Börn og menning - 01.09.2013, Síða 14
Bechdel prófið birtist fyrst 1985 í
teiknimyndasögunni Dykes to Watch
Out For eftir Alison Bechdel.
Kynjapróf í myndheimum
Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir
Fyrír ekki svo löngu síðan var ég fengin til
að koma og tala um kynja- og staðalimyndir
í teiknimyndasögum í framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæðinu. Fyrirlesturinn olli
mér talsverðum kvíða, því sem femínisti
hef ég margoft þurft að forða mér í miðju
rifrildi við fóik sem finnst allar rannsóknir
á stöðu kynjanna vera hálfvitaleg tilraun
kvenna til að taka yfir heiminn. Þegar á
hólminn var komið gekk þetta mun betur
en ég hafði þorað að vona, nemendur
tóku mér flestir vel og hlustuðu á það sem
ég hafði fram að færa. Margir voru þegar
farnir að opna augun fyrir hinu ótrúlega
misrétti sem birtist í myndmáli fjölmiðla, í
auglýsingum, teiknimyndum, bíómyndum
og bókum, hvort sem það er af ásettu ráði
eða óviljandi.
En hvað gerir teiknimyndasögur og annað
myndefni jafnréttissinnað? í þessari grein er
fjallað um það hvernig hægt er að mæla
hvort myndefni sé jafnréttissinnað eða ekki.
Ég segi frá hinu alræmda „Bechdel-prófí"og
og reyni að betrumbæta það. Síðan set
ég upp kynjagleraugun og rýni nokkrar
teiknimyndasögur sem ég naut þess að lesa í
æsku og eina nýlega sem er í miklu eftirlæti
hjá mér í dag. Ég skoða þessar bækur út frá
kynjafræðilegu sjónarhorni og velti fyrir mér
hvaða kynjaímyndum börn kynnast við lestur
þeirra.
Prófsteinar jafnréttis?
Bechdel-prófið svokallaða er kennt við
teiknimyndahöfundinn Alison Bechdel. Prófið
birtist fyrst í teiknimyndasögu hennar frá
1985 sem heitir Dykes to Watch Out For en
þar er gert grín að fátæklegri stöðu kvenna
í bíómyndum. Til þess að standast Bechdel-
prófið þarf kvikmynd að uppfylla eftirfarandi
þrjú skilyrði:
1) Þar þurfa að vera að minnsta kosti tvær
nafngreindar konur 2) sem tala saman
um 3) eitthvað annað en karlmann.
(teiknimyndasögu sinni notar Alison Bechdel
fyndni til að vekja athygli á hversu fáar konur
eru sýndar í kvikmyndum. En prófið sem hún
bjó til í spaugi hefur reynst gagnrýnendum
notadrjúgt til að sýna fram á mynstur
kynjamisréttis í bókmenntum og listum.