Börn og menning - 01.09.2013, Síða 31

Börn og menning - 01.09.2013, Síða 31
Bræður munu berjast: um Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn 31 enn einum ævintýraþríleik en Ijóst er að henni svipar mjög til upphafsbóka fyrri þríleikja höfundarins. í bókinni skapar Sigrún heildstæðan söguheim og kynnir söguhetjur á ýmsum aldri sem skiptast á að segja söguna. Þessi bók er þó mun skelfilegri og átakanlegri en fyrri bækur Sigrúnar og ég hef enn ekki gert það upp við mig hvort ég vilji sjá fleiri bækur um strokubörnin á Skuggaskeri. Ég velti því fyrir mér hvort þær myndu ekki útvatna þá skörpu ádeilu á hervæðingu og auðlindagræðgi nútímasamfélaga sem birtist í þessari bók. Strokubörnin á Skuggaskeri segir frá tveimur þorpum í Fagradal. Áin Silfra rennur í gegnum dalinn og skilur að byggðirnar tvær, Vesturhlíð og Austurhlíð. í gamla daga lifðu íbúar þorpanna í sátt og samlyndi og stórglæsileg brú var byggð yfir Silfru til að treysta böndin. En dag einn koma vísindamenn í dalinn, með flókin og skringileg mælitæki og uppgötva dýrmæta auðlind í Hólmanum í miðri ánni. Bæði Vesturhlíð og Austurhlíð telja sig eiga Hólmann og brátt skellur á stríð um eignarhald hans og verðmætanna sem þar er að finna. Brúin á milli byggðanna er rifin og hvort þorp fyrir sig byggir nýja brú sem aðeins liggur á Hólmann sjálfan. Vopnaðir verðir, gráir fyrir járnum, gæta þessara brúa og enginn samgangur er lengur á milli Vesturhlíðar og Austurhlíðar. Strokubörnin á Skuggaskeri eru tveir systkinahópar sem búa hvor sínum megin við ána. Hringur, Lína, Anna og Beta eru fædd í Austurhlíð en Reynir og Björk í Vesturhlíð. Áður höfðu þau verið vinir og skipst á heimsóknum yfir brúna en nú er það liðin tíð. Lesendur kynnast sögu þessara tveggja systkinahópa sem báðir hafa flúið frá Fagradal og róið að lítilli eyju úti í hafi, Skuggaskeri. Þar reynir hvor hópur fyrir sig að hefja nýtt líf, langt frá firringu fullorðna fólksins. Sigrún dregur hvergi úr hryllingnum sem fylgir þessum illdeilum, þetta eru ekki nágrannaerjur, heldur blóðug styrjöld. Árásargirnin smitar svo út frá sér og börnin fyllast hatri eins og foreldrarnir. Þau van- treysta ekki aðeins fyrrverandi vinum sínum, heldur líka foreldrum sínum og fjölskyldum. Vopnaburður leikur stórt hlutverk bæði í texta og myndum Sigrúnar. Á fyrstu síðum bókarinnar er mynd af hermanni sem ver byggð sína gegn árásum og hann myndi sennilega sóma sér vel á hvaða hátæknivígvelli sem finna má hér á jörðu. Börnin eru vopnuð bogum og örvum og þegar elstu drengirnir tveir, Hringur og Reynir, rekast hvor á annan á eyjunni eru fyrstu viðbrögð þeirra að spenna bogana hvor gegn öðrum. Þegar foreldrar barnanna uppgötva hvar þau dvelja og koma til að endurheimta þau, þá beina börnin örvunum í aðra átt, í áttina að foreldrum sínum. í þessum sterka og átakanlega kafla undir lok bókarinnar, nýtir Sigrún bókarformið á táknrænan hátt. Lengst til vinstri á opnunni er mynd af Hring með spenntan boga og vísar örin á hægri hlið opnunnar en þar standa foreldrar hans varnarlausir. Það er ekki aðeins hugmyndafræðileg gjá sem skilur að börn og foreldra, heldur einnig hvít blaðsíðan og hryggur bókarkjalarins. Villibarnið? Eitt það skelfilegasta við Strokubörnin á Skuggaskeri er þó furðuleg vera sem læðist um meðal barnanna á eyðieyjunni. Inn á milli kaflanna sem segja frá ævintýrum barnanna læðir þriðji sögumaðurinn sér inn í atburðarásina og er frásögn hans skáletruð. Þetta er Karri, drengur sem hefur gengið sjálfala á Skuggaskeri þar sem móðir hans skildi hann eftir á unga aldri. Sigrún sækir hér I ríkan sagnaarf Vesturlanda um börn sem hafa alist upp í skóginum, má þar nefna goðsöguna um Rómulus og Remus, sögu hins þýska Kaspars Hausers og skáldskap eins og sögurnar af Móglí í Skógarlífi Rudyards Kiplings og Tarzan í samnefndum bókaflokki Edgars Rice Burroughs. Karri er villt barn, enfant sauvage, og ekki er Ijóst hvort hann muni ráðast á hina nýju nágranna sína eða vingast við þá. Ég verð að viðurkenna að mér þótti persónusköpun Karra ekki takast nógu vel hjá Sigrúnu. Undir lok bókarinnar hefur hann skyndilega bæst i vinahópinn, án þess að nokkur skýring sé gefin á því. í lok sögunnar er engu líkara en Karrl hafi gleymst. Enginn kennir honum að tala eða býður honum að koma heim með sér. Nei, þvert á móti mun Karri dvelja áfram á eyjunni, að vísu munu börnin úr Austurhlíð og Vesturhlíð dvelja þar hjá honum um tíma, á meðan hinir fullorðnu vinna að endurbyggingu byggðarinnar í Fagradal. Óljóst er hvað verður svo um Karra. Vopnahlé eða friður? Söguþráður bókarinnar dregur upp dystópíska sýn á veröldina. Söguefnið minnir um margtá hina sígildu skáldsögu Lordofthe Flies eftir William Golding sem segir frá hópi skólastráka á eyðieyju í kjarnorkustyrjöld. En börnin í söguheimi Sigrúnar sættast í lok bókarinnar, í stað þess að ráðast hvert á annað. Hringur og Reynir hittast á veiðum, alvopnaðir, og allt stefnir í óefni. Hringur horfir stíft á Reyni. Reynir starir illilegur á móti. Þeir standa þarna tveir ... annar frá Austurhlíð og hinn frá

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.