Börn og menning - 01.09.2013, Page 28
28
Börn og menning
Halla Margrét Jóhannesdóttir
Hugrekki og hættur í Huliðsdal
Hættuför í Huliðsdal
Höfundur:
Salka Guðmundsdóttir
Leikstjóri:
Harpa Arnardóttir
Leikarar:
Aðalbjörg Árnadóttir
Guðmundur Ólafsson
Hannes Óli Ágústsson
Maríanna Clara Lúthersdóttir
Leikmynd:
Brynja Björnsdóttir
Tónlist:
Ólafur Björn Ólafsson
Búningar:
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Lýsing:
Egill Ingibergsson
Aðstoðarmaður leikstjóra:
Sigríður Eir Zophaníasardóttir
Á leikárinu 2012-2013 voru einungis frum-
sýnd tvö leikverk hjá atvinnuleikhúsum á
Islandi sem teljast til barnasýninga. Af því
leiddi að ekki var hægt að tilnefna eða
veita Grímuverðlaun í þessum flokki sem
ýmsum þótti leitt. Það er því fagnaðarefni
að ein af fyrstu frumsýningum þessa hausts
skuli hafa verið barnasýning. Sunnudaginn
8. september frumsýndi leikhópurinn Soðið
svið leikritið Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku
Guðmundsdóttur. Hópurinn fékk inni í
Kúlunni í Þjóðleikhúsinu, sem er samstarfsaðili
hópsins, ásamt Leikfélagi Akureyrar þar sem
sýningar eru einnig fyrirhugaðar.
Það hefur verið gaman að fylgjast með
verkum Sölku Guðmundsdóttur undanfarið.
Fyrsta leikrit hennar, Súldarsker (2010), var
afspyrnu hressandi og kraftmikil frumraun.
Fyrir það hlaut hún Grímutilnefningu og
var verkið jafnframt valið í hóp bestu nýrra
evrópskra leikrita af European Theatre Today
árið 2012.
Hættuför í Huliðsdal fjallar um Eyju, 11
ára stelpu, sem er nýflutt upp í sveit með
foreldrum sínum og afa, á æskustöðvar
afans. Foreldrar hennar misstu húsnæði sitt
í hruninu og hafa neyðst til að flytja. Eyja
efast um að hún eignist nokkurn tíma vini
eða verði ánægð á þessum nýja stað. Hún
er einmana og ver tíma sínum í að semja
myndasögur um ofurhetjuna Ögðu.
Húsið í sveitinni er gamalt og drungalegt.
Það gnauðar og brakar í því þegar vindurinn
blæs á kvöldin. Það er einmitt á slíku
kvöldi sem leikritið gerist, kvöldi þegar
óútskýranlegir og dularfullir atburðir eiga
sér stað. Inni í herbergi Eyju birtist Hrappur,
12 ára gamall strákur sem hefur verið fangi
Bryngerðar í Huliðsdal í hálfa öld. Hjá henni
hefur hann mátt dúsa án þess að eldast