Börn og menning - 01.09.2013, Qupperneq 34

Börn og menning - 01.09.2013, Qupperneq 34
34 Börn og menning VORVINDAR Viðurkenningar með vorvindunum íslandsdeild IBBY var stofnuð árið 1985 og tveimur árum síðar veitti félagið í fyrsta skipti viðurkenningar fyrir gott framlag til barnamenningar. Viðurkenningarnar hafa síðan verið veittar árlega og ganga nú undir nafninu Vorvindar enda eru þær jafnan afhentar á vorin, nær undantekingalaust á sólríkum sunnudegi í maí. Um það bil eitt hundrað einstaklingar og stofnanir hafa fengið siíka viðurkenningu frá iBBY. Á þessu herrans ári, 2013, voru eftirtaldir aðilar heiðursins aðnjótandi: Þjóðleikúsið fyrir leiksviðið Kúluna, rithöfundarnir Cunnar Helgason og Kristjana Friðbjörnsdóttir fyrir ritstörf sín og myndlistarkonan Birgitta Sif fyrir bókina Ólíver. Eins og undanfarin ár var Vorvindahátíðin haldin í Gunnarshúsi og hófst með því að viðstaddir sungu saman lagið góða, „Vorvindar glaðir". Arndís Þórarinsdóttir formaður IBBY setti síðan samkomuna og sagði að fátt væri skemmtilegra í starfi stjórnarinnar en að setjast niður skömmu eftir jól og henda á milli sín nöfnum einstaklinga og hópa sem eru að gera eitthvað alveg frábært sem vert er að vekja athygli á. Arndísi var tíðrætt um mannbætandi áhrif verka þessara aðila sem allir segja sögur á hátt sem er líklegur til að bæði skemmta og bæta þá sem lesa: Ég er svo lánsöm að eiga tvö lítil börn og um daginn var ég að hugsa hvað mér þætti mikilvægast að þessi kríli fengju út úr uppeldinu. Ég fór strax að hugsa um gullnu regluna: Að þau breyti gagnvart öðrum eins og þau vilja að aðrir breyti gagnvart þeim. Maður óskar þess að þau verði farsæl félagslega, eignist trausta vini og verði traustir vinir. Maður vill að þau læri vinnusemi, sannsögli, gleði, víðsýni, ábyrgð og kurteisi. Góð umgengni og fallegir mannasiðir skipta auðvitað líka máli. Svo eiga þau að vera skapandi, gagnrýnin og leitandi. Það er svo margt sem manni finnst að lítil börn eigi að læra. En þegar ég hugsaði málið lengra var sami lykillinn að þessu öllu. Það sem skiptir mestu máli þegar kemur að því að vera góð manneskja er hæfileikinn að geta sett sig í spor annarra. Það er svona einfalt. Það er þannig sem maður lærir að breyta rétt. Og enn sem komið er veit ég bara um eina leið til að gera það. Besta, og kannski eina leiðin til þess að læra að setja sig í spor annarra, er að meðtaka sögu. Sögu í bók, sögu á sviði, sögu í Ijóði eða sögu á tjaldi. Eða sögu sem gamli maðurinn í biðröðinni á pósthúsinu fer að segja þér alveg óumbeðinn. Það skiptir kannski ekki öllu máli hver miðillinn er en með því að lesa sögu upplifum við eitthvað nýtt og eitthvað framandi út frá sjónarhóli einhvers annars. Þetta er æfing sem við stundum reglulega frá því við erum á fyrsta eða öðru ári og til dauðadags. Þegar maður situr einn með bók þá hverfur maður inn í söguna, verður hluti af henni. Og þegar sagan er búin er maður breyttur, er maður aðeins önnur manneskja en maður var. Arndís afhenti Þórhalli Sigurðssyni, sem hefur veríð listrænn stjórnandi Kúlunnar frá því að hún var opnuð árið 2006, viðurkenningu IBBY. Hún hrósaði Þjóðleikhúsinu fyrir að sýna yngstu áhorfendunum sóma með þvi að helga heilt svið barnaleikritum og gerði mikilvægi fyrstu leikhúsupplifunarinnar að umtalsefni, hvað það skipti miklu máli að krakkar læri að hlusta á sögur og að þau séu virkir þátttakendur í listinni frá unga aldri. I leikhúsinu dragast þau inn í annan heim, þar sjá þau hvernig þykjustuleikurinn þeirra getur haldið áfram og orðið eitthvað stærra. Helga Birgisdóttir, sem situr í stjórn IBBY, afhenti Gunnari Helgasyni viðurkenningu fyrir að hafa skemmt börnum og unglingum með ýmsu móti árum saman. Hún þakkaði honum sérstaklega fyrir framlag hans til íslenskra barnabókmennta og hrósaði honum fyrir færni hans í að skrifa trúverðuglega um tilfinningalíf stálpaðra stráka: Sögurnar um Jón eru strákabækur og þeir fræðimenn sem hafa látið sig varða bóklestur drengja, eða öllu heldur skort á lestri, segja að strákar lesi helst upplýsingabækur, grín og húmor af ýmsum toga, blaðagreinar, vísindaskáldsögur, fantasíur og ævintýrasögur. Með öðrum orðum: Strákar sem lesa, lesa alla jafnan lélegar bækur, bækur sem þeir eiga að þroskast frá í átt að þyngra og raunsærra efni, efni sem geri meiri kröfur til lesenda, meðal annars hvað varðar lesskilning. Þetta gerist þó gjarnan frekar seint og alltof oft alls ekki. Hluti af þessum vanda, þ.e. hvað strákar lesa lítið og hvað þeir lesa „ómerkilegar bókmenntir" held ég að felist í því hversu lítið af góðu lesefni þeim stendur til boða og beint er til þeirra. Viti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrna á Akureyri eru raunsæjar þroskasögur, spennandi og broslegar, sorglegar og hlægilegar, erfiðar en um leið léttar. Þetta eru bækur sem gera kröfur til lesandans og þegar hann er einu sinni búinn að opna bækurnar vill

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.