Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.09.1998, Page 5

Bæjarins besta - 16.09.1998, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 5 Rýmingarsala! Fasteignin að Mjallargötu 5, Ísafirði er til sölu. Á efri hæð er gisting en á neðri hæð verslun. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 456 3659 og 456 3970 á kvöldin þennan liðlega áratug sem ég er búinn að eiga það, en maður hefði getað verið langtum fljótari. Stundum þarf að kaupa varahluti að utan og þá þarf venjulega að bíða eftir góðu tæki- færi.“ Ariel-reiðhjólaverk- smiðjurnar byrjuðu að framleiða mótorknúin þríhjól fyrir síðustu aldamót en fyrirtækið hætti framleiðslu árið 1965 eða þar um bil. Í Bretlandi er mikill áhugi á svona gömlum farar- tækjum, þannig að stundum er auðveldara að verða sér úti um varahluti í þau en miklu yngri hjól og ýmsir varahlutir í þau eru framleiddir sérstaklega í dag. „Margt í þessum gömlu hjólum er sam- eiginlegt með ólíkum tegundum. Gírkassinn var t.d. notaður af a.m.k. tveimur eða þremur öðrum mótor- hjólaverksmiðjum og magnettukveikjan og blöndungurinn í svo til öllum breskum mótor- hjólum á þessum tíma voru frá sama framleið- anda. Hluti sem þarf að endurnýja reglulega, eins og t.d. púströr, er yfirleitt auðvelt að fá“, segir Þorbergur. Norton-hjólið er 850 cc, smíðað árið 1974, og þótti dálítið gamaldags á þeim tíma. Vélin og gírkassinn eru aðskilin og keðja á milli, svipað og á Ariel-hjólinu, og hönnunin í meginatrið- um eins og var í kring- um 1950. Breskir mótor- hjólaframleiðendur áttu margir í rekstrarerfið- leikum um og upp úr 1960 og breyttu lítið um hönnun og framleiðslu- hætti og ýmsir fóru á hausinn. „Samt hafa þessi hjól ákveðinn sjarma“, segir Þor- bergur. „Norton-hjólið er um þessar mundir sundurtekið vegna fremur smávægilegrar bilunar, en stykki úr því þarf ég að senda út til viðgerðar. Ég ætla að nota tækifærið á meðan og gera það flott í vetur. Það getur komist þó nokkuð hratt, eða upp í 200 km hraða. Ég hef aðeins prófað það í botni á hraðbrautunum úti í Þýskalandi, en ekki hérlendis. Hraðamælir- inn sýndi 200 km en ég veit ekki hvort hann er alveg réttur. Mér leið nú ekkert allt of vel á þeim hraða.“ – Ef þú seldir gamla Ariel-hjólið, hvað fengir þú fyrir það? „Ég fengi nú meira fyrir Nortoninn. Ég gæti selt hann í Bretlandi fyrir 4-5 þúsund pund ef hann er í topplagi, en Ariel-hjólið færi kannski á 1.500 pund. Það er mikið til í Bretlandi af gömlum hjólum sem voru einkum notuð á sínum tíma til að fara í og úr vinnu. Um 1930 voru þar fleiri mótorhjól en bílar.“ – Sýna bílstjórar hér mótorhjólamönnum tillitssemi? „Já, yfirleitt. Ef maður er alltaf viðbúinn hinu versta, þá á maður að sleppa þokkalega frá þessu.“ Þorbergur kveðst aðeins einu sinni hafa lent í óhappi. Það var þegar bíll sem keyrði samhliða honum upp Hverfisgötuna beygði í veg fyrir hann, þannig að handfangið á hand- bremsunni straukst við hliðina á bílnum. „En ég slapp alveg og hjólið líka, en bíllinn skarst dálítið illa á hliðinni.“ Brennivín í Vöruval í Bolungarvík? Bolvíkingar vilja áfengisútsölu Bæjarstjórn Bolungar- víkur samþykkti í síðustu viku tillögu bæjarráðs að mæla með því að ÁTVR opni áfengisútsölu í bæn- um, enda sé það „sjálfsagt og eðlilegt að verslun með vínanda og áfengi verði leyfð í kaupstaðnum að uppfylltum þeim skilyrðum er verslun með slíkan varn- ing krefst“. Það er síðan algerlega á valdi ÁTVR hvort útsala verð- ur opnuð í Bolungarvík. Sam- kvæmt nýjum lögum þarf ekki lengur almenna atkvæða- greiðslu í byggðarlagi til þess að óska eftir áfengisútsölu, heldur nægir samþykkt bæjar- yfirvalda. Vöruval í Bolungarvík hef- ur þegar látið í ljós áhuga á því að fá að reka áfengisútsölu í versluninni. Bæjaryfirvöld taka enga afstöðu til þess, hvar útsalan yrði til húsa, ef til kæmi. „Það eina sem okkur vantar hér í Bolungarvík er áfengis- útsala. Þá værum við í góðum málum“, sagði framámaður í Bolungarvík í samtali við blaðið. „Að vísu væri líka gott að fá millilandaflugvöll og svolítið meiri kvóta. Þá væri það fullkomnað.“ Vöruval í Bolungarvík. Margir Bolvíkingar (og fleiri) una illa við þær hraða- takmarkanir sem í gildi eru á Óshlíð og í gegnum Hnífs- dal. Núna er 70 km há- markshraði á Óshlíðarvegi og 35 km hámarkshraði á leiðinni gegnum Hnífsdal. Bæjaryfirvöld í Bolung- arvík hafa byrjað þreifingar við bæjaryfirvöld í Ísafjarð- arbæ og lögreglustjórann á Ísafirði, um að hámarks- hraði á Óshlíð fáist hækk- aður í 80 km/klst og að há- markshraði í Hnífsdal verði einnig hækkaður, svo og að „ökuhraði á þjóðvegum verði samræmdur innan lögsagnarumdæma sveitar- félaganna svo sem kostur er." Óshlíð og Hnífsdalur Meiri ökuhraði? Atvinna Starfsfólk óskast í afgreiðslu og pökkun. Vinnutími fyrir hádegi, eftir hádegi og allan daginn. Einnig vantar ræstitækni í bakaríið. Upplýsingar gefa María eða Rósa. Gamla bakaríið. 40% afsláttur af gjafavöru, pottum, servíettum, kertum og fleiru. 50% afsláttur af allri jólavöru. Verið velkomin! Blómabúð Svanfríðar Arnar G. Hinriksson hdl. Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243 Fasteignaviðskipti Eftirtaldar eignir eru einungis sýnishorn úr sölu- skrá okkar, leytið nánari upplýsinga á skrifstofu. Hjallavegur 20: Efri hæð í tvíbýlis- húsi Hafnarstræti 23: Einbýlishús ásamt bílskúr. Húsið er laust. Verð: 2,600,000,- Góð áhvílandi lán fylgja öllum eignunum á Flateyri. BOLUNGARVÍK: Þuríðarbraut 9: Rúmlega 120m² einbýlishús úr timbri ásamt mjög stórum bílskúr (hátt til lofts). Húsið getur verið laust fljótlega. Verð kr. 6.200.000.- Búðarkantur 2: Rúmlega 200m² stálgrindarhús. Holtabrún 5: Ca. 140m² ein- býlishús ásamt bílskúr. Hafnargata 7: 86m² neðri hæð í tvíbýlishúsi. Höfðastígur 6: U.þ.b. 80m² kjall- araíbúð. Íbúðin er laus. Verð: 1.200.000,- SUÐUREYRI: ÍSAFJÖRÐUR: Heiðarbraut 12: Rúmlega 220m² tvílyft einbýlishús ásamt bílskúr. Geta verið tvær íbúðir. Laust fljótlega. Verðkr.11.500.000.- Skipti á minni eign koma til greina. Kirkjubær: Lítið einbýlishús. Laust. Mánagata 6: Efri hæð 155m² 5-6 herbergja. Laus fljótlega. Verð: 6.300.000,- Mjallargata 6, norðurendi: Lítil 3- 4 herb. íbúð ásamt tvöföldum bílskúr. Laus fljótlega. Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3. hæð. Verð: 3.600.000,- Stakkanes 6: Rúmlega 140m² raðhús ásamt bílskúr og sólstofu. Verð 11.500.000,- Sunnuholt 1: Eitt glæsilegasta húsið í bænum. 277m², ásamt bílskúr. Pólgata 6: 3ja herbergja íbúð á 3. hæð. Laus fljótlega. Stórholt 11: 3ja herbergja íbúð á 3. hæð fyrir miðju. Laus. Verð: 4.300.000,- Stórholt 13: 4ra herb. íbúð á 2. hæð ásamt bílskúr. Skipti á ódýrari eign eða jafnvel bíl koma til greina. Íbúðin er laus. Verð kr. 7.800.000 Strandgata 5: Hnífsdal, 2ja herb. íbúð 65 m² á 2. hæð í sambýlishúsi. Íbúðin er laus. Verð kr. 1.600.000 Aðalstræti 13: Efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt hálfum kjallara og tvöföldum bílskúr. Hlíðarvegur 14: Einbýlishús - kjallari, hæð og óinnréttað ris. Grunnflötur ca. 90m². Húsið er nýuppgert að mestu. Verð: 10.400.000,- PATREKSFJÖRÐUR: Aðalstræti 16: Lítið einbýlishús. Verð kr. 600.000,-. Laust. Aðalstræti 23: Efri hæð og ris í tvíbýli. Verð kr. 700.000,-. Laust. Aðalstræti 39: Efri hæð. Verð kr. 1.000.000,- Laust. Brunnar 2: 170 m² einbýlishús. Laust. Verð kr. 5.200.000,- Hjallar 10: Stórt einbýlishús - laust. Verð: 3.600.000,- ÖRLYGSHÖFN: Einbýlishús ásamt bílskúr. Þarfnast viðgerðar. Laust. Verð kr. 600.000,- REYKHÓLAR: Suðurendi í tvíbýlishúsi. Mikil eign. Verð kr. 3.000.000.- FLATEYRI: Hjallavegur 9: 3ja og 4ja herbergja íbúðir. Hjallavegur 14 og 16: Lítil raðhús á einni hæð. Hjallavegur 18: Efri og neðri hæð í tvíbýlishúsi. Hlíðarvegur 10: Efri hæð í tvíbýlis- húsi. Góð áhvílandi lán.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.