Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Page 1

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 13.12.1978, Page 1
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978 8. TBL. AF EFNI BLAÐSINS Pistlar úr sögu SFR - bls 2 Réttindakaup í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins - bls. 2 Viðtal við Einar úlafsson, for-,. nann SFR - bls. 4-5 Fræðslustarf- semi á næsta ári - bls. 8 Aðalfundur Fangavarða- félags íslands - bls. 7 Liósmyndir í Felagstiðindum: Pétur öskarsson KRAFA UIVISAMA SAMN- INGSRÉTT OG AÐRIR BSRB-FÉLAGAR HAFA Eitt af því, sem veruleg óánægja var með í verkfalli opinberra starfsmanna á síðastliðnu ári, var að starfsfólk ýmissa stofnana fékk ekki full félagsréttindi. Ágreiningur var um, hvort starfsmenn hjá þessum stofnunum væru rxkisstarfsmenn sam- kvæmt lögunum um kjarasamninga BSRB. Opinberir starfsmenn lögðu á það mikla áherslu, að starfsmenn þessara hálfopinberu stofnana væru félagsmenn í aðildarfélögum BSRB óg að þeim bæru full félagsréttindi - þ.á.m. réttur til að greiða atkvæði um sátta- tillögu. Þessu var hafnað. í þeim viðræðum, sem nú fara fram á milli fulltrúa opinberra starfsmanna og ríkisstjórn- arinnar, hefur verið lögð á það áhersla af hálfu fulltrúa BSRB, að á þessu verði breyting og að starfsfólk þessara stofnana fái sama samningsrétt og aðrir BSRB-félagar hafa. í áramótaviðtali, sem tíðindamaður Félags- tíðinda átti við Einar ölafsson, formann SFR, og sem birt er á öðrum stað í þessu blaði, er fjallað um þetta atriði. Þar segir Einar m.a.: "Ösk okkar um breytingar á þessu x þá átt að þetta fólk fái að taka. fullan þátt í öllum ákvörðunum til jafns við aðra félagsmenn í BSRB hefur fengið jákvæðar undirtektir, hver svo sem endanlega niðurstaðan verður". Það er ánægjuefni, að vel skuli hafa verið tekið í þessa jafnréttiskröfu opinberra starfs- manna. Ekki verður öðru trúað en að þar fylgi athafnir orðum, og að næst, þegar BSRB gengur til samningaviðræðna, hafi þessir félagar okkar sama rétt og aðrir félagsmenn í BSRB.

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.