Börn og menning - 01.09.2009, Page 25
IBBY fréttir
25
VORVINDAR
Vorvindar glaðir í Gunnarshúsi
Sunnudaginn 17. maí veitti IBBY á (slandi
þrjár Vorvinda-viðurkenningar í Gunnarshúsi
við Dyngjuveg. Allt frá árinu 1987 hefur
félagið veitt einstaklingum og stofnunum
viðurkenningar á vorin fyrir framlag til
barnamenningar á íslandi. í ár hlutu fjórir
einstaklingar viðurkenninguna: Jónína
Leósdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Kristín Eva
Þórhallsdóttir og Halldór Ásgrímur Elvarsson.
Jónína Leósdóttir fékk Vorvinda-
viðurkenningu fyrir unglingabækurnar Kossar
og ólífur (2007) og Svart og hvítt (2008). í
þessum tveimur bókum er sögð þroskasaga
Önnu, unglingsstúlku frá Vík í Mýrdal, sem
dvelur sumarlangt f Brighton á Englandi.
Kossar og ólífur hlaut nokkrar athygli og lof
fyrir að vera fyrsta íslenska unglingabókin
sem teflir fram samkynhneigðri söguhetju.
Þessar tvær bækur Jónínu prýða margir kostir
sem einkenna góðar unglingabækur. Þær
eru mjög vel skrifaðar, frásögnin er fjörleg,
atburðarásin hröð og full af dramatískum
uppákomum.
Aðra Vorvinda-viðurkenningu hlaut
útvarpsþátturinn Leynifélagið sem stýrt
er af Brynhildi Björnsdóttur, Kristinu Evu
Þórhallsdóttur og Ævari Þór Benediktssyni.
Þátturinn er á Rás eitt hjá RÚV fjórum sinnum
í viku kl. 20.00 og er ætlaður börnum á
aldrinum 6-10 ára. Umfjöllunarefni þáttanna
getur verið af ýmsum toga, t.d. óleystar
ráðgátur og dýr sem heita undarlegum
nöfnum. Sjónvarpsþættir og biómyndir og
tölvuleikir eru mjög fyrirferðarmiklir í lífi
barna í dag. Meðan myndir örva sjónskynjun
örvar útvarpið ímyndunaraflið og gott
ímyndunarafl er gulls ígildi.
Þriðja viðurkenningin var veitt Halldóri Á.
Elvarssyni fyrir bækurnar Stafróf dýranna og
Teljum dýr: 1, 2 og 3. Halldór er grafískur
hönnuður og eru bæði myndir og texti eftir
hann. Þetta eru fallegar og hugvitsamlegar
bækur til að sýna fróðleiksfúsum börnum
sem vilja læra um stafina og kynnast því sem
bækur hafa að geyma.
Nordisk blad
á ibby.is
Segja má að
hápunkturinn
f samstarfi
norrænu IBBY-
deildanna sé
útgáfa Nordisk
blad. Deildirnar
skiptast á um að
ritstýra blaðinu og
á þessu ári var röðin
komin að IBBY á íslandi.
Sú ákvörðun var tekin
að gefa blaðið einungis
út rafrænt í sparnaðarskyni. Hver deild getur
síðan látið prenta sitt upplag ef áhugi og geta
er fyrir hendi. Hér á landi látum við nægja að
birta Nordisk blad á heimasíðu IBBY á (slandi,
www.ibby.is. Við hvetjum allt áhugafólk um
barnabókmenntir til að skoða Nordisk blad á
netinu. Það er stútfullt af bráðskemmtilegum
greinum um drauga ogyfirnáttúrulega atburði
í barnabókmenntum Norðurlandanna. Anna
Heiða Pálsdóttir ritstýrði blaðinu og setti það
upp. Blaðið prýðir krassandi kápumynd eftir
Halldór Baldursson.
Heiðurslistafólk
Stjórn IBBY á (slandi hefur ákveðið að heiðra
þrjá listamenn með því að tilnefna verk þeirra
á Heiðurslista IBBY-samtakanna 2010. í flokki
myndlistar: Björk Bjarkadóttir fyrir Allra fyrsti
atlasinn minn. í flokki frumsaminna bóka:
Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrir Draugaslóð.
í flokki þýðinga: Rúnar Helga Vignisson fyrir
Göngin.
Verkin sem tilnefnd eru verða
kynnt á heimsþingi IBBY sem haldið
verður í Santiago De Compostela á Spáni
8.-12. september 2010. Allar bækur
sem tilnefndar eru á Heiðurslista IBBY
eru hafðar til sýnis á heimsþinginu auk
þess sem þær fara á farandsýningu
um víða veröld að þinginu loknu.
Kynningareintök af bókum
sem IBBY á íslandi bárust vegna
vals í Heiðurslistann verða gefin
Kvennaathvarfinu.
Guðlaug Richter, formaður IBBY á íslandi