Börn og menning - 01.09.2009, Page 17

Börn og menning - 01.09.2009, Page 17
Alltaf leyndó alltaf gaman 17 sem við finnum allt sem við þurfum og það er nánast eins og Leynilundur skynji þarfir okkar og lesi hugsanir. Þar er til dæmis bókahilla sem er þeirrar náttúru að ef maður stendur fyrir framan hana og segir eitthvað orð fyllast hillurnar af bókum sem innihalda orðið og fróðleik sem tengist því. Þar er líka hnattlíkan sem er eins og þrívíð netupplifun, ef þrýst er á land á Ifkaninu birtast myndir á veggjunum og við förum inn í upplýsingavef um landið með myndum og hljóðdæmum. Á einum veggnum hangir töfraspegill sem sýnir okkur út í geim eða niður á hafsbotn ef þarf, í kjallaranum er gallerí þar sem hanga öll möguleg listaverk og líka myndir sem leynifélagar senda okkur. Uppi, eiginlega á palli á þakinu, býr svo húsvörðurinn, drekinn Gilbert. Gilbert er útvarpsdreki sem enginn veit hvernig lítur út, hann er hreistraður, hærður og eldspúandi en um lit, stærð og áferð er ekkert vitað. Þeim mun meira er vitað um skapferli hans og áhugamál, hann er til dæmis mikill lestrardreki, spilar á harmonikku og nærist á bröndurum og gátum frá leynifélögum sem senda honum slíkan dagamun samviskusamlega. Á sumrin fer Gilbert til köldu landanna og Leynilundur er lokaður á meðan svo þá eru leynifundir sendir út vítt og breitt að. Við nýtum okkur grimmt að vera í útvarpi og með orðum og hljóðum byggjum við heilan hugarheim. Enginn veit hvernig drekinn Gilbert lítur út og það hefur varla heyrst í honum og enginn veit heldur hvar eða hvernig Leynilundur er, ekki einu sinni við fundarstjórarnir sem erum örugglega með ólíka mynd af bæði húsi og húsverði í huga. „Kæru Leynifélagar" Útvarp hefur verið stórlega vanmetið sem miðill fyrir börn undanfarin ár og áratugi. Allir héldu að sjónvarpið og tölvurnar myndu ganga að útvarpinu dauðu (Video killed the radio star) en gleymdu að gera ráð fyrir því dýrmætastaogjafnframtvannýttastaíbörnum sem er ímyndunaraflið. Við í Leynifélaginu pössum okkur á því að lýsa engu í of miklum smáatriðum heldur leyfum hverjum og einum að búa til sinn eigin Leynilund, sinn eigin dreka. Við hvetjum krakka til að gera eitthvað á meðan þau hlusta á útvarpið, til dæmis að teikna eða taka til í herberginu sínu en vitum líka um mörg börn sem sofna út frá Leynifélaginu. Við nýtum okkur „nútíma tækni" til að dreifa boðskapnum, höfum til dæmis verið duglegar að auglýsa hlaðvarpið en þar geta krakkar gerst áskrifendur að leynifélagsfundum, sett þá á iPod og hlustað þegar þeim hentar, til dæmis á löngum bílferðum, Við vitum einnig til þess að kennarar hafi notað efnistengda fundi f kennslu en líka spilað þá í verkefnavinnu og í nestistímum. Þannig að þó að fundirnir séu klukkan átta á ákveðnum kvöldum er hægt að hlusta á þá allan sólarhringinn. Við reynum líka að höfða til foreldra þvf auðvitað er útvarpshlustun barna á ábyrgð foreldranna, ef börn vita ekki einu sinni hvað útvarp er eða hvernig á að kveikja á því, sem þau vita náttúrlega ekki ef þau hafa ekkert þangað að sækja, verður að kveikja fyrir þau, stilla á rétta rás og hlusta aðeins með þeim. Þetta hafa greinilega margir foreldrar gert. Við höfðum til foreldranna með því að auglýsa í samlesnum auglýsingum og keyra hengivagna (treilera) á rás tvö á tímum þegar foreldrar eru að hlusta. Svo reynum við líka að halda fundi sem öll fjölskyldan getur haft gaman af. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá fullorðnum hlustendum, nú síðast níutíu ára gömlum manni sem sagðist verða barn aftur af því að hlusta á Leynifélagið. Við erum montnar af því. Ekki er mögulegt að mæla hlustun barna 12 ára og yngri á Leynifélagið með sömu aðferðum og hlustun fullorðinna á annað útvarpsefni þvi lögum samkvæmt má ekki láta börn bera hlustunarmæla sem nema hvaða útvarpsstöð er í gangi í umhverfinu. Við verðum þvi að mæla hlustun eftir viðbrögðum, bæði bréfum sem okkur berast en ekki síst því hvernig er tekið á móti okkur þegar við fölumst eftir viðtali eða segjum til okkar. Samkvæmt þeim þekkir meira en helmingur barna Leynifélagið. „Á dagskrá fundarins í dag" Áhugasvið barna er vítt og því hefur margt komið á borð Leynifélagsins: básúnuleikur, hestamannamót, pardusselir, Barbí, Noregur, fótbolti, kreppan, einelti, umhverfisvernd, lögfræði, skáldskapur, jóga og margt fleira. Við tökum aðeins eitt efni fyrir á hverjum fundi og gerum því eins góð skil og við getum á þeim tíma sem við höfum. Eitt það skemmtilegasta sem við gerum er að fara með ungu fréttaritarana okkar í ferðalög, ýmist með ruslabílnum, til tannlæknis eða sprengjusérfræðings, í súkkulaðiverksmiðju, á Bessastaði og þannig mætti lengi telja. Börn hafa gaman af því að heyra í börnum í útvarpinu og krakkar fá allt öðruvísi viðbrögð frá fullorðnum en aðrir fullorðnir. Krakkar spyrja líka miklu skemmtilegri spurninga en við hefðum getað látið okkur detta í hug. IBBY-jibbý Það var í einu, tveimur, þremur orðum sagt: Alveg frábært að fá vorvindaviðurkenningu IBBY í vor. Það sýndi okkur að það eru einhverjir að hlusta á okkur sem láta sig börn varða og er ekki sama hvað er borið á borð fyrir þau. Og fannst það sem við erum að gera viðurkenningarinnar virði. Höfundar eru umsjónarmenn Leynifélagsins á RÁS 7 í Ríkisútvarpinu

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.