Nýtt land-frjáls þjóð - 16.05.1974, Blaðsíða 2
2
NÝTT LAND
Frá Samvirki framleiðslu-
samvinnufélagi rafvirkja
Aðalfundur Samviski —
framleiðslusamvinnufélags raf-
virkja var haldinn að Hótel
Sögu laugardaginn 11. maí s.l.
/
Asgeir Eyjólfsson, formaður
félagsins, flutti skýrslu stjórnar-
innar, en í henni kom m.a.
fram að velta félagsins 1973
varð liðlega 7 milljónir króna,
og er afkoma félagsins góð.
Félagið, sem er fyrsta sarf-
andi framleiðslusamvinnufélag
í iðnaði hér á landi, var stofn-
að 22. febrúar 1973 að frum-
kvæði Félags íslenzkra rafvirkja
og hafa jafnan verið náin tengsl
á milli félaganna SAMVIRKI
er löggiltur verktaki, en stendur
utan samtaka meistara í iðn-
greininni, enda tekur það
afstöðu með launþegum og
kjarabaráttu þeirra. Hóf það
rekstur sinn í maímánuði 1973-
Fyrst í stað unnu aðeins 3 raf-
virkjar hjá félaginu en hafa nú
verið 10 um nokkurt skeið.
Félagið greiddi starfandi raf-
virkjum 35% álag ofan á dag-
vinnukaup sl. ár og greiðir nú
45 % álag, þannig að ekkert
fyrirtæki í rafiðnaði greiðir
jafnhátt kaup, eða kr. 431,00 á
tímann í dagvinnu. Þrátt fyrir
þetta hefur félagið tekið þátt
í allmörgum útboðum og boðið
viðskiptavinum sínum hagstæð
kjör.
í rafvirkjadeild félagsins voru
um áramótin 32 félagar en 50
í félaginu.
Úr stjórn rafvirkjadeildar átti
að þessu sinni að ganga Ingvar
Elísson, sem var endurkjörinn.
Varamaður í stjórn var kjörinn
Lúðvík Ogmundsson, en Björn
Björnsson var kjörinn endur-
skoðandi og til vara Sigvaldi
Kristjánsson.
Fundurinn samþykkti að
greiða starfandi rafvirkjum 5 %
aukalaunauppbót á vinnusmnd-
ir ársins 1973- Jafnframt sam-
þykkti fundurinn sérstakar
þakkir til Asgeirs Eyjólfssonar
fyrir farsæla framkvæmda-
stjórn, til Hannesar Jónssonar
fyrir aðstoð við stofnun og
skipulagningu félagsins og til
Hrafns Magnúsosnar fyrir störf
hans í þágu félagsins.
Ennfremur samþykkti fund-
urinn að verja kr. 50.000,00 af
hagnaði sl. ár til styrktar
Blindrafélaginu.
Ákveðið er að aðalfundur al-
mennu deildar félagsins verði
haldinn 30. maí að Hótel Esju
og að í framhaldi af honum fari
fram almenn kynning á fram-
leiðslusamvinnu. Verður iðn-
sveinum úr ýmsum öðrum
greinum boðin þátttaka í fund-
inum en Hannes Jónsson, fé-
lagsfræðingur, mun flytja þar
erindi um framleiðslusamvinnu
sem efnahagslegt skipulagsúr-
ræði, en Ásgeir Eyjólfsson, for-
maður SAMVIRKI, mun flytja
erindi um hagnýta reynslu af
starfi framleiðslusamvinnufé-
lags rafvirkja og svara fyrir-
spurnum.
Félagið er nú til húsa í
Barmahlíð 4 í Reykjavík, og er
Guðmundur Magnússon lög-
giltur meistari þess.
Auglýsing
um skoðun bifreiða í
lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Mánudagur 13. maí R-12801 — R-13000
Þriðjudagur 14. maí R-13001 — R-13200
Miðvikudagur 15. maí R-13201 — R-13400
Fimmtudagur 16. maí R-13401 — R-13600
Föstudagur 17. maí R-13601 — R-13800
Mánudagur 20. maí R-13801 — R-14000
Þriðjudagur 21. maí R-14001 — R-14200
Miðvikudagur 22. maí R-14201 — R-14400
Föstudagur 24. maí R-14401 — R-14600
Mánudagur 27. maí R-14601 — R-14800
Þriðjudagur 28. maí R-14801 — R-15000
Miðvikudagur 29. maí R-15001 — R-15200
Fimmtudagur 30. maí R-15201 — R-15400
Föstudagur 31. maí R-15401 — R-15600
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar til
bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun
framkvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til 16.30.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja; bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu
ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að þifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi Athygli skal
vakin á því, að skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver, að koma bifreið sinni til skoðunar á
auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr um-
ferð hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. maí 1974.
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
Matsveinn óskast
Matsveinn óskast að Vinnuhælinu að Litla-
Hrauni til afleysinga í sumarleyfum um
tveggja og hálfs mánaðar skeið frá 1. júní n.k.
Reglusemi áskilin.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Finn-
bogoson, bryti, í símum (99)-3105 og (99)-1373.
1 dóms- og kirkjumálaráðuneytinnu,
14. maí 1974.
Kjörskrá
til Alþingiskosninga í Reykjavík, sem fram
eiga að fara 30. júní n.k., liggur frammi al-
menningi til sýnis í Manntalsskrifstofu
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu,
2. hæð, frá 16. maí til 8. júní n.k., frá kl. 8.20
til 16.15 mánudaga til föstudaga.
Kærur yfir kjörskránni skulu berast skrif-
stofu borgarstjóra eigi síðar en 8. júní n.k.
14. maí 1974.
Börgarstjórinn í Reykjavík.
if ÚTB0D
Tilboð óskast í girðingarefni (þ.e. vímet og
stólpa) umhverfis íþróttasvæðið í Laugardal.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri..
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn
7. júní nk. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
■ 4 ' .
Sumarstörf
Náttúruverndarráð óskar að ráða menn til
starfa við eftirlit á friðlýstum svæðum í sumar.
Ennfremur laghentan mann, vanan verk-
stjórn til að annast merkingar og aðrar
framkvæmdir eftir skipulagi.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Nátt-
úruverndarráðs, Laugavegi 13, sími 22520.
Náttúruverndarráð
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
Þrír AÐSTOÐARLÆKNAR óskar
til starfa á GJÖRGÆSLU- ' OG '
SVÆFINGARDEILD frá 1. júní
n.k. eða eftir samkomulagi. Nánari
upplýsingar veitir yfirlæknir svæf-
ingardeildar. Umsóknum, er greini
aldur, námsferil og fyrri störf, ber að
senda stjórnarnefnd ríkisspítalanna,
Eiríkisgötu5.
Reykjavík, 10. maí 1974.
SKRIFSTOFA
R í KISSPÍTALANN A
EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765
tfl LjósmæSur
Ljósmóðir óskast til sumarafleysinga (júlí og
ágúst) í mæðradeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
Forstöðukona veitir nánari upplýsingar
í síma 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
SjúkraHSar
Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga í heima-
hjúkrun Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Forstöðukona veitir nánari upplýsingar
í síma 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.