Börn og menning - 01.09.2013, Síða 9

Börn og menning - 01.09.2013, Síða 9
btfi ifl'ra \ u '|1 11 ^ . <* \ M i japönskum myndasögum, sem kallast manga, fyrir mikla aukningu kvenlesenda myndasagna. Þegar manga fór að njóta gífurlegra vinsælda á Vesturlöndum opnuðust augu útgefenda og höfunda fyrir þeim stóra hópi lesenda sem ekki hafði áhuga á karllægum heimi ofurhetjunnar. Myndasöguútgefendur uppgötvuðu að það voru til lesendur sem höfðu ekki bara áhuga á að lesa ævintýrasögur um stráka sem berjast við illmenni og óvætti, heldur vildu einnig lesa sögur um stelpur í skóla eða íþróttum, um stelpur og stráka sem fella hugi saman, um stelpur sem berjast við illmenni og óvætti og svona mætti áfram telja. Manga-teiknimyndasögur eru kyrfilega kynjaskiptar og hægt er að flokka flestarsögurnar undir shonen-manga eða strákabækur annars vegar og shojo-manga eða stúlkubækur hins vegar. í Nexus hefur það sýnt sig að stúlkur eru líklegar til að lesa báðar tegundirnar en drengir lesa mun síður stelpusögur. Vinsælar shonen-myndasögur hér á landi eru til dæmis bókaflokkarnir One Piece eftir Eiichiro Oda, Naruto eftir Masashi Kishimoto, Fullmetal Alchemist eftir Hiromu Arakawa og Bleach eftir Tite Kubo. Algengt er að vinsælar shonen-sögur telji tugi bóka, í bókaflokkunum One Piece og Naruto eru til að mynda komnar yfir 60 bækur í hvorum flokki. Vinsælustu strákasögurnar fjalla oftar en ekki um unga bardagamenn eða ævintýri þar sem bardagar eru fyrirferðarmiklir. Yfirleitt eru shojo-seríurnar styttri en einhverjar þeirra ná þó að fylla tvo tugi eða fleiri bækur. Vinsælar sho/o-seriur í dag eru meðal annars Vampire Knight eftir Matsuri Hino, Ouran High School Host Club eftir Bisco Hatori, Sklp Beat eftir Yoshiki Nakamura og Hana- Kimi eftir Hisaya Nakajo. Algengur efniviður söq/'o-bókanna eru Ungar ástir og gamansögur sem rekja má til samskipta kynjanna. Japanskar myndasögur eru líkt og þær vestrænu skrifaðar fyrir alla aldurshópa en það er jafnvel meira efni fyrir yngri lesendurna I manga-horninu en því vestræna. Stór hópur barna í dag þekkir manga-sögur mun betur en vestrænar myndasögur. Engar manga-sögur hafa komið út í íslenskri þýðingu en nokkrar sem sverja sig í ættina. Edda útgáfa gaf út nokkrar bækur fyrir örfáum árum í manga-stíl. Þetta voru bækurnar Tarot spákonan og Englar arkarinnar eftir Sang-Sun Park, Drekaveiðar eftir Richard Knaak og Jae-Hwan Kim og tvær bækur úr bókaflokknum Draumar eftir Queenie Chan. Þessar bækur voru markaðssettar sem „manga" bækur, en eru þó ekki japanskar manga teiknimyndasögur heldur ýmist bandarískar bækur í manga-stíl eða manw/ta-bækur frá Suður-Kóreu. Útgáfan reyndist ekki arðbær og ekki var lokið við að gefa út bókaflokkana. Ekki hefur enn verið ráðist í útgáfu japanskra myndasagnabóka á íslenska örmarkaðinum en í nágrannalöndum eins og Danmörku er blómleg útgáfa þýddra manga-bóka. Framtíð myndasögunnar á íslandi Mögulega mun aukinn aðgangur að spjaldtölvum stuðla að framgangi íslensku myndasögunnar því þar geta myndhöfundar gefið út litríkar myndasögur án þess að hafa áhyggjur af prentkostnaði. í dag er hægt að nálgast fjölda stafrænna myndasagna, bæði löglega og ólöglega. Fyrstu kynni margra lesenda af japönskum myndasögum eru til dæmis svokallaðar „scanlations" myndasögur sem lesendur í Japan hafa skannað og snarað yfir á ensku. Oft kemur það fyrir að afgreiðslufólk í Nexus er spurt um myndasögur sem krakkar hafa verið að lesa á netinu en eru ekki komnar út á ensku í bókaformi. Einu gildir hins vegar hvort börn og fullorðnir njóta myndasögunnar á stafrænum skjánum eða prentuðum síðum bókarinnar, öllu máli skiptir að fólk lesi myndasögur og hafi gagn og gaman af. Höfundur stýrir myndasögudeild verslunarinnar Nexus

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.