Börn og menning - 01.09.2013, Side 35
35
Viðurkenningar með vorvindunum
Sigþrúður Gunnarsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Kristjana
Friðbjörnsdóttir og Gunnar
Helgason
hann helst ekki hætta fyrr en bókin er
búin - og verður svekktur þegar það
gerist.
Ein af árlegum viðurkenningum IBBY er
veitt ungum og upprennandi listamanni
og er henni meðal annars ætlað að vera
hvatning til góðra verka í framtíðinni.
Að þessu sinni hlaut Birgitta Sif þessa
viðurkenningu fyrir bókina Ólíver. Birgitta
Sif er fædd í Reykjavík, en ólst upp í Svíþjóð,
Danmörku og Bandaríkjunum. Hún nam
teikningu og grafíska hönnun við Cornell
University í New York og tók meistarapróf (
barnabókalýsingum frá Cambridge School of
Arts í Bretlandi árið 2011. Ólíver kom fyrst út
á ensku hjá breska forlaginu Walker Books
og er fyrsta bók hennar þar sem hún á bæði
myndir og texta. Sigþrúður Gunnarsdóttir
þýddi bókina á íslensku.
Sigþrúður tók við viðurkenningunni fyrir
hönd Birgittu sem býr og starfar í London.
Áslaug Jónsdóttir, sem situr í stjórn IBBY,
afhenti viðurkenninguna og má hér lesa
lýsingu hennar á Óliver:
Reyndar má segja að tvær persónur
hljóti viðurkenninguna! Fyrstan ber að
telja lítinn, mjósleginn strák með stór
augu og enn stærri gleraugu. Hann
prikast um á rauðum strigaskóm og
virðist fáa eiga að fyrir utan tuskudýrin
sín. Hann heitir Ólíver og er kynntur
svo i samnefndri bók: „Ólíver var
dálitið sérstakur. En það var allt í lagi.
Hann bjó í sínum eigin heimi, sæll og
glaður með vinum sínum."
Veröld Ólívers er viðfeldin og
kunnugleg en stundum örlítið bjöguð:
hús, bílar og tré eru toguð og teygð
eins og þau séu á fartinni burt -
altént í öfuga átt við Ólíver, sem
rólegur heldur sínu striki og leikur
sér einn með tuskudýrunum sínum.
I félagsskap þögulla vina gefur hann
ímyndunaraflinu lausan tauminn, eins
og börn kunna manna best. Og þar
liggur meðal annars styrkur bókarinnar
og boðskapur: Ólíver er einfari, hann
er öðruvísi, en það er allt í lagi og
umfram allt finnst honum það í lagi
sjálfum. Umhverfið er honum heldur
ekki fjandsamlegt, flestir eru glaðir og
góðir, afskiptalitlir þó.
Fólkið í kringum Ólíver er
oft spaugilegt, án þess að það sé
skrípamyndir. Teikning og línur eru
mjúkar og lifandi, litaskalinn mildir
jarðartónar, bókin öll andar hlýju og
væntumþykju. Hver opna er full af
smáatriðum og ótal aukapersónum
sem er gaman að velta fyrir sér, þar
eru allir önnum kafnir og uppteknir
af sínu. Þarna dúkka til dæmis upp
hinar vinsælu myndabókamýs sem
sýsla sitthvað óháð söguþræðnum.
Myndræna frásögnin er Ijúf og hógvær
en á sama tíma fjölskrúðug og fyndin.
Andstætt Ólíver eiga flestar
aukapersónurnar í einhvers konar
samneyti eða samskiptum innbyrðis,
jafnvel persónur í myndarömmum
á veggjum. Á nokkrum síðum má
þó finna stúlku sem gengur ein eða
grúfir sig ofan í bók. Þar er kominn
verðandi sálufélagi Ólívers: nafna hans
Ólivía. Ólíver hefur einmitt rekið sig á
einstæðingsskap sinn þegar fundum
þeirra bersaman. Bókin endar á byrjun:
á upphafi vinskapar þeirra tveggja.
Guðlaug Richter, varaformaður IBBY, afhenti
fjórðu viðurkenninguna en hana hlaut
Kristjana Friðbjörnsdóttir sem er orðin þekkt
fyrir bækur sínar um Ólafíu Arndísi. Það má
kannski segja um hana eins og Ólíver að það
séu tvær persónur sem fá viðurkenningu; hin
bráðskemmtilega og breyska Ólafía Arndís
og svo auðvitað skapari hennar, Kristjana
sjálf. Kristjana, sem er grunnskólakennari,
hefur sagt að bækurnar um Ólafíu Arndísi
hafi komið til vegna þess að henni hafi
fundist skorta fjölbreytni í barnabókaflóruna.
Hún miðar alla sína kennslu út frá notkun
barnabóka og vantaði texta í sendibréfastíl.
Þannig urðu til Flateyjarbréfin sem Ólafía
Arndís skrifar kennaranum sínum á meðan
hún dvelur sumarlangt í Flatey. í kjölfarið
fylgdu Dagbók Ólafiu Arndisar og Reisubók
Ólafiu Arndísar og þar með var Ólafía
Arndís komin í flokk allra skemmtilegustu
barnabókapersóna síðustu ára. Hún á við sín
vandamál að stríða, er til dæmis einstaklega
óheppin með foreldra, en það er alltaf líf
og fjör í kringum hana og sennilega eiga
íslensk ungmenni auðvelt með að spegla
sig í hennar veruleika. Auk þess að vera
skrifaðar í fjörlegum og hröðum stíl gerast
bækurnar um Ólafíu Arndísi víðs vegar um
landið þannig að þær vekja ekki aðeins
hlátur heldur koma á framfæri heilmiklum
fróðleik í leiðinni.
Að venju lauk Vorvindahátíðinni með
kaffisamsæti og spjalli og það verður að
segjast eins og er að það er fátt Ijúfara en
að vera innan um fólk á öllum aldri sem
sameinast um þetta skemmtilega áhugamál
- barnamenningu í öllum sínum fjölbreyttu
myndum.