Börn og menning - 01.09.2009, Síða 15

Börn og menning - 01.09.2009, Síða 15
Fíasól og fjölskyldan í Grasabæ er í raun athyglisvert hversu „venjuleg" fjölskylda Fíusólar er og það má segja að hlutverk Fíusólar sé einmitt að gera lesendum sínum grein fyrir möguleikunum sem felast í hversdagsleikanum og láta reyna aðeins á þanþol hans. IV Höfundur bókanna um Fíusól, Kristín Helga Gunnarsdóttir, hefur margtjáð þá skoðun sína að bækureigi ekki aðflokka eftir aldri lesenda, að góðar bækur eigi að hafa möguleika á því að höfða til allra aldurshópa. Það er auðvitað margt til í þessu enda lesa börn oft bækur sem ætlaðar eru fullorðnum og öfugt, nægir að nefna vinsældir Harry Potter-bókanna og Ljósaskiptaseríu Stephenie Meyer hjá öllum aldurshópum. Sumar bækur sem eru markaðssettar fyrir börn eða flokkaðar sem barnabækur eru hinsvegar skrifaðar þannig að þær má lesa með fleiri en einum hætti, ákveðnir þættir textans eru þess eðlis að ætla má að aðeins fullorðnir skilji merkingu þeirra. Bækurnar um Fíusól eru ekki þannig textar nema í afar takmörkuðum skilniningi, en ætla má að þeir fullorðnu nái breyttum staðarnöfnum en börn ekki endilega. Túlkun textans byggist fyrst og fremst á því að maður þekki börn, bæði sjálfan sig sem barn og taki eftir börnum í kringum sig. Bækurnar um Fíusól hafa margskonar boðskap og eins og títt er um barnabækur hefur boðskapurinn mikið vægi í textanum. Þetta eru auðvitað engin tíðindi í barnabókum, nægir að nefna jafn ólíka höfunda og Guðrúnu Helgadóttur og Þorvald Þorsteinsson því til staðfestingar. Það er býsna merkilegt að barnabækur skuli iðulega hafa þessa áberandi uppeldis- eða kannski öllu heldur uppfræðingarslagsíðu. Auðvitað má segja sem svo að það sé eitt meginhlutverk bókmennta yf ir höfuð að uppf ræða lesandann um mannfólkið og heiminn en það hefur hinsvegar ekki endilega verið talið gott ef uppfræðsla er of áberandi í skáldskap, þá er hætt við því að hann verði prédikuninni að bráð. Menn hafa ekki verið sammála því í gegnum tíðina hvert hlutverk skáldskaparins sé en flestar kenningar ganga hinsvegar út á það að honum beri að fræða, skemmta og hrífa en það er svo alltaf spurning í hvaða hlutföllum þessir þættir eiga að vera. Oftast tekst Kristínu Helgu Gunnarsdóttur að sigla milli skers og báru í þessum efnum í Fíusólarbókunum, skilaboð hvers kafla eru oftast alveg skýr en sjálfstæði Fíusólar sem persónu og afstaða hennar gerir það að verkum að boðskapurinn yfirtekur textann sjaldnast. Lesandinn hefur Ifka tilhneigingu til að halda með Fíusól þegar hún veitir mömmu sinni mótspyrnu, líkt og þegar mamman eyðileggur kúk- og piss söguna sem Fíasól skrifar sem skólaverkefni. Með því að höfða til samvisku Fíusólar tekst henni að gera hana óánægða með söguna sem er alveg í takt við það sem krökkum finnst fyndið á þessurm aldri. Fíasól lúffar að vísu fyrir mömmu sinni og skrifar sæta sögu um kanínur og blóm en tekur skýrt fram að henni finnst kúk- og piss sagan miklu skemmtilegri. Hún heldur þannig að vissu leyti alltaf sjálfstæði sínu í hugsun og það er mikill styrkur í persónusköpuninni. V Bækurnar um Fíusól hafa notið mikilla vinsælda hjá börnum og hefur höfundurinn meðal annars hlotið Bókaverðlaun barnanna fyrir þrjár þeirra. Leikrit um Fíusól verður á fjölumÞjóðleikhússinssíðaríveturogfetarhún þannig í fótspor annarra barnabókapersóna, nærtæk dæmi eru Einar Áskell og Skoppa og Skrýtla. Sérstakur Fíusólardagur var haldinn í bókaverslun í Kringlunni þegar síðasta bók kom út þar sem börn gátu meðal annars látið taka af sér mynd í gervi Fíusólar. Þegar leitað er að nafni hennar í Google leitarvélinni á netinu koma upp 25.600 síður. Örfáar síður tilheyra að vísu samnefndum ketti sem bloggað er um á moggablogginu en nánast allar vísa til bókmenntapersónunnar Fíusólar. Fíasól verður þannig sífellt sýnilegri, hún er í útrás og engin leið að sjá hvar það ævintýri endar, vonandi þó ekki á draslframleiðslu/ barnalífstílsmarkaði a la Latibær með tilheyrandi búningum og bankahlaupum. Fíasól lifir prýðisgóðu lífi í bókmenntunum og þar verður hún vonandi áfram. Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.