Börn og menning - 01.09.2013, Síða 25

Börn og menning - 01.09.2013, Síða 25
Norrænar teiknimyndasögur: Teiknaðar sögur tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013 25 Grænlandi og fornleifauppgröft og geta skoðað skýringarmyndir og Ijósmyndir af uppgreftí fornleifafræðinga. „Það tók mig tvö og hálft ár að teikna þessa bók, það var mjög mikilvægt fyrir mig að bókin yrði sem vönduðust, bæði myndmálið og textinn. Við byrjuðum á því að vinna stutt handrit að söguþræðinum. Martin Appelt, fornleifafræðingur á Þjóðminjasafninu, skrifaði þennan söguþráð upp úr rannsóknarvinnu sinni. Síðan skrifaði ég lengri útgáfu af handritinu, útfærði persónur og dýpkaði söguþráðinn, og skrifaði handrit á grænlensku. Síðan hófst ég handa við að teikna." Aðalsöguhetja Hreysikattarins er Ukaliatsiaq, ung kona af ættbálki Túníta, sem tekin er I læri hjá andalækninum Umimmak. Saman leggja þau í mikla ferðyfir Grænlandsjökul og Ukaliatsiaq lærir að kalla til sín hjálparanda, skera út í tennur og bein og lækna fólk. Á ferðum sínum kynnast þau bæði byggðum Túníta og hinna nýju Inúíta. Ukaliatsiaq kynnist ungum Inúítaveiðimanni, Aarluk, en hann hefur komið alla leið til Grænlands frá Norður-Alaska. Þau búa saman, fyrst í þorpi Inúíta, og seinna í túnísku heimaþorpi Ukaliatsiaq. „Við Martin vildum hafa konu sem aðalsöguhetju bókarinnar, því að konur og karlar lifðu allt öðruvísi lífi meðal Túníta: Þær voru ekki veiðimenn á kajökum, heldur lifðu þær á landinu og fönguðu hreindýr. Sagnfræðingar segja okkur að hlutverk karla og kvenna hafi verið mjög svipuð meðal forfeðra okkar, meðal Inúíta, en svo var ekki meðal Túníta. Hlutverk kynjanna var þar mjög ólíkt, og það var mikilvægt fyrir okkur að velja konu sem elst upp í allt öðru samfélagi en við ólumst upp í, sem hefur allt aðra lífssýn en við, að segja sögu konu sem lærir að verða andalæknir." Texti bókarinnar er einfaldur, enda ætlaður börnum. Frásögnin er blátt áfram en það sem stendur upp úr í bókinni eru myndirnar. ..Ég vinn mjög lengi að hverri mynd, þær eru teiknaðar og litaðar með vatnslitum. Ég byrja á því að mála himininn og byggi síðan Úr Ukaliatsiaq eftir Nuka K. Godtfredsen (2012). smám saman upp landslagið og fólkið með vatnslitunum, þetta gefur myndunum dýpt, að mála þær í svona mörgum umferðum," segir Godtfredsen Teikningar Godtfredsens eru gullfallegar, í raunsæjum stíl. Litrófið er jarðbundið, gráir og grænir náttúrulitir og hinn óendanlegi, hvíti litur jöklanna. Inn á milli málar Godtfredsen andaheiminn, en þá eru litirnir ónáttúrulegir, bjartir grunnlitir, og rammarnir riðlast allir til og sýnast á hreyfingu. Bækurnar eru nú skyldulesning í grænlenskum skólum og sérstök útgáfa hefur verið prentuð fyrir skólabörn, sem hafa tekið henni vel. „Teiknimyndasagan er mjög ungt listform á Grænlandi," segir Godtfredsen, „en Grænlendingar búa yfir langri sagnahefð. Forfeður okkar sögðu börnum sinum sögur forfeðra sinna og þessar sögur voru sagðar á myndrænan máta, með leikmunum. Það hafa fundist litlar fígúrur eða myndskreytingar af hvölum og svo framvegis. Þessi sagnalist er menningararfur okkar og ég nýti mér þessa hefð, lengi hana og segi sögur með myndum, bara mun fleiri myndum." Teiknimyndasögur á Norðurlöndunum Tilnefningar til þessara fyrstu Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs benda til þess að teiknimyndasagan lifi blómlegu lífi á Norðurlöndum, þótt ekki fari mikið fyrir henni. Frægustu teiknimyndasögur Norðurlanda eru án efa Goðheimabækur danska myndhöfundarins Peters Madsen, en fimm þeirra hafa verið þýddar á íslensku og stendur til að þýða þær tíu sem eftir standa. Myndhöfundar um öll Norðurlöndin hafa þó verið að teikna og skrifa styttri myndasögubálka, og það er þessum nýstofnuðu verðlaunum Norðurlandaráðs að þakka að bækurnar hljóta nú kynningu út fyrir landsteinana. Höfundur er bókmenntafræðingur Bækur Inga H. Sætre. Fallteknikk. Ósló: Cappelen Damm. 2011. Nuka K. Godtfredsen og Martin Appelt (saga og rannsóknarvinna). Hermelinen. Grænland: llinniursiorfik Undervisningsmiddelforlag og SILA - Nationalmuseets center for Gronlandsforskning. 2012. Oscar K. og Dorte Karrebæk (myndir). Biblia Pauperum Nova: Ny bibel for de fattige i ánden. Kaupmannahöfn: Forlaget Alfa. 2012.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.