Bæjarins besta - 16.09.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
Zeljko Sankovic og fjölskylda á förum frá Ísafirði til Vestmannaeyja
Sé ekki framtíðina hér
sér upp í sameiningu sterku
meistaraflokksliði í knatt-
spyrnu. Hins vegar ættu félög-
in í kaupstöðunum að vera
eftir sem áður aðskilin að öðru
leyti og vera hvort með sitt
unglingastarf.
„Nei, ég er alls ekki að taka
við af Bjarna Jóhannssyni
með meistaraflokk ÍBV.
Bjarni er mjög góður þjálfari,
eins og árangur Vestmanna-
eyjaliðsins í ár og í fyrra sýnir
best“, segir hann. Hins vegar
verður Zeljko yfirþjálfari í
knattspyrnuskólanum í Vest-
mannaeyjum, gerir æfinga-
prógrömm fyrir alla hópana
fimmtán, tíu hjá strákum og
fimm hjá stúlkum, þjálfar þá
bestu en síðan verða aðrir
þjálfarar með aðra hópa. Þetta
verður það mikil vinna að
hann mun ekki stundað neitt
annað með, en hér á Ísafirði
var hann með alla íþrótta-
kennslu í Framhaldsskóla
Vestfjarða á síðasta vetri, auk
knattspyrnuþjálfunarinnar.
Nú bíður hann eftir að nýr
íþróttakennari komi til starfa
hjá FVÍ, en það verður vænt-
anlega á föstudaginn. Á laug-
ardaginn verður dálítil kveðju-
samkoma í knattspyrnuskóla
BÍ og síðan halda þau Zeljko
og fjölskylda á brott.
Ef óánægja Zeljkos með
stöðu og framtíð fótboltans á
Ísafirði er undanskilin hafa
hann og fjölskylda hans verið
mjög ánægð með dvölina hér.
„Strákarnir hafa eignast hér
marga góða félaga og eru ekk-
ert hrifnir af því að vera að
flytja einu sinni enn. Það er
hins vegar hlutskipti knatt-
spyrnuþjálfara að vera sífellt
að flytja milli staða og landa“,
segir hann. „Fólkið á Ísafirði
er mjög gott, hlýtt og vinsam-
legt. Kannski á ég eftir að
koma aftur eftir nokkur ár,
hver veit. Ísfirðingar munu
alltaf eiga sérstakt pláss í
hjarta mínu, ekki síst unga
fólkið í Framhaldsskólanum
og hjá BÍ. Það er vissulega
Zeljko Sankovic knattspyrnuþjálfari og
íþróttakennari og fjölskylda hans eru að
flytjast til Vestmannaeyja í lok þessarar
viku, eftir eins árs dvöl á Ísafirði. Ástæð-
an er að sögn Zeljkos, að hann sér ekki
framtíð í fótboltanum hér. Hann er
atvinnumaður í knattspyrnuþjálfun og
kveðst hafa lagt sig allan fram um að gera
hér góða hluti, en er alls ekki ánægður
með árangurinn.
firði í sumar. En því miður sé
ég fyrir mér mjög litla framtíð
hér fyrir þetta efnilega fólk.
Hér vinna menn mjög langan
vinnudag og fótboltinn er
íþróttagrein númer þrjú, á eftir
körfuboltanum og golfinu.
Þótt undarlegt megi virðast er
handboltinn aðeins í fjórða
sæti, þó að hann megi heita
þjóðaríþrótt Íslendinga. Í KFÍ
leggja menn mjög hart að sér
og forystumennirnir þar eru
mjög duglegir og snjallir. Þar
er sterkur hópur sem tekur
hlutina af mikilli alvöru og
festu. Liðsmenn mæta á æf-
ingar af sömu alvöru og til
vinnu, og ef einhvern vantar,
þá er hringt í hann. Leikmenn
þar mæta ekki á eina æfingu
og skrópa svo á næstu þrem-
ur.“
Zeljko er þeirrar skoðunar,
að Bolvíkingar ættu að ein-
beita sér að handboltanum, á
sama hátt og Ísfirðingar að
körfunni, en síðan eigi Ísfirð-
ingar og Bolvíkingar að koma
mjög efnilegir leikmenn séu í
yngri flokkunum, en þó sér-
staklega í 5. og 6. flokki
drengja. „Strákarnir í 5. flokki
sigruðu í einu af stærstu
mótum sumarsins, Króksmót-
inu á Sauðárkróki, og vakti
frammistaða þeirra mikla
athygli meðal íslenskra knatt-
spyrnuáhugamanna.
Einnig er 6. flokkur drengja
mjög efnilegur, svo og 2.
flokkur kvenna, en þær urðu í
2. sæti á sterku móti á Siglu-
„Fótboltinn er mín at-
vinna og mitt líf, og þess
vegna fer ég.“ Hann segir
að það vanti fleira fólk og
meiri kraft í knattspyrnu-
forystuna á Ísafirði, þó að
þar sé vissulega um indælis-
menn að ræða, að baklandið
sé ekki nógu gott og nægi-
legt aðhald og stuðning við
meistaraflokkinn vanti.
Hins vegar segir hann það
sama og hann sagði fljótlega
eftir að hann kom, að margir
með söknuði sem ég fer héð-
an. En ég get bara ekki verið
að eyða tíma mínum hér,
vegna þess að ég sé ekki fram-
tíðina. Til þess að ná árangri í
meistaraflokki er nauðsyn á
kraftmeiri stjórn og jafnframt
vantar sterkari leikmenn. Í
sumar var Ernir í stuttan tíma
besta liðið í sínum riðli, átti
tvo til þrjá mjög góða leiki og
vann þá góða sigra. Hins vegar
er eins og einhverjir sem ég
veit ekki hverjir eru vilji setja
fótinn fyrir félagið og liðið
missti tíu leikmenn eða nær-
fellt heilt lið á einum sólar-
hring fyrir 1. ágúst, þegar
frestur til félagaskipta rann
út“, segir Zeljko Sankovic.
Því má svo bæta við, að
það er ekki aðeins að Zeljko
komi til með að sakna krakk-
anna á Ísafirði. Hann hefur
verið ákaflega vel látinn með-
al nemenda sinna í Fram-
haldsskóla Vestfjarða, enda
sérlega hlýr og ljúfur maður,
og víst er að margir þar munu
Ólafur Þ. Þórðarson
Melási 6, Garðabæ
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju Garðabæ, föstudaginn
18. september kl. 13:30. Þeim sem vildu minnast hans
er bent á Hjartavernd.
Heiðbrá Ólafsdóttir
Ágúst Heiðar Ólafsson
Áslaug Ólafsdóttir Arnar Bjarnason
Arinbjörn Ólafsson Karen R. Gísladóttir
Hinrik Gíslason Ása S. Eiríksdóttir
barnabörn
Sýslumaðurinn
á Ísafirði
Ósótt nafnskírteini
Enn eru ósótt nafnskírteini fyrir börn sem
fædd eru á árinu 1983 til 1984, á skrifstofu
sýslumannsins á Ísafirði, Hafnarstræti 1,
Ísafirði.
Þeir sem ekki hafa vitjað skírteina sinna
eru hvattir til að gera það strax, og vinsam-
lega hafa með sér eina passamynd.
Ef skírteina verður ekki vitjað fram til 1.
desember þá verða þau endursend Hagstofu
Íslands, og eftir það munu ný skírteini kosta
kr. 1.200.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
Ólafur Helgi Kjartansson.
ATVINNA
Matráðskona eða karl óskast til starfa
nú þegar í leikskólann Grænagarð á
Flateyri. Starfshlutfall er 62,5% og
vinnutími er frá kl. 10:30-15:30.
Nánari upplýsingar gefur Jenný í
símum 456 7775 eða 456 3327.
Um tvö hundruð krakkar komu í Íslandsbanka á Ísafirði
á föstudaginn til þess að halda upp á fimm ára afmæli
Georgs, sparibauks Íslandsbanka. Georg er fugl, líklega
mörgæs, en óneitanlega minnir hann dálítið á hval þann
sem lítillega hefur verið getið um í fréttum undanfarið.
„Mér fannst þetta nú öllu skemmtilegri sending sem við
fengum en Vestmannaeyingar“, sagði Halldór Margeirsson
útibússtjóri Íslandsbanka um heimsókn Georgs. Á
myndinni er afmælisbarnið ásamt Halldóri Margeirssyni
og gestum í afmælisveislunni.
Íslandsbanki Ísafirði
Fjölmenni í 5 ára
afmælisveislu
Georgs sparibauks
Til sölu
í Bolungarvík
Áskrift og auglýsingar 456 4560
Til sölu er 205m² atvinnuhúsnæði við Búð-
arkant 2 í Bolungarvík. Eignin er á besta stað
á hafnarsvæðinu og gæti m.a. hentað mjög
vel til fiskvinnslu. Eigninni fylgir stór lóð og
gott aðgengi að húsinu. Ásett verð er 10
milljónir króna.
Einnig er til sölu sérbýlisíbúð að Vitastíg 9.
Íbúðin er á tveimur hæðum og nýuppgerð að
mestu leyti. Ásett verð er 6,7 milljónir króna.
Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Guðmunds-
son hdl., Hafnarstræti 1, Ísafirði, sími 456
3244, fax 456 4547.