Börn og menning - 01.09.2013, Side 22

Börn og menning - 01.09.2013, Side 22
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Norrænar teiknimyndasögur: Teiknaðar sögur tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013 Hinn 30. október síðastliðinn voru í fyrsta skipti veitt Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Þau eru systurverðlaun Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem stofnuð voru árið 1962, og er ætlað að undirstrika mikilvægi barna- og unglingabókmennta á Norðurlöndum. Skrifstofa Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs er i Norræna húsinu í Reykjavík. Norðurlöndin fimm tilnefna hvert um sig tvær bækur til verðlaunanna, en einnig hafa tilnefningarrétt Álandseyjar, Færeyjar, Græntand og samíska málsvæðið, sem geta tilnefnt eina bók hvert. Verðlaunahafinn að þessu sinni var finnska skáldkonan Seita Vuorela, áður Seita Parkkola, fyrir unglingabókina Karikko eða Blindsker. Þar segir frá sambandi tveggja bræðra sem dveljast ásamt móður sinni á dularfullu tjaldsvæði sem kallast Heimsendir. Það vakti athygli að þrjár af fjórtán bókum sem tilnefndar voru til þessara nýju verðlauna voru teiknimyndasögur, teiknaðar skáldsögur og smásögur sem höfða ekki síður til fullorðinna en barna. Teiknaðar skáldsögur eru sjaldan tilnefndar til vestrænna bókmenntaverðlauna og aðeins tvær, svo ég viti til, hafa hlotið verðlaun sem ekki eru helguð teiknimyndasögum. Teiknimyndasagan Watchmen eftir Alan Moore og Dave Gibbons vann bandarísku Húgó-v(sindaskáldsöguverðlaunin árið 1988 og Art Spiegelman hlaut árið 1992 bandarísku Pulitzer-verðlaunin fyrir teiknuðu skáldsöguna Maus sem segir sögu foreldra höfundarins og hverníg þeir lifðu af helförina. Engin teiknuð skáldsaga hefur verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs svo mér sé kunnugt. Nú virðist hins vegar hafa skapast rými fyrir myndmál teiknimyndasagnanna með tilkomu nýju Barna- og unglinga- bókmenntaverðlaunanna. Grænlendingar tilnefndu teíknimyndasöguna Ukaliatsiaq eða Hreysiköttinn eftir Nuka K. Godtfredsen og Martin Appelt og Norðmenn tilnefndu Fallteknikk eða Listina að detta eftir Ingu H. Sætre. Danir tilnefndu hina stórmerkilegu Biblia Pauperum Nova: Ny bibel for de fattige iánden, sem mætti þýða á íslensku sem „Ný biblía fyrir þá sem eru fátækir í andanum", eftir Oscar K. og Dorte Karrebæk, bók sem ber mörg einkenni teiknimyndasögunnar en þó ekki nándar nærri öll.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.