Börn og menning - 01.09.2009, Qupperneq 23

Börn og menning - 01.09.2009, Qupperneq 23
Lífið í neðra 23 Árið 1995 átti ég vetursetu í Liverpoolborg og sat tíma í vísindaskáldsögum víð háskólann. Veturinn var sérlega kaldur og blautur, jaf nvel fyrir Bretlandseyjar. Grænu myglublettirnir sem skreyttu veggina í stúdentahúsinu þegar ég flutti inn náðu nýjum lendum undir sig í veðurtíðínni. Rakinn var slíkur að sniglar sem skriðu inn á næturnar sáu enga ástæðu til að fara út aftur og lifðu í samfélagi við veggjatítlurnar. Eftir sem leið á veturinn varð íverustaðurinn líkt og á kafi í slýkenndum lífmassa. Úr þakinu hengu rætur og veggirnir voru þaktir plöntum og rákaöir kalkkenndum úrfellingum þar sem væta hafði seytlað niður um sprungur. í fjarska heyrðu þeir í rennandi vatni. (bls. 9). Eftir þessa reynslu kom mér því ekki alveg é óvart að sjá að annar höfundur Ganganna, Brian Williams, segðist hafa byggt bókina Helga Ferdinandsdóttir Lífið í neðra Göngin eftir Roderick Gordon og Brian Williams, Rúnar Helgi Vignisson þýddi á æskuminningum sínum frá Liverpool, því að frásögnin gerist að stórum hluta í rökum hellakerfum þar sem rottur og fúkkalykt ráða ríkjum. Lífseig flökkusaga Höfundarnir segja að kveikjan að Göngunum hafi verið magnaðir neðanjarðarrangalar sem fáir vita að leynast í Liverpool og ganga undir nafninu Williamson-göngin. í upphafi nítjándu aldar keypti athafnamaðurinn Joseph Williamson sér landskika í Liverpool- borg og hóf að grafa heilt völundarhús ofan í sandsteininn. Hann var með flokka af mönnum í vinnu áratugum saman við að útfæra þetta gangasafn en ekki er vitað hvað honum gekk til með verkinu. Árið sem ég var í Liverpool hófu fornleifafræðingar könnun á Williamson-göngunum en þeim hafði verið lokað vegna hruns. Ég veit ekki hvað ég heyrði margar flökkusögur þennan vetur, um satanísk rituöl og þaðan af verra, en ein sú lífseigasta var að Williamson hefði verið í sértrúarsöfnuði sem ætlaði sér að búa neðanjarðar þegar yfirborðið væri orðið óbyggilegt. Segja má að burðarbítinn í Göngunum sé þessi flökkusaga um neðanjarðarnýlendu manna sem hafa gefist upp á lífinu á yfirborðinu. Neðan jarðar Göngin er ágætlega spennandi hryllings- og ævintýrasaga, það er að segja þegar frásögnin kemst loks í gang. Aðalsöguhetjan er Will Burrows sem býr hjá foreldrum sínum í Lundúnum. Hann er fjórtán ára gamall og óvenju hvítur á hörund, allt að

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.