Börn og menning - 01.09.2009, Page 24

Börn og menning - 01.09.2009, Page 24
24 Börn og menning því albínói, en það veldur því að hann þarf að þola látlausa stríðni í skólanum. Kannski er það þess vegna sem hann kann best við sig neðanjarðar við fornleifagröft með föðursínum. Þegar faðirinn hverfur sporlaust ákveður Will að reyna að finna hann ásamt vini sínum Chester. Þeir leggja af stað niður djúp göng sem faðirinn hafði verið að grafa og við enda þeirra uppgötva strákarnir heilt neðanjarðarsamfélag sem teygir anga sína langt inn í jörðina. Höfundarnir krefjast þó nokkurrar þolinmæði af lesendum sínum í upphafi, því hér hefst loksins ævintýrið og það eftir 150 blaðsíður af félagslegum vandamálum Will og fjölskyldu hans. Bókin er þannig nokkuð framþung og sá grunur læðist að manni að þessi langi inngangur gegni þeim tilgangi að setja sviðið fyrir komandi bækur og eigi að skoða í samhengi við seríuna alla. Þarna djúpt ofan í jörðinni lýkst upp fyrir söguhetjunum samfélag sem er um margt hliðstætt því sem þeir þekkja: hús og götur, jafnvel hundar og kettir, en fljótt kemur í Ijós að lögmál þessa heims eru hörð og erfítt að lifa af. Grimmir undirheimsmenn, Styxar, stýra samfélaginu og er í mun að ekki fréttist af því til efri jarðarbúa. Will og Chester eru teknir til fanga og meðferðin á þeim er hrottaleg. Hér skiptir frásögnin heldur betur um gír og hryllingurinn tekur völdin: Maður nokkur hélt þeim báðum í kræklóttum hrömmum og lét þá dingla þar bjargarlausa. „Óboðnir gestir!" hrópaði maðurinn grimmilegri og hrjúfri röddu, lyfti þeim svo upp að andlitinu og virti þá fyrir sig með fyrirlitningarsvip. (bls. 161). Allir sem komast að tilvist neðan- jarðarnýlendunnar eru látnir hverfa og sömu örlög bíða drengjanna ef þeim tekst ekki að flýja. Skuggaleg veröld Það er sannarlega hjartsláttarefni að elta blóðidrifna slóð drengjanna úr klóm Styxanna og aftur upp á yfirborðíð ekki síst fyrir sérlega góða og óvænta fléttu sem setur allt fjölskyldulíf Will í óhugnanlegt samhengi. Þegar frásögnin af neðanjarðarheiminum kemst á flug verður atburðarásin hröð, hver beygja á göngunum virðist opna á nýjar hættur og ótrúlegar uppljóstranir. Reyndar ber hugmyndaauðgi höfundanna þá næstum ofurliði og með styrkari ritstjórn hefði stígandinn í bókinni orðið jafnari og frásögnin áhrifaríkari. Sögusviðið neðra er kunnuglegt eða eins og gömul og skæld útgáfa af Lundúnum nútímans, nokkurs konar staðleysa eða dystópíasem minnirum margtá hræðilegustu lýsingar Dickens á lífi almennings í Bretlandi á nítjándu öldinni. Ferðir söguhetjanna á milli „efra" og „neðra" undirstrika tilfinninguna fyrir því að hvorugur heimurinn er nokkur útópía eða fyrirmyndarsamfélag. Nýlendudrengur sem ferðast með Will frá neðri byggð upp á yfirborðið upplifir efri byggð á sama hátt og Will þá neðri, illa lyktandi og ógnvekjandi. Göngin gefa okkur dökka mynd af heiminum og litla von. Það er jafnvont að vera í efra eins og í neðra. Göngin er hrein og klár serfubók því það má eiginlega segja að hún endi ekki, heldur sér lesandinn á eftir Will og Chester um borð í flutningalest bruna inn ( hjarta jarðarinnar og ef hann vill vita um örlög þeirra þá verður að nálgast bók númer tvö. Þegar eru komnar út á ensku tvær framhaldsbækur, Deeper (2008) og Freefall (2009), en höfundarnir vilja ekki gefa upp hvað margar þeir ætla að koma með í seríunni. Að sögn útgefanda munu íslenskir lesendur þurfa að bíða fram á haustið 2010 til að sökkva sér niður í næstu bók. Þýðingin Skyldleiki þýðinga við upprunalega textann getur stundum orðið svo mikill að það getur t.d. orðið þessum lesanda að sérstakri þráhyggju að ráða í frummálið. Því míður á það oftar við þegar um barna- og unglíngabækur er að ræða. Það er því nokkur lúxus að lesa þýðingu Rúnars Helga Vignissonar. Hér vottar ekki fyrir þýðingarbrag eða leifum af upprunalega tungumálinu. Jafnvel er ekki laust við að liprara mál sé á íslensku þýðingunni en enska frumtextanum sem er á köflum stirðbusalegur. Orðfærni Rúnars og vald á litbrigðum íslenskunnar Ijá frásögninni kraft og hnykkja á spennunni. Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.