Víkingsblaðið - 01.04.1933, Blaðsíða 7
V í K I N G S B L A Ð I Ð
7
Sama má segja um Helga Eiríksson, sem
var kjörinn formaður félagsins 192(5. Var
hann þá áður búinn að sitja mörg' ár í stjórn
félagsins og verið þar hinn nýtasti starfsmað-
ur. Helgi var einn hinn fjölhæfasti íþrótta-
maður þá, jafnframt því, sem hann var á-
gætur í knattspyrnu, þá var liann hinn slyng-
asti í mörgum öðrum íþróttum og á í þeim
mörg afrek.
1927 var Magnús ./. Brynjólfsson kjörinn
form. félagsins. Ritari þess liafði hann verið
kjörinn 1926 (þá nýkominn frá Vesturheimi
þar sem hann hafði dvalið um nokkurra ára
skeið). Aður en liann fór þangað var hann
vel og lengi búinn að starfa í félaginu, og eins
og að framan getur ekki fyrr kominn lieim
en hann tók til starfa í því á ný. Kappliðs-
maður var Magnús lengi vel og var þá jafn-
an hinn hesti liðsmaður. 1928 var Halldór Sig-
urbjörnsson kjörinn formaður fjelagsins og
gegndi því starfi í 2 ár. Hann var hinn ötul-
asti í þeim starfa og har hag félagsins mjög
fyrir brjósti. Kappliðsmaður var Halldór ár-
um saman og' reyndist jafnan mjög vel.
1932 var Tómas Pétursson kjörinn formað-
ur félagsins. Var hann, þó ungur væri, húinn
að sitja mörg ár áður í stjórn þess og verið
afl)ragðs góður starfsmaður. Formannsstarf-
ið fórst honum nijög vel úr hendi og urðu
það öllum félagsmönnum vonbrigði að fá
ekki að njóta hans lengur í þeim starfa. Eii
sem hetur fer nýtur félagið hans þó enn, þar
sem hann er fulltrúi þess í K.R.R. og jafn-
framt starfandi kappliðsmaður. Tómas er
einn af heztu knattspyrnumönnum þessa
lands og í Víking annar Einar Baldvin.
1933 var Guðjón Einarsson kjörinn formað-
ur félagsins. Hann hefur setið mjög' lengi i
stjórn þess og verið þar prýðilegur starfsmað-
ur. Vorið 1932 gjörðist hann þjálfari félags-
ins. Kapi)liðsmaður liefir hann verið til
skamms tíma og' getið sér þar g'óðan orðstír.
Það er nú svo stutt síðan að Guðjón varð
formaður félagsins, að uin það starf hans
verður ekki rætt nú. Aðeins vil ég taka það
fram að ef Guðjón gengur í því eins vel fram
og liann undanfarið hefir gjört í öðrum störf-
um í félaginu, þá verður formannssætið vel
skipað þar sem liann er.
Þráinn.
Knattspyrnumótin í sumar —
Knattspyrnumótin í sumar bvrja á þeim
dögum sem hér segir:
III. fl. vormót ................. 21. maí
III. fl. haustmót ............... 27. ágúst
II. fl. liaustmót ............ 20. ágúst
íslandsmótið . . . . ;............ 5. júní
B.-liðsmótið .................... 30. júlí
Knattspyrnumót Reykjavíkur .... 10. ágúst
Mun ekki að efa að knattspyrnuvinir munu
híða með óþrevju eftir hvernig þessum mót-
úm mun ljúka.