÍKINGSBLAÐIÐ
má af því sjá að áhugi félagsmanha var sí-
fellt að aukast.
1917 voru 4 kappleikar háðir, og vann „Vík-
ingur“ þá alla. Tvo liina fyrstu við blandað
lið úr K. R. og „Fram“, en tvo hina síðari við
hvort félagið fyrir sig.
A 10 ára afmæli félagsins 21. apríl 1918, gat
„Víkingur“ Iiælt sér af því að hafa ekki tap-
að einum einasta kappleik þánn fyrsta tug
æfi sinnar. Má vafalaust telja að „Víkingur“
sé eina knattspyrnufélagið hér á landi, sem
liægt er að segja um að hafi staðið sem sig-
urvegari á öllum kappleikum, sem liann tók
þátt í, heilan tug ára samfleytt. Er því ekki að
undra, þótt „Víkingur“ hafi álitið sig' nægi-
þroskaðan til að taka þátt í fslandsmótinu
1918. Árangur fyrri ára livatti en latti ekki,
enda þótt útlit væri ekki mikið fyrir algerðan
sigur á mótinu. Keppendur „Víkings" voru
allir unglingar, og varð að fá undanþágu hjá
í. S. I. fyrir 5 þeirra, sem allir voru undir 18
ára aldri, og' voru það því skiljanlega engin
vonbrigði þótt þeir ynnu ekki mótið. En úr-
slit þess urðu samt góð fyrir „Víking“, því
hann fór með sæmd af því móti, sem nr. 2 í
röðinni. Þáttakendur voru 4 félög, og vann
„Víkingur“ því 2, en beið lægra hlut gegn 1.
Þetta sama sumar háði I. fl. auk fslands-
mótsins — 3 kappleika og vann alla nema
einn. II. fl. félagsins, sem þá var lítt reyndur,
keppti 3 kaj)pleika, vann 1, gerði jafntefli í
1 og ta])aði 1. III. fl„ sem skipaður var hinum
efnilegustu drengjum, vann þá um haustið í
fyrsta sinn Knattspyrnbikar Reykjavikur.
Skv. þessu yfirliti yfir kappleika félagsins
á fvrstu 10 starfsárum sínum — og að því 11.
meðtöldu - má með sanni segja að „Víking-
ur“ hefur ekki skömm af að rekja þánn feril
sinn. Á þessum árum hefur félagið háð 26
opinbera ka])pleika, þar af unnið 19, gert
jafntefli í 4 og tapað 3.
Rúmsins vegna verð ég að stikla á stóru
næstu ár á eftir. Árið 1920 var sannarlegt sig-
urár fyrir „Víking“. I. fl. vann þá íslandsmót-
ið og heitið „ „besta knattspyrnufélag fslands“
III. fl. vann haustmótið, og II. fl. bæði vor- og
haustmót. Var þá „Víkingur" upp~á sit tbesta
og vinsældir hans og fylgi hjá bæjarbúum afar
mikið, og er ekki of mikið sagt, að „Víking-
ur“ hafi verið uppáhalds félag þeirra flestra.
Auk þessara vinninga fékk félagið tvenn 1.
verðlaun fyrir boðhlaup það sumar, og var
annað fslándsmet, enda voru flestir „Víking-
anna“ með s])retthörðustu hlaupurum hér í
bæ. Einnig hreppti félagið þá og verðlaun fyr-
ir hástökk, langstökk, 100 m. og 800 m. hlaup.
Má með réttu segja að félagið hafi víða látið
til sín taka og var skæður keppinautur and-
stæðingum sínum, svo að segja í hvaða íþrótta-
grein, sem það lók þátt í. Næstu ár á eftir fór
flokkur úr félaginu út um land i heimsókn
til annara knattspyrnufélaga, t. d. til Vest-
mannaeyja og Isafjarðar, og lauk þeim ferð-
um öllum u)eð sæmd fyrir félgið auk skemmt-
unar þeirrar og gagns, sem þátttakendur nutu
af þeim. Mun „Víkingur" vera fyrsta félagið,
sem réðist í slíkar ferðir.
Árið 1924 vann „Víkingur“ íslándsmótið i
2. sinn og vormót III. flokks og árið eftir einn-
ig annað III. fl. mótið. — Þegar hér var komið
sögu félagsins, fóru liinir eldri „Víkingar“ að
draga sig í hlé, sumir fluttu úr bænum, aðrir
höfðu of annríkt til að mæta á stöðugum æf-
ingum og halda þaunig þjálfuninni við. Urðu
oft vandfyllt skörðin, sem þeir létu eftir sig
„gömlu víkingarnir“. — Enda þótt I. fl. félags-
ins liafi þannig á skömmum tíma orðið allur
skipaður nýliðum, og þannig veikt aðstöðu
hans, þá hefir liann oft síðan látið að sér
kveða og verið skæður keppnautur annara
félaga. Arið 1928 fór I. fl. til Akureyrar og
ísafjarðar og sótti sigur lieim frá báðum stöð-
um. Þá um haustið mátti vart á milli sjá
hvort félaganna Iv. R. eða „Víkingur“ hreppti
Reykjavíkurhornið, en þó fóru leikar svo,
eftir 2 kappleika milli félaganna, að „Vík-
ingur“ tapaði á vítisspyrnu og varð nr. 2 Þetta
sama sumar sóttu okkur lieim skozkir knatt-
spyrnumenn, seni taldir voru meðal þeirra
fremstu í þeirri grein í Skotlandi og jafnvel
þótt víðar væri leitað. Kappleik þeirra við
„Víking“ lauk með jafntefli (2:2) og var Vík-
ingsflokkurinn sá eini — að A.- og R.-liði
úr öllum félögunum meðtöldum — sem bauð