Börn og menning - 01.09.2013, Qupperneq 8

Börn og menning - 01.09.2013, Qupperneq 8
Börn og menning Myndasagan nýtur sífellt meiri virðingar á Vesturlöndum og hægt er að finna grafalvarleg verk sem sögð eru í þessu formi. Sjálfsævisagan Persepolis eftir Marjane Satrapi sem segir frá uppvaxtarárum hennar í Iran á tímum írönsku byltingarinnar hefur notið mikilla vinsælda. Einnig má nefna myndævisöguna Feynman eftir Jim Ottaviani og Leland Myrick sem segir frá ævi bandaríska eðlisfræðingsins Richard Feynman sem hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði 1965. Og meðal þekktustu myndasagna samtímans er Maus eftir Art Spiegelman en hún er eina myndasagan sem hlotið hefur hin virtu bandarísku Pulitzer bókmenntaverðlaun. Sagan segir frá foreldrum Spiegelmans og helför nasista. Lunginn úr útgáfu DC Comics og Marvel er ætlaður flestum aldurshópum en verk fyrir eldri lesendur eru ávallt merkt sem slík (e. mature readers). Bæði fyrirtækin gefa út sögur sem sérstaklega eru samdar með yngri lesendur í huga, þá með þekktustu hetjum útgáfurisanna í aðalhlutverki. Þær hafa einfaldari texta sem hæfa lestrarkunnáttu yngri lesenda, söguþráðurinn er einfaldari og teikningarnar að sama skapi lausar við tilraunastarfsemi. Segja má að flestar ofurhetjusögur henti lesendum tólf ára og eldri en þær sögur sem ætlaðar eru yngri lesendum henti sex til tólf ára börnum. Ofurhetjugeirinn er og hefur verið ansi karllægur þó að ófáir lesendur myndasagna séu konur, en nokkrar þeirra eru fastagestir í myndasögudeild Nexus. Fáar konur starfa sem teiknarar og höfundar innan ofurhetjugeirans og sömuleiðis eru fáar konur í þessum sögum. Ofurhetjurnar eru í yfirgnæfandi meirihluta hvítir karlmenn. Þær kvenhetjur sem komast á forsíður tímaritanna ná ekki viðlíka vinsældum og karlkyns kollegar þeirra. Kvenhöfundum hefur fjölgað síðustu árin innan ofurhetjugeirans og hefur ímynd kvenna innan sagnaheimsins tekið nokkrum stakkaskiptum fyrir vikið. í dag er auðveldara að benda á ofurhetjutitla sem eru ekki síður ætlaðir konum en körlum. Um leið og ofurhetjur sækja í sig veðrið í öðrum miðlum (Hollywood hefur loks uppgötvað þennan anga vísindaskáldskapar eins og hinn gífurlegi fjöldi ofurhetjukvikmynda síðustu árin ber vitni um) er myndasögumiðillinn vestanhafs fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Ofurhetjurnar, þó að fyrirferðarmiklar séu, deila nú markaðnum með fjölda annarra myndasagna sem eiga rætur að rekja til vísindaskáldsagna, spennusagna, hrollvekja, gamansagna, ævintýra, endurminninga og jafnvel fræðibóka. Mest selda ritröðin í Nexus síðustu árin er til að mynda bókaflokkurinn Fables eftir Bill Willingham, sem er nútímaævintýri byggt á arfleifð Grimms-ævintýranna og er ætlaður unglingum og fullorðnum. Vísindamyndaskáldsögurnar / the Last Man eftir Brian K. Vaughan og Pia Guerra, Transmetropolltan eftir Darick Robertson og Warren Ellis og Saga eftir Brian K. Vaughan og Fiona Staples njóta allar mikilla vinsælda og hrollvekjur, líkt og hin geysivinsæla bókaröð Walking Dead sem sköpuð var af Robert Kirkman og Tony Moore, eiga vænan lesendahóp. Bandarískar myndasögur í dag höfða til breiðari hóps lesenda en nokkru sinni fyrr og einskorðast ekki lengur við hvítar karlkyns ofurhetjur. Sú breidd sem nú ríkir á myndasögumarkaðnum vestanhafs er ekki síst að þakka nýjum straumum að austan. Japanskar myndasögur Það varð bylting í myndasöguheiminum þegar japanskar myndasögur fóru að koma út á Vesturlöndum. Þar opnaðist nýr heimur (bókstaflega) fyrir vestrænum lesendum. Við getum þakkað Vampire Knight teiknimyndasögurnar eftir Matsuri Hino voru gefnar út i Japan 2004-2013.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.