Börn og menning - 01.09.2013, Blaðsíða 12

Börn og menning - 01.09.2013, Blaðsíða 12
12 Börn og menning jákvæð áhrif, því þrátt fyrir að þessar útgáfur hafi verið misvel heppnaðar þá áttu þær sinn þátt í að sýna fram á fjölbreytta möguleika formsins. Annarskonar vanþekking birtist svo í því hvernig Wertham og fleiri „sönnuðu" mál sitt, en myndasögudæmin sem voru notuð í „yfirheyrslunum" voru iðulega stakar myndir en ekki heilar síður eða sögur. Nyberg bendir á að myndirnar sem voru valdar voru ekki aðeins þær ýktustu heldur töpuðu þær allri merkingu þegar þær voru rofnar úr samhengi. Myndasagan er fyrst og fremst raðmyndaform og skiptir samhengið miklu máli fyrir upplifun og skilning, nokkuð sem myndasögulesendur hafa alltaf vitað en er óskiljanlegt þeim sem einungis líta á formið utan frá, án þess að hafa kynnt sér það. Wertham gagnrýndi þó ekki einungis ofbeldi og kynlíf í myndasögum. Hann tiltók einnig vafasamar fyrirmyndir ungmenna, svo sem samband Batmans og Robins og samfélag Amazonanna í Wonder Woman. í þessu sá Wertham samkynhneigða undirtóna sem væru hættulegir ungmennum og gætu skaðað hugmyndir þeirra um kynhlutverk og kynhneigð. Þannig er Ijóst að herferð Werthams var ekki eins einföld og pólitískt rétthugsuð og hún leit út fyrir að vera enda hafa margir bent á að þarna hafi í raun og veru verið á ferðinni pólitísk herferð gegn myndasögum og því aukna vægi samfélagslegrar gagnrýni sem þar Pinky & Stinky eftirjames Kochalka kom út 2002 og segir frá tveimur grisum sem brotlenda á tunglinu. var að finna, sérstaklega hvað varðaði gagnrýní á yfirvöld.5 Allt þetta varð til þess að myndasagan varð að blóraböggli samfélagsmeina og bókstaflega brennd á báli: Myndabókabrennur voru ein af afleiðingum herferðar Werthams. Það sem gerir myndasögubrennurnar enn óhugnanlegri er að þær voru líka stundaðar í Þýskalandi, ekki bara nasísmans, heldur sjötta áratugarins, í kjölfar ádeilu Werthams. Boðskapur Werthams breiddist nefnilega víða um heim eins og kemur fram í greinasafninu Pulp Demons: International Dimensions of the Postwar Anti-Comics Campaign (1999). í inngangi rekur ritstjórinn, John A. Lent, hvernig fordómar gegn myndasögunni fengu byr undir báða vængí þegar fregnir bárust af herferðinni í Bandaríkjunum en leggur, líkt og Nyberg, einnig áherslu á að myndasagan hafði lengi verið blóraböggull og uppáhald „sjálfskipaðra siðapostula, and-kommúnísta (og í sumum tilfellum, kommúnista), ríkisstjórna og yfirvalda á sviði trúar og menntunar".6Ljóst er af greinunum í safninu (sem fjalla um Bretland, Þýskaland, Kanada, Ástralíu og Asíulönd auk Bandaríkjanna) að fordómarnir eru víðtækir og langlífir. Myndasagan og lestur barna Eittaf þvísem Nyberg legguráherslu á ískrifum sínum er spurningin um myndasöguna og börn. ( greininni „No Harm in Horror" ræðir hún þá hugmynd að myndasagan skaðí börn 5 Það er sérstaklega Martin Barker sem hefur fjallað um þessar vafasömu pólitísku hliðar herferðarinnar gegn myndasögum i bók sinni A Haunt ofFears: The Strange Historyofthe Brítish Horror Comics Campaign, Jackson og London, University Press of Mississippi 1992 (1984). 6 John A. Lent, „The Comics Debates Internationally: Their Genesis, Issues and Commonalities", í Pulp Demons: International Dimensions of the Postwar Anti-Comics Campaign, ritstj. John A. Lent, London, Associated University Presses 1999, bls. 9. Þýð. Úlfhildur Dagsdóttir.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.