Nýtt land-frjáls þjóð - 16.05.1974, Side 7
WÝTT LAND
7
Aðalfundur
Aðalfundur Hf. Emskipafélags íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í
Reykjavík, fimmtudaginn 30. maí 1974, kl.
13,30.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein sam-
þykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum félags-
ins samkvæmt 15. grein samþykktanna (ef
tillögur koma fram).
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins, Reykjavík 24.-28. maí.
Reykjavík, 26. mars 1974.
STJÓRNIN
TILKYNNING
um álagningu aðstöðugjalda
í Reykjaneskjördæmi 1974.
Oll sveitarfélög í Reykjanesumdæmi nema Bessastaða-
hreppur og Kjósarhreppur, hafa ákveðið að innheimita að-
stöðugjöld á árinu 1974 skv. heimild í V. kafla laga nr.
8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr. 81/1962
um aðstöðugjöld.
Gjaldskrá hvers sveitarfélags liggur frammi hjá umboðs-
mönnum skattstjóra og viðkomandi sveitar- og bæjar-
stjomum og heildarskrá á skattstofunni í Hafnarfirði._
Hafnarfirði, í maí 1974.
Skattstjórinn í Reykjaneskjördæmi.
AUGLÝSING
um ferðastyrk til rithöfunda.
í lögum nr. 28/1967, um breytingu á og viðauka við lög
um almenningsbókasöfn nr. 22/1963, er svofellt bráða-
birðaákvæði:
„Þar til gagnkvæmar höfundagreiðslur vegna afnota í
bókasöfnum innan Norðurlanda verða lögteknar, er heim-
ilt, ef sérstök fjárveiting er til þess veitt í fjárlögum, að
veita rithöfundum styrki árlega til dvalar á Norðurlönd-
um.“
I fjárlögum fyrir árið 1974 er 90 þúsund kr. fjárveiting
handa rithöfundi til dvalar á Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan óskast sendar stjórn Rithöf-
undasjóðs íslands, Skipholti 19 fyrir 25. maí 1974.
Umsóknum skulu fylgja greinargerð um, hvernig um-
sækjendur hyggjast verja styrknum.
Reykjavík, 2. maí 1974.
Rtihöfundasjóður Islands.
Auglýsing
um breyting á forsetaúrskurði frá 16. júlí 1973,
samanber breytingu á forsetaúrskurði frá 14. júlí
1971, um skipting starfa ráðherra.
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra er hér með gerð
sú breyting á forsetaúrskurði frá 16. júlí 1973, sam-
anber beytingu á forsetaúrskurði frá 14. júlí 1971,
um skipting starfa ráðherra, að Magnús Torfi Ólafs-
son, menntamálaráðherra fer með ráðherrastörf
þau, sem Birni Jónssyni voru falin í nefndum for-
setaúrskurði.
Þetta birtist hér með þeim, sem hlut eiga að máli.
I forsætisráðuneytinu, 6. maí 1974.
ÓLAFUR JÓHANNESSON.
Guðmundur Benediktsson.
Frá
liðnum
dðgum
Presturinn
Saga þessi gerðist í þorpi
nokkru fyrir löngu. Prestur var
þar í þorpinu, og einnig var þar
ekkja, sem Kristín hét. Hjá
henni var vinnukona Gróa, að
nafni. Hún hafði aldrei lagleg
verið, og ekki hafði aldurinn
bætt um, því hún var komin á
hin efri ár, eins og það er orð-
að. Aftur á móti var Kristín
mikið yngri, og að öllu leyti
glæsileg kona. Prestur var mjög
hrifinn af Kristínu og óskaði
eftir nánari kunningsskap við
hana, en venjuleg vináttukynni.
Kristín sagði honum að slíkt
væri sér ekki í hug og ætlaði
ekki að hugsa til slíkra hluta.
En presmr hélt samt áfram upp-
teknum hætti. Svo var það eitt
sinn, er Kristín fór til kirltju,
að prestur kallar hana á eintal,
eftir messu og var þá blíðmáll,
sem fyrr. Kristín segir þá að
engin borg sé svo varin að ekki
megi vinna hana, og svo sé með
sig. Nú sé hún búin að skipta
um skoðun.
Prestur varð himinlifandi
glaður við þetta, og talaðist svo
til milli þeirra að prestur kæmi
til Kristínar um kvöldið, þegar
myrkur væri komið. Þegar
Kristín kemur heim, kallar hún
á gróu vinnukonu sína, og seg-
ir að sig langi til að biðja hana
bónar. Gróa svarar, að hún vilji
allt fyrir hana gera, sem hún
gæti gjört.
Kristín segir, að það sem hún
ætli að biðja hana að gjöra fyr-
ir sig sé það að hátta í rúmið
sitt, þegar orðið sé dimmt, og
taka þar vel á móti manni,
sem kunni að koma þar í rúmið.
Ef hún geri þetta fyrir sig ætli
hún að gefa henni nýjan kjól.
Gróa segir að ekki skyldi
standa á sér að gjöra þetta.
Kristín fór þá til bræðra
sinna og segir þeim alla sína
ráðagjerð, og biður þá að ná
fyrir sig í biskupinn og fara með
hann eftir miðnætti inn í her-
bergi sitt og láta hann sjá, hvað
þar er um að vera.
Allt fór þetta eftir áætlun
og komu þeir á tilsetmm tíma
með blys í höndum inn í her-
bergið, þar sem prestur lá hjá
Gróu í rúmi Kristínar. Prestur
breiddi þá lakið yfir höfuð sér
og vildi dyljast, en biskup skip-
aði honum að klæða sig, og fór
með hann heim. Einnig skipaði
hann presti að gráta fyrir synd-
um sínum í 40 daga.
Eftir þetta þorði prestur varla
út á götu lengi vel, því honum
var verst við strákana, sem
hrópuðu upp, þegar þeir sáu
hann: „Sko, sko þarna er prest-
urinn, sem svaf hjá henni Gróu
með gulu augun".------
Arður til
hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar Samvinnu-
banka íslands h.f. þann 23. marz s.l., greiðir..
bankinn 9% arð p.a. af innborguðu hlutafé
fyrir árið 1973.
Arðurinn er greiddur í aðalbankanum og úti-
búum hans gegn framvísun arðmiða ársins
1973.
Athygli skal vakin á því, að réttur til arðs
fellur niður, sé hans ekki vitjað innan þriggja
ára frá gjalddaga.
Reykjavík 25. marz 1974,
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H.F.
LAUSSTAÐA
Staða forstöðumanns Skilorðseftirlits ríkisins,
samkvæmt 2. gr. reglugerðar um skilorðeftir-
Íit nr. 20/1974, er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1974.
Umsóknirnar sendist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
sem veitir nánari uplýsingar um stöðuna. ,
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
29. mars 1974.
Lausar stöður
við Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraskóla Islands
Lausar eru til umsóknar nokkrar stöður fastra æfinga-
kennara við Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskóla ís-
lands. Um er að ræða kennslu yngri nemenda og kennslu
á síðari hluta skyldustigs, 10—15 ára, m.a. í íslensku, eðlis-
fræði o.fl. greinum.
Einnig eru lausar nokkrar almennar kennarastöður við
Æfinga- og tilraunaskólann.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um námsferil og störf,
skal komið til menntamálaráðuneytisins. Hverfisgötu6,
Reykjavík, fyrir 31. maí 1974. —
Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
6. maí 1974.
Auglýsing
íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn er laus til íbúðar 1. sept. næstkomandi.
Fræðimönnum eða vísindamönnum, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að vísindaverkefnum í
Kaupmannahöfn, er heimilt að sækja um afnotarétt
af íbúðinni. íbúðinni, sem í eru fimm herbergi, fylgir
allur nauðsyniegur heimilisbúnaður, og er hún látin
í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni skal eigi
vera skemmri en þrír mánuðir og lengstur 12 mán.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist stjórn húss
Jóns Sigurðssonar, Islands Ambassade, Dantes
Plads 3, 1556 Köbenhavn V, eigi seíðar en 1. júní
næstkomandi. Umsækjendur skulu gera grein fyrir
tilgangi með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og
menntun og fyrri störfum. Þá skal tekið fram, hvenær
og hve lengi er óskað eftir íbúðinni, og fjölskyldu-
stærðar umsækjanda.
Æskilegt er, að umsókninni fylgi umsögn sérfróðs
mann um fræðistörf umsækjanda.
Stjórn húss Jóns Sigurðssonar.