Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.09.1998, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 16.09.1998, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 TILBOÐ Í AKSTUR Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilboðum í fólksflutninga á leiðunum Þingeyri- Flateyri-Ísafjörður-Flateyri-Þingeyri og Ísafjörður-Suðureyri-Ísafjörður. Æskilegt er að boðið sé í báðar leiðir sameiginlega. Fargjald pr. ferð fyrir einn verði kr. 120.- og renni til tilboðs- gjafa. Allar frekari upplýsingar um ferða- fjölda, tímaáætlanir og æskilegan bún- að og stærð bifreiða liggja frammi á skrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórn- sýsluhúsinu á Ísafirði. Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 24. september nk. kl. 11:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Ísafirði, 16. september 1998. Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ. LEIKSKÓLINN SÓLBORG AUGLÝSIR Leikskólakennari eða annað uppeldis- menntað starfsfólk óskast í 50% stöðu eftir hádegi á leikskólann Sólborg. Upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 456 3185. Margrét Danadrottning og Hinrik prins aka um miðbæ Hróarskeldu ásamt bæjarstjóranum á staðnum. Halldór Halldórsson bæjarstjóri skrifar um heimsókn bæjarfulltrúa til Hróarskeldu Hróarskelda - 1000 ára afmæli bæjarinsHróarskelda er vinabær Ísa- fjarðarbæjar, áður Ísafjarðar, til margra ára. Dagana 3. - 6. september sl. hélt bærinn upp á 1000 ára afmæli sitt og bauð til afmælisins fjölda gesta þ.ám. tveimur fulltrúum Ísa- fjarðarbæjar, bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar, ásamt mökum þeirra en það voru Halldór Halldórsson bæjar- stjóri og kona hans Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, Birna Lár- usdóttir forseti bæjarstjórnar og maður hennar Hallgrímur Kjartansson. Fulltrúar Ísafjarðarbæjar flugu til Danmerkur þann 3. september úr blíðskaparveðri hér heima, 20 stiga hita og fínu veðri, í Danmerkurveðrið sem reyndar var ágætt en þar vill reyndar oft blása hressi- lega. Til Hróarskeldu er 30 mín. akstur frá Kaupmannahöfn og fylgdi sérstakur leiðsögumað- ur okkur Íslendingunum til miðbæjar Hróarskeldu þar sem okkur var ætluð hótelvist í aðeins 1 mín. göngufæri við ráðhús bæjarins. Um kvöldið var svo móttaka í fundarsal ráðhússins þar sem bæjar- stjórinn hélt ræðu og fulltrúar vinabæjanna afhentu smærri gjafir. Ekki reyndar allir full- trúarnir og þ.á m. við frá Ísa- fjarðarbæ því við höfðum enga smærri gjöf heldur vest- firskan stein úr Skötufirði sem vó rúmlega hálft tonn, unninn af myndlistamanninum Jóni Sigurpálssyni og valinn af Fulltrúar allra Norðurlandanna sem mættu til afmælisins. Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar ásamt fulltrúum annarra vinarbæja Hróarskeldu á Norðurlöndum við tré sem gróðursett var í tilefni afmælisins. Ásthildi Cecil Þórðardóttur garðyrkjustjóra. Birnu Lárus- dóttur var þakkað sérstaklega að hafa ekki rogast með svona þungan stein upp í ráðhús. Daginn eftir þann 4. sept- ember var móttaka með póli- tískt kjörnum fulltrúum og hennar hátign drottningu Dan- merkur ásamt prinsi. Birna Lárusdóttir fór í þá móttöku. Síðar um daginn var sigling hinna sömu út á Hróarskeldu- fjörðinn. Laugardagurinn 5. septem- ber var svo hinn eiginlegi há- tíðardagur en þá var margt um að vera frá morgni til kvölds. Það sem stóð upp úr hjá okkur var þó vígsla 1000 ára skógarins sem Danirnir kalla en þar er eitthvað sem minnir á hin Norðurlöndin frá vinabæjunum. Það verður að segjast alveg eins og er að steinninn okkar vakti mestu athyglina enda sker hann sig úr í svona umhverfi. Steinninn er vel unninn sem listaverk af Jóni Sigurpálssyni og stend- ur á ryðfríum löppum og hallar að manni eins og ræðupúlt. Ofan á honum er glerplata með íslenskum texta og dönskum og er platan unnin af Dagnýju Þrastardóttir. Textinn var settur upp á íslensku af Halldóri Halldórs- syni en fékk mikla breytingu

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.