Börn og menning - 01.09.2009, Side 20

Börn og menning - 01.09.2009, Side 20
20 Börn og menning sér í lagi góðar barnabækur. Yfirborðið er einfalt án þess að vera flatt, það sem undir því býr margslungnara, en án þess að verða ofhlaðið. Sígildar sögur Af öllum mögulegum og ómögulegum greiningum sem undirrituð hefur rekist á á táknheimi Bangsímons er niðurstaða Silju Aðalsteinsdóttur bókmenntafræðings ( uppáhaldi, og skal hér vitnað til orða hennar um málið: ,,[í sögunum um Bangsímon] eru aðalhetjurnar leikföng litils drengs sem fá líf og mál [...] Persónu sína fá dýrin hins vegar frá hinum ýmsu eðliseinkennum drengsins sjálfs, hann losnar við ótta sinn, fýlu, feimni og hjárænuhátt yfir til þeirra og á þá ekkert eftir handa sér annað en styrkinn og gáfurnar sem gera hann að guði Sandersskógar." (Silja Aðalsteinsdóttir, bls. 301). Það er einna helst eftirlætisleikfangið Bangsímon sem Jakob Kristófer notar sér til sjálfsstyrkingar; hann biður sögumann um að segja Bangsímoni sögu (A.A. Milne, bls. 2), og biður hann að minna Bangsímon á hitt og þetta: ,,„Ég man þetta", sagði [Jakob Kristófer], „en Bangsímon man þetta ekki nógu vel og þess vegna finnst honum gott að láta segja sér þetta aftur. Því þá er þetta alvöru saga en ekki bara upprifjun."" (A.A. Milne, bls. 17-18). Þau börn og fullorðnir sem enn hafa ekki kynnst íbúum Hundraðmetraskógar eru eindregið hvött til að lesa þessar sígildu sögur í þýðingu Guðmundar Andra Thorssonar - þau sem þekkja sögurnar nú þegar, eða telja sig gera það, geta lesið sér til upprifjunar. í það minnsta ættu allir að geta skemmt sér konunglega yfir hversdagsævintýrum Bangsímons og vina hans. Höfundur er meistaranemi í finnsku - Crews, Frederick: The Pooh Perplex: A Freshman Casebook. The University of Chicago Press, Chicago, 2003. Áður útg. 1963. - Crews, Frederick: Postmodern Pooh. North Point Press, New York, 2003. - Milne, A.A. Bangsímon. Þýð. Guðmundur Andri Thorsson. Edda útgáfa, Reykjavík, 2008. - Shea, Sarah o.fl. „Pathology in the Hundred Acre Wood: A Neurodevelopmental Perspective on A.A. Milne". Canadian Medical Association Journal, 163. árgangur, 12. tbl., 2000. - Silja Aðalsteinsdóttir: (slenskar barnabækur 1780-1979. Mál og menning, Reykjavík, 1981.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.