Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.01.1998, Page 8

Bæjarins besta - 14.01.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 ókeypis smáauglýsingar kaup & sala liðsinnt þeim.“ Suðurskautsfararnir og sálfræðin – Undanfarið hefur ferð íslensku þremenninganna á Suðurpólinn verið mjög í fréttum. Einn þeirra er starfs- bróðir þinn, Ingþór Bjarnason sálfræðingur, sem á sínum tíma átti heima hér á Ísafirði og starfaði í tengslum við Fræðsluskrifstofu Vestfjarða og var síðan oft hér á ferð gegnum árin í þeim erindum eftir að hann fluttist til Akur- eyrar. Ég spyr þig sem sál- fræðing: Er þetta heilbrigt? Er það ekki klikkun, að þramma fyrst yfir þveran Grænlandsjökul og síðan í heljargaddi og bölvuðum strekkingi alla leið á Suður- pólinn? „Það má eflaust segja að frá einhverju sjónarmiði sé þetta klikkun. Á hinn bóginn held ég, að það sé hluti af hinum persónulega þroska einstaklingsins að takast á við einhverjar ögranir í lífinu, hvort sem þær eru fólgnar í ferðum af þessu tagi eða einhverju öðru. Þarna eru menn að ná markmiðum sín- um. Þegar markmiði er náð fylgir því ákveðinn þroski. Markmiðin eru af ýmsu tagi. Sumir klífa fjall. Aðrir skrifa bók. Markmiðið er að uppfylla einhvern draum.“ Suðurpóllinn getur leynst víða – Hver er þinn draumur? Hver er þinn Suðurpóll? Langar þig ef til vill á Norður- pólinn? „Ætli ég hafi ekki það almenna markmið eins og flestir aðrir, að verða smátt og smátt betri manneskja og hæfari fagmaður. En Norður- póllinn er ekki minn Suður- póll. Mig langar aftur á móti til þess að skrifa. Það blundar í mér rithöfundur af einhverju tagi. Ég hef svolítið fengist við ritstörf, þó að ég hafi ekki gefið neitt út. Ég vona að ég nái einhvern tímann í lífinu einhverjum árangri á þeim vettvangi. Það er minn Suður- póll.“ – Yrði það þá sálfræðitryllir, eins og það er kallað...? „Ég veit það nú ekki. Vissu- lega hlyti ég að byggja eitt- hvað á þekkingu minni í sál- fræði, en ekki síður hlyti ég að byggja á reynslu minni á lífsleiðinni. Ef rithöfundurinn í mér fær að vakna, þá vona ég að ég hafi eitthvað að miðla öðru fólki. En hvenær sá draumur kann að rætast, veit ég ekki.“ Þegar draumar rætast – Er það ekki persónulegt áfall þegar draumur rætist? Er þá ekki búið að taka frá manni hugsjónina? Er þá ekki búið að svipta mann markmiðinu? Er þá ekki draumurinn búinn? Er ekki mikilvægt að eiga sér draum? Nú er draumurinn um Suðurpólinn til dæmis fyrir bí hjá þeim Ingþóri og félögum. Er þá ekki eftir auðn og tóm í sálinni þar sem áður var heill Suðurpóll í fjarska? „Ég held að þegar einhverju markmiði í lífinu er náð komi nýtt í staðinn. Þetta er ein- faldlega hluti af þroskaferli mannsins. Nú gæti Ingþór til dæmis ákveðið að skrifa bók um reynslu sína í ferðinni!“ – Kannski hefur það verið forsendan að afreksverkum feðganna Ólafs Arnar og Haralds, að hafa sálfræðing með í för... „Ég hugsa það nú bara! Hann hefur áreiðanlega sem sálfræðingur getað unnið með marga þætti sem stuðlað hafa að því að settu marki varð náð. Þáttur hugarfarsins í þessu öllu er svo stór. Reynsla hans sem sálfræðings hefur eflaust komið þar að miklu gagni.“ Eru sálfræðingar annars með nokkra komplexa? – Ein áleitin spurning: Eru sálfræðingar alveg lausir við alla komplexa? „Nei, þeir eru sko ekki lausir við þá. Af hverju ættu þeir að vera það? Sálfræðingar eru menn rétt eins og aðrir menn. Komplexar eru að sínu leyti alveg ágætir, ef þeir eru í hófi. Komplexar eða sálar- flækjur eru einmitt aflvaki þess að menn takist á við lífið og vinni einhverjar dáðir. Ef manni tekst að sigrast á sálarflækjum sínum og van- köntum, þá er maður betri og þroskaðri manneskja eftir. Ég get ekki litið svo á, að sálar- komplexar séu í sjálfum sér neikvæðir. Þeir geta hins vegar orðið neikvæðir ef menn gefast upp fyrir þeim. Þá geta ýmiskonar neikvæðar tilfinningar eins og kvíði og þunglyndi náð tökum á mann- inum og brotið hann niður. Þarna er meðalhófið best eins um daginn: Hvenær ferðu? „Þú segir nokkuð! Þetta er fremur erfið spurning. Ég kann ágætlega við mig hérna á Ísafirði. Ef starfið mitt hér nær að þróast áfram og festast í sessi, þá sé ég því ekkert til fyrirstöðu að ég verði hér áfram. En tíminn einn mun skera úr því.“ Hlynur Þór Magnússon. og alltaf. Ef fólk er svo gæfusamt að skilja sín vanda- mál, að geta tekist á við þau og sigrast á þeim, þá stendur það sterkara og betra eftir.“ „Hvenær ferðu?“ – Ég beini að síðustu til þín spurningunni sem kom nokk- uð við sögu í jólaviðtalinu við séra Magnús Erlingsson í BB Júlíus Halldórsson, sálfræðingur. Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ Fjórðungssjúkrahús og heilsugæslustöðvar Læknaritari Læknaritari óskast í 50% starf að Heil- brigðisstofnuninni, Ísafjarðarbæ - heilsu- gæslustöð á Ísafirði. Vinnutími er frá kl. 08:00-12:00. Æskilegt er að umsækjandi hafi löggilt réttindi eða reynslu af ritara- störfum. Umsóknarfrestur er til 30. janúar nk. Nánari upplýsingar veitir Þóra Gestsdóttir, læknafulltrúi og Guðjón Brjánsson, fram- kvæmdastjóri á dagvinnutíma í síma 450 4500. Edinborg Ísafirði Námskeið í afr- ískum dönsum Laugardaginn 17. janúar nk., hefst á vegum Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar námskeið í afrískum dönsum. Námskeiðið verður í fimm hlutum, ein klukkustund í senn, og verður haldið í Edin- borgarhúsinu á Ísafirði. Kennari á námskeiðinu verður myndlistarkonan Anna Jóa, sem um tíu ára skeið hefur lagt stund á afríska dansa í Kramhúsinu í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið og inn- ritun er í síma 456 5444. Myndlistarkonan Anna Jóa. Í gær, þriðjudaginn 13. janúar varð Finnur Magn- ússon 50 ára. Í tilefni þess tekur hann á móti ættingjum, golffé- lögum, bridsfélögum, fé- lögum úr L.L., sem og öðrum félögum og vinum í veitingahúsinu Krúsinni á laugardag frá kl. 20:00. Aðstoðarmaður bæjarstjóra hættur Þórunn í sérverkefni Þórunn Gestsdóttir, að- stoðarmaður bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, hætti störf- um fyrir Ísafjarðarbæ í dag, en eins og kunnugt er, sagði hún starfi sínu lausu í kjölfar þeirra breytinga er urðu á meirihlutasamstarfi í bæjar- stjórn á haustdögum sem og í kjölfar uppsagnar bæjar- stjórans, Kristjáns Þórs Júl- íussonar. Þrátt fyrir að Þór- unn hafi hætt störfum er hún ekki á leið úr fjórðungnum, því hún hefur ráðið sig sem verkefnastjóra fyrir Atvinnu- vegasýningu Vestfjarða sem til stendur að efna til í júní. ,,Ég hef ákveðið að taka að mér ákveðið verkefni fyrir Atvinnuþróunarfélag Vest- fjarða. Verkefnið er fólgið í því að standa að Atvinnuvega- sýningunni sem líklega verður haldin í júní. Sýningin, sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra tókst í alla staði vel og mark- miðið er að gera jafn vel í ár ef ekki betur. Í skugga verk- fallsins sem var í fyrra tóku færri fyrirtæki þátt í sýning- unni þá heldur hefðu ella gert en vonir okkar standa til að mörg ný fyrirtæki bætist við í ár,” sagði Þórunn í samtali við blaðið. Þórunn sagði að átak eins og Atvinnuvegasýning Vest- fjarða, væri liður til að efla atvinnulífið á svæðinu og því væri mikilvægt að vel tækist til. ,,Hvað tekur við hjá mér eftir sýninguna er óráðið. Ég læt hverjum degi nægja sína þjáningu. Fyrirfram var ákveðið að ég færi héðan 15. júní, við þá dagsetningu miðaðist ráðningarsamning- ur minn hjá Ísafjarðarbæ þannig að þetta er allt sam- kvæmt upprunalegri áætlun.” 50 ára Afmæli Til leigu er 3ja herbergja íbúð í Stórholti á Ísafirði. Upplýs- ingar í síma 456 7383. Óska eftir að taka á leigu rúmgóða 4-5 herbergja íbúð eða einbýlishús. Upplýsingar í síma 456 4682. Til sölu er 3ja herbergja íbúð, 99,1m² að Urðarvegi 78 á Ísafirði. Íbúðin er í góðu standi. Ásett verð er kr. 6.900.000.- Upplýsingar í síma 456 3224 eftir kl. 18. Til sölu er Daihatsu Feroza árg. 1990, upphækkaður á 32” dekk. Verð kr. 680.000. Upp- lýsingar í síma 456 7668. Til sölu eða leigu er mikið endurnýjað 4ra herbergja einbýlishús, staðsett mið- svæðis á Suðureyri. Upplýs- ingar gefur Ólafur í síma 456 6350. Til sölu er Subaru 1800 stat- ion, árg. 1989, ekinn aðeins 104 þús. km. Nýsprautaður, algjör gullmoli. Upplýsingar gefur Magnús í símum 456 3905 og 456 3095. Til sölu er eldavél með kera- mik helluborði. Upplýsingar í síma 456 7533 eftir kl. 19. Til leigu 3ja herbergja kjall- araíbúð að Fjarðarstræti 14 á Ísafirði. Laus nú þegar. Upp- lýsingar í símum 456 5333 eða 985 7160. Krakkaklúbbur Salem! Krakkaklúbburinn hefst aftur föstudaginn 16. janúar kl. 17:30 til 18:30. Ath! Breyttan opnunartíma. Til sölu er 3ja dyra Nissan Sunny, árg. 1992, ekinn 98 þús. km. Upplýsingar í síma 456 7881. Til sölu er Nissan Sunny Sedan, 4x4, árg. 1992, ekinn 67 þús. km. Fæst gegn góðu staðgreiðsluverði. Upplýsing- ar í síma 456 3224 eftir kl. 18. Til leigu eru tvö herbergi og eldhús með sér inngangi og þvottahúsi. Upplýsingar í síma 456 3678. Til sölu er mjög vel með farinn Silver Cross barnavagn. Selst á kr. 12.000. Upplýsingar í síma 456 4585. Stelpan sem tók góða Russell hettupeysu, merkta A.E.H. í félagsheimilinu í Hnífsdal á Nýársnótt er vinsamlegast beðin að hafa samband við Elínu Önnu Hjálmarsdóttur í síma 456 3857. Til sölu eru nýir Polaris vélsleðar, Andy Trail Touring og XLT. Upplýsingar í síma 587 0414. Til sölu er einbýlishús á Suðureyri. Skipti koma til greina á íbúð á Ísafirði. Upplýsingar hefur Þórey í síma 456 6227. Þorrablót Sléttuhreppinga verður haldið laugardaginn 21. febrúar nk. Nánar auglýst síðar. Nefndin. Góð 4ra herbergja íbúð á Eyrinni er til leigu. Laus 1. febrúar eða jafnvel fyrr. Upp- lýsingar í síma 456 4088 eftir kl. 16. Fjallið Ernir er sýningar- gripur janúarmánaðar. Líttu á það og þú ert sýningar- gestur! Pétur G. Til sölu eða leigu er 80 m², 3ja herb. íbúð að Stórholti á Ísafirði. Verð kr. 5.900.000. Upplýsingar í síma 456 4727. Til sölu er Subaru Justy ́ 87. Vantar skoðun, selst ódýrt. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 456 3750 kl. 8-17. Til sölu eða leigu er 3ja herb. hús í Hveragerði. Húsið er uppgert að hluta. Ath! Skipti á íbúð á Ísafirði koma til greina. Upplýsingar í símum 456 3656 og 456 3905. Óska eftir eldhúsborði og jafnvel stólum. Upplýsingar í síma 456 5131 á kvöldin. Til sölu er einbýlishús á Suðureyri. Mikið endurbyggt. Upplýsingar í síma 421 6350. Til sölu er Lada Sport árg. 1988. Uppl. í síma 456 7210.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.