Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.01.1998, Qupperneq 12

Bæjarins besta - 14.01.1998, Qupperneq 12
Bæjarins besta ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Bolungarvík Vesturskip ehf., kaupir Dagrúnu Vesturskip ehf., sem er sameignarfyrirtæki Eiríks Böðvarssonar, og Trostans ehf., hefur gert samkomu- lag við eigendur Þorbjörns hf., í Grindavík um kaup á togaranum Dagrúnu ÍS-9. ,,Það er búið að staðfesta kaupin og ég reikna með að skrifað verði undir kaupsamn- ing í vikulokin. Að hluta til mun skipið veiða fyrir fyrir- tæki mitt, Trostan ehf., sem og fyrir önnur fyrirtæki og verður bæði gert út á bolfisk- veiðar og rækjuveiðar. Áhafn- armál skipsins eru í skoðun um þessar mundir og ekkert Dagrún ÍS-9. ákveðið í þeim efnum enn," sagði Eiríkur Böðvarsson í samtali við blaðið. Hann sagðist ráðgera að skipið færi í sína fyrstu veiðiferð fyrir Vesturskip eftir boðað verkfall sjómanna og því er óvíst hvenær af því verður. Hann sagði að skipt yrði um nafn á skipinu en í dag er óráðið hvað það kemur til með að heita. Tvö sjálfstæðisfélög í Bolungarvík sameinuð undir einn hatt Óánægðir sjálfstæðismenn komnir til valda í nýju félagi Á fundi í sjálfstæðisfélag- inu Þjóðólfi og sjálfstæðis- kvennafélaginu Þuríði Sunda- fylli í Bolungarvík, sem haldin var á þriðjudag í síðustu viku, var samþykkt að sameina fé- lögin í eitt félag undir nafninu Sjálfstæðisfélagið Völu- steinn. Samkvæmt upplýsing- um blaðsins var um átakafund að ræða, þar sem kepptust um völd núverandi bæjarfulltrúar og fylgismenn þeirra og hins vegar sjálfstæðismenn sem hafa ekki verið á eitt sáttir við framgang bæjarstjórnar Bol- ungarvíkur varðandi ,,Ósvar- armálið” svokallaða. Hinir óánægðu sjálfstæðismenn sem á sínum tíma mynduðu með sér hóp undir nafninu ,,Heimaafl”, til kaupa á eign- um Ósvarar, náðu yfirhönd- inni í stjórn hins nýja félags og virðist því hafa orðið eins konar hallarbylting í félaginu, eins og einn viðmælandi blaðsins í Bolungarvík komst að orði. Að sögn Ólafs Kristjáns- sonar, oddvita sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn Bolung- arvíkur og bæjarstjóra, var kosið á milli tveggja manna í formannssætið, þeirra Björg- vins Bjarnasonar, sem er einn hinna óánægðu sjálfstæðis- manna og Einars Guðmunds- sonar, sem var formaður Þjóð- ólfs. Niðurstaða þeirrar kosn- ingar var á þá leið að Björgvin fékk 18 atkvæði og Einar 16. ,,Því er ekki að leyna að það eru ákveðnir aðilar innan flokksins sem voru óánægðir með ákvörðun bæjarstjórnar, þegar hlutabréfin í Ósvör voru seld. Um annan ágreining hef ég ekki orðið var og kosningin í stjórn hins nýja félags var lýðræðisleg að mínu mati,” sagði Ólafur Kristjánsson í samtali við blaðið. ,,Þegar ákvörðun var tekin um að selja Bakka meirihluta hlutabréfa í Ósvör, voru allir bæjarfulltrúar, allra flokka, sammála um að selja bréfin sem og að það þyrfti að fá aukið atvinnuafl til bæjarins. Alþýðuflokkur og Sjálfstæð- isflokkur létu vita hver kaup- andi hlutabréfanna væri og það var gengið til samkomu- lags við Aðalbjörn Jóakims- son í Bakka. Framsóknar- flokkurinn og Alþýðubanda- lagið vildu hins vegar setja bréfin á almennan hlutabréfa- markað og fá sem hæst verð. Um það snerist ágreiningur- inn, ekki það að selja bréfin.” Aðspurður um hvort verið væri að bola núverandi bæjar- fulltrúum flokksins frá með ,,hallarbyltingunni” í sjálf- stæðisfélaginu sagði Ólafur: ,,Ég get ekki svarað því, þeir sem tóku við völdum verða að gera það. Mín tilfinn- ing er einfaldlega sú að þessir aðilar séu óánægðir með okk- ar störf hvað varðar þetta til- tekna mál og því er ekkert að leyna. Ég hygg að eina svarið sem við höfum sé að efna til prófkjörs, eins og verið hefur til þessa. Ég sé ekki neina ástæðu til að breyta út af því.” Ólafur Kristjánsson sagðist hafa ákveðið að gefa kost á sér áfram til setu í bæjarstjórn Bolungarvíkur og því væri hann ekki að draga sig í hlé. ,,Ég ætla að bjóða mig fram til bæjarstjórnar í vor og síðan verða aðrir að taka afstöðu til þess hvort ég verð bæjarstjóri áfram. Fólkið á staðnum ræður því hvort ég verð áfram bæjarstjóri,” sagði Ólafur. Stjórn hins nýja sjálfstæðis- félags í Bolungarvík er skipuð þeim Björgvini Bjarnasyni, sem er formaður, Guðmundi Halldórssyni, Halldóru Krist- jánsdóttur, Láru Arinbjarnar- dóttur og Kristjáni Arnarsyni. Bolungarvík. Tvö sjálfstæðisfélög á staðnum hafa verið sameinuð í eitt félag undir forystu óánægðra sjálfstæðismanna. Útsala ! Útsala !

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.