Börn og menning - 01.09.2009, Side 11

Börn og menning - 01.09.2009, Side 11
Munkalatína fyrir byrjendur 11 ekki fagmaður; líf hans hefði aldrei orðið frásagnarvert nema vegna þess að ævintýrin villast heim til hans í líki einfalds risa sem Gvendur bóndi nær að hrekja burt með hjálp framhlaðnings, frumstæðs skotvopns sem hann hefur m.a. hlaðið nagla sem kemur óþægilega við risann. Gvendur hafði enga löngun haft til að berjast við risann heldur hélt hundur hans fyrir honum vökum með ýlfri um hjálp. Ekki er hundurinn Garmur neitt sérstaklega hetjulegur heldur. Um hann segir að hann hafi verið stoltur af Gvendi og hræddur við hann „því að bóndinn hafði bæði hærra og reifstmeira en hann." Hlutverk Garmsverður einkum að bera út hróður húsbónda síns, án samráðs við hann, þó að Gvendur nái raunar að drekka svo mikið eftir brotthvarf risans að honum finnst hann „jafnhugaður og hundurinn taldi hann." Eins er risinn sem ræðst á Svínafell hvorki sérlega illur né hættulegur heldur einfaldlega öðrum risum stærri og heimskari. Hann verður raunar aldrei var við Gvend þegar sá síðarnefndi skýtur hann heldur telur sig hafa verið stunginn af broddflugu. Svonaerupersónursögunnar„lágmímetískar" samkvæmt skilgreiningu Northrops Frye; þær hafa allar sína galla og lesendur eiga enga möguleika á að líta upp til þeirra. Gvendur karlinn hins vegar vex af hverri raun eins og Bilbó í Hobbitanum eftir sama höfund; eftir að hann hefur plaffað úr framhlaðningnum á risann og fælt hann burt sendir konungur honum gamalt sverð sem enginn hefur brugðið lengi eða kann að meta. Það reynist hins vegar fullt af kynngi og með hjálp þess nær Gvendur að særa dreka sem herjar á nágrenni hans. Enga löngun hafði hann þó til að takast á við drekann; þorpsbúar þurfa nánast að pynta hann til þess og færist Gvendur þó lengi undan. Sama átakafælni einkennir Gvend síðar í sögunni þegar hirðmenn konungs leita drekann uppi til að innheimta fjársjóð hans. Þá stráfellir drekinn alla riddarana eða hrekur á flótta en Gvendur einn stendur eftir; ekki vegna þess að hann langi í bardaga heldur vegna þess að merin hans er hölt og þreytt og neitar að flýja. Hann sigrar drekann á ný, ekki svo mjög vegna yfirburðahæfileika heldurvegna þess að drekinn berfullkomlega óverðskuldaða virðingu fyrir honum. Með hjálp drekans eykst virðing hans uns hann verður konungur, fyrir keðju heppilegra tilviljana fremur en metnað hans. Þannig er Gvendur bóndi á Svínafelli saga um hversdagslegan mann sem álpast í ævintýri og verður hetja þó að hann sé í raun eins og við öll, alveg eins og Hobbitinn. Munurinn er kannski helst sá að þrátt fyrir alla íróníu er heimur Hobbitans tekinn alvarlega en gáski og léttleiki einkennir Gvend bónda í einu og öllu. III Sem barnabók er Gvendur bóndi óvenjuleg að því leyti að hún einkennist af lærðum húmor og háskólatvíræðni, þó að þeirri formúlu sé raunar stundum einnig beitt býsna vel af J.K. Rowling, höfundi bókanna um Harry Potter. Þannig hefst sagan á því að sagt er frá latínunafni Gvends bónda og þess getið að hundur hans hafi ekki talað munkalatínu „því að munkalatína var einungis fyrir betri borgara". Ekki er víst að allir sem sinna börnum hefðu trú á að þetta munkalatínuglens höfðaði til barna en Tolkien AÞENA EFTIR MARGRÉTIÖRNÚLFSDÓTTUR Aþena (ekki höfuðborgin í Grikklandi;) ætlar að njóta lífsins í sumar en þegar besta vinkonan ræður sig í barnapössun og dularfull skilaboð berast frá ókunnri manneskju taka málin óvænta stefnu. Fyrsta bók Margrétar Örnólfsdóttur-en alveg örugglega ekki sú síðasta! BJARTUR

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.